Vikan


Vikan - 14.11.1940, Page 14

Vikan - 14.11.1940, Page 14
14 VIKAN, nr. 46, 1940 kostaði mig heila andvökunótt að gera það upp við sjálfa mig, hvort ég ætti að gera það eða ekki. Og því lengur sem ég hugs- aði um það, því betur sá ég að það myndi vera réttara. Sjáðu nú til, ég hugsaði sem svo: Þau eru betri manneskjur en ég, telp- unni líður sennilega eins vel og máske bet- ur hjá þeim en mér, hún hefir meira ör- yggi. Hún myndi sakna mín fyrst í stað en það hlyti að fyrnast yfir það. Hún var strax orðin hænd að þeim, þó að hún vildi reyndar helzt vera hjá mér. Þar að auki var það vel gert gagnvart foreldrum mín- um. Þau myndu hafa óendanlega mikla ánægju af elsku litlu telpunni minni. Það var bara ég sjálf, ég gat varla hugsað til þess að skilja við dóttur mína. Samt ákvað ég að skilja hana eftir. Og nú segi ég þér: Ég gerði það einungis vegna foreldra minna og vegna dóttur minnar, ekki mín vegna, ekki til þess að eiga kost á að lifa frjálsara lífi hér í Reykjavík. Ég hefði miklu fremur sjálf kosið að hafa hana hjá mér. Það var sárt að sjá af henni fyrir fullt og allt, því fyrst ég á annað borð skyldi hana eftir verður hún þar alla bernsku sína. Trúir þú mér? Karl hafði fyrirframhugsað svar á reiðum höndum: — Ég get ekki hugsað mér, að hægt sé að flytja ósannindi með eins dásamlegum vörum og vörunum þínum. Danslögin hljómuðu frá grammófónin- um og tvö pör dönsuðu á gólfinu. f einu horninu sat lögfræðinemi og söng drafandi röddu með dömuna sína á hnjánum. En læknirinn var enn þá að tala og baðaði út höndunum til áréttingar orðum sínum. Æ, hvers vegna geturðu ekki svarað mér í alvöru, eins og ég bað þig um? sagði Sig- ríður og stundi við. Þú skilur mig ekki. Ég veit ekki hvers vegna, en síðasti dag- urinn hjá dóttur minni stendur mér einmitt svo ljóslifandi fyrir hugskotsjónum núna. Aumingja telpan mín elti mig hvert sem ég fór allan daginn, þegar ég var búin að segja henni, að ég ætlaði að fara en hún ætti að verða eftir hjá afa og ömmu. Hún ríghélt sér í kjólinn minn og sagðist ætla að fara með mér. Veslings litli anginn, og svo skrifaði mamma mér, að hún vildi ekki trúa því, að ég væri farin og væri stundum að leita að mér um allt túnið. Karl ræskti sig. Honum fannst hann vera búinn að heyra meira en nóg um þenn- an telpuanga. — Mætti ég ekki sækja glösin okkar. Hann reyndi að vera kátur og segja brandara. Og Elías læknir kom vaggandi til þeirra og helti í glösin þeirra aftur. Þau dönsuðu og Karl söng. Eftir því sem vínið sveif meira á hann því starsýnna varð honum á andlit hennar. Þau settust aftur á legubekkinn. — Þú hefir guðdómlegar varir, Sig- ríður. — Þvættingur, svaraði hún og hló. En nú var tækifærið. Hitt fólkið var allt önnum kafið við að skoða gullfiska lækn- isins úti í einu horninu (hann hafði fengið þá í Þýzkalandi eins og fleira gott). Karl lagði hægri handlegginn um mitti hennar en með vinstri hendinni lyfti hann undir litla og snotra hökuna. Honum fatað- ist venjulega ekki þessi tök fremur en æfð- um fagmanni í iðngrein sinni. Svo laut hann ofan að henni til þess að kyssa hana. En á sama augna-bliki varð honum litið á gólfið við hlið hennar. Þar stóð lítil telpa, á að gizka þriggja til f jögra ára, og hélt á hnefafylli af kjólnum hennar í litlu hönd- unum sínum. En það skrítna var, að hún var rennandi vot frá hvirfli til ilja. Vatnið lak úr fötunum hennar. Hann starði á sýnina nokkur augna- blik, þangað til hún hvarf eins og reykur. Þá hneig hann aftur á bak í legubekkinn náfölur í andliti. Sigríður roðnaði. Af hverju lét maður- inn svona? Var hann orðinn svona drukk- inn ? Hún stóð á fætur og gekk yfir til hins fólksins til þess að skoða gullfiskana. Karl strauk svitann af enni sínu með handarbakinu. Var hann virkilega svo drukkinn að hann sæi ofsjónir? Eða var þetta yfirnáttúruleg sýn, sem honum hafði birzt? Skyldi dóttir hennar vera dáin? Hvort sem var skyldi hann ekki segja nokkrum frá þessu, allra sízt Sigríði. En nú langaði hann ekki til þess að kyssa hana lengur. Hann var meira að segja hálfhræddur við að koma nálægt henni. # • Þetta sama kvöld stóðu gömul hjón inni í litla bænum sínum í afskekktum og frið- sælum f jalladal yfir líki dótturdóttur sinn- ar. Hún hafði drukknað í bæjarlæknum. Er hægt að hugsa sér meiri hryggðarsjón en tvær gamlar manneskjur yfir líki barns- ins, sem þær elskuðu meira en nokkuð annað í lífinu, eina sólargeislanum í til- veru þeirra? Hún kom eins og bjartur sól- argeisli inn í hálfrökkur hins tilgangslausa lífs þeirra og fyllti það yl og birtu, veitti því tilgang. En nú hafði þessum sólargeisla verið kippt burtu og eftir varð bikávart myrkur. — Drottinn minn almáttugur, hví legg- ur þú þessa byrði á herðar okkar? sagði hún, og tárin streymdu niður skorpnar og innfallnar kinnar hennar og hröpuðu ofan á lík barnsins. Bóndi hennar draup höfði. Þetta var í fyrsta sinn frá því hann var barn, að hann hafði grátið. En hann sagði ekki neitt. Hryggð mannsins nær hámarki sínu, þeg- ar hann getur ekki talað. Hún hefir verið að leita að mömmu sinni. Skyldi hún vera búin að finna hana? Einhvers staðar í fjarska vall spói og lamb jarmaði uppi í hlíðinni. Svo fylltist umhverfið ömurlegri þögn. Erla og unnustinn. Innheimtumaðurinn: Ég er búinn að fara svo margar ferðir hing- að með þennan rafmagnsreikning, að ef þér ekki borgið núna, verð- ur strax lokað fyrir strauminn. Oddur: Ég skal borga á morgun, ef þér viljið koma þá. Innheimtumaðurinn: Ég skal koma á morg- un, en þér verðið Ijóslausir þangað til þér eruð búnir að borga. Oddur: En hvað menn geta verið misk- Erla: Elsku Oddur minn! Ég hringdi bara til þess að segja Oddur: Ha? Hvað ertu að gera? Siturðu unnarlausir! þér frá því, að ég sit hérna í myrkrinu og er að horfa á ímyrkrinu? Og það er alveg eins með mig, tunglið. Það er svo fallegt núna. elskan mín!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.