Vikan


Vikan - 14.11.1940, Page 7

Vikan - 14.11.1940, Page 7
VIKAN, nr. 46, 1940 1 Stærsta ílugvélaverksmiðja í einkaeign í heiminum. *1| f $ Isv,-■>' ■ - jfl Þessi mynd er af Douglas-flugvélaverksmiðjunum í Santa Monica í Californíu. Flugvélarnar sjást á renniborðinu og framleiðslan er nú meiri en nokkru sinni áður. Verksmiðjan framleiðir nálega eingöngu árásar- og sprengiflugvélar og í henni starfa dag og nótt 18 þús. manns. Fótbrotinn hundur. Hundurinn, sem þessi mynd er af, heitir Pétur og er á spítala í Boston. Hann varð fyrir bíl og fótbrotnaði á báðum fram- fótunum, og er nú í gipsi. ÞÁTTUK 1 k sögu ALÞIN GISKOSNIN G A. Framh. af bls. 4. Það, sem einkum mun hafa riðið bagga- muninn, er að lokum skyldi velja milli Lárusar og Þórðar var uggur ýmsra kjósenda um afstöðu Lárusar til sjálf- stjórnarmálsins, svo og að hann var einn af hálaunamönnunum. Lárus Sveinbjörns- son hafði að vísu lítt eður eigi tekið þátt í stjórnmálum, er hér var komið, en það var kunnugt að kjörfaðir hans, Þórður Sveinbjörnsson, var einn harðsnúnasti mótstöðumaður Jóns Sigurðssonar á fyrstu ráðgjafaþingunum og á þjóðfundinum. Á þingárum sínum (1885—97) var Lárus Sveinbjörnsson jafnan mjög íhaldssamur í afstöðu sinni til stjórnarskrármálsins, þó vildi hann ekki ganga til liðs með frum- varpi dr. Valtýs 1897, og var þá ekki end- urskipaður þingmaður. — Að öðru leyti var hann mikilhæfur maður. Þeir Th. Thorsteinsson og Þórður Magnússon áttu sæti á Alþingi árin 1881, ’83 og ’85. — Var Þórður einkum hafður að skotspæni sem þingmaður. Það er í al- mæli að Þórðar saga Geirmundarsonar eftir Benedikt Gröndal sé stíluð upp á Þórð. Vitanlega verður sú bók ekki alvar- lega tekin. — Lætur nærri að setja megi söguna á bekk með flimgreinum þeim — og skopmyndum — sem birtast í Speglin- um. Þórður var vitanlega lítt fallinn til þing- mennsku, og í því efni hafa fyrr og síðar ýmsir þingmenn átt sammerkt við hann, en hann virðist ekki hafa framið þar neina teljandi skissu, né unnið þar tjón á neinn hátt. Ekkert var skoplegt við Þórð. — Þvert á móti sómdi hann sér vel í útliti. Hann var mikill maður vexti, gildvaxinn og ramur að afli, mikilleitur og svipmik- ill. Hann bjó jafnan við þröngan fjárhag og búnaðist lítt, enda hafði hann löngum fyrir stórri fjölskyldu að sjá, og átti mörg börn. Fyrri kona hans hét Guð- rún Magnúsdóttir og var hún þá ekkja eftir séra Arnór í Vatnsfirði. — Síðar kvæntist hann Guðríði Hafliðadóttur. Þórður bjó fyrst að Hvítanesi, síðan á Borg í Skötufirði og loks mörg ár í Hatt- ardal. — Síðast reisti hann nýbýli innan við Skarð í Skötufirði, byggði þar smáhýsi úr timbri með grjótveggjum til hliða og nefndi Þórðareyri. Er nú það býli fyrir all- löngu komið í eyði. — Geta má þess að Þórður virðist mjög lítil afskipti hafa haft af héraðsmálum Isfirðinga, og ekki sézt hans getið þar til neins konar forgöngu. Þórður fór til Ameríku 1893, ásamt konu sinni og tveim eða þremur uppkomn- um börnum, þá aldraður og fjárþrota. — Lézt hann þar 7. apríl 1896, 67 ára að aldri. Th. Thorsteinsson hafði framast all- mikið og var vel að sér í sumum efnum. — Þeir Þórður voru bræðrungar, og feður þeirra sr. Þorsteinn í Gufudal og sr. Magnús í Ögurþingum, báðir prestar. Þorsteinn réðst kornungur til verzlunar- náms ytra og var síðan við verzlun hjá Thorsteinsson eldra bróður sínum, síðast bónda í Æðey, en hann var faðir þeirra Daviðs héraðslæknis og Th. Thorsteinsson kaupmanns í Reykjavík. — Nefndu þeir bræður sig ávallt Th. Thorsteinsson og svo er Th. Th. nefndur í Alþingistíðindum. — Th. Thorsteinsson var og lengi við verzlun í Danmörku og þaðan flutti hann til Isa- fjarðar og setti þar á stofn brauðgerðar- hús 1870, hið fyrsta á Vesturlandi. Var hann jafnan nefndur Thorsteinsson bakari, en hafði þó ekki numið bakaraiðn, né fékst við bökun sjálfur. Smáverzlun hafði hann jafnan, jafnframt brauðsölunni. Hann fékst og við ýmsar framkvæmdir aðrar, svo sem síldveiðar með landnótum og þil- skipaútgerð síðari árin. Var hann á sín- um tíma einn af framtakssömustu borg- urum Isafjarðar. Lengstum átti hann sæti í bæjarstjórn. — Th. Thorsteinsson var kvæntur danskri konu, er hét Amalie. Börn þeirra voru: Hjálmar, er drukknaði skömmu eftir lát föður síns í ísafjarðar- polli, Ingibjörg, er átti Sigfús Bjarnason konsúl, Anna kona Nikolaj Bjarnason og Gunnhildur, er rak ljósmyndastofu um skeið í Rvík, og eru þær enn á lífi. Frú Amalie rak brauðgerðina í nokkur ár, en seldi síðan Finni Thordarson, bróðursyni Th. Thorsteinsson. Hefir það nú um mörg undanfarin ár verið í eign og umsjá Tryggva Jóakimssonar konsúls og nefnist nú Gamla bakaríið. Seint á hausti 1888 ákvað Th. Thor- steinsson að sigla til útlanda og hafði ákveðið að fara landveg til Reykjavíkur í því skyni að komast með póstskipi þaðan. Hafði hann útbúið sig til landferðarinnar, og hugðist þegar að leggja af stað, en skyndilega, sumir segja daginn áður, hætti hann við það áform og tók sér far með seglskipinu Johanne, er lagði af stað frá Isafirði 18. nóvember, en til þess skips hefir aldrei spurzt síðan. Svör við spurningum á bls. 2: 1. Hin yndislega. 2. Friðþjófur Nansen á hinni frægu skiðaferð sinni 1888. 3. Magnús Jónsson. 4. Melbourne. 5. 10. maí 1940. 6. Hann nam land frá Berjadalsá til Urriðaár og bjó að Bekansstöðum. 7. 1 Búastríðinu (1899—1902) stofnaði Baden- Powell majór hjálparsveit drengja í borginni Mafeking, sem varð að þola 217 daga umsát- ur. Þessi sveit gerði svo mikið gagn, að Baden-Powell fékk upp úr því hugmyndina að hinni alþjóðlegu skátahreyfingu. 8. Forleikur og eftirleikur. 9. Lagið eftir Schubert, ljóðið eftir Goethe. 10. Gerpir.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.