Vikan - 07.08.1941, Side 4
4
VIKAN, nr. 32, 1941
nú eru bönnuð. Sigurvegarinn átti að taka
þann yfirunna og kasta honum þrisvar til
jarðar. I hnefaleikunum höfðu mennirnir
leðurólar vafðar um hendurnar. I þær voru
festar plötur úr hörðu kjarnaleðri. Hnefa-
leikamennirnir vroru ekki fríðir; einn er
með útflatt nef, annar hefir misst allar
tennurnar, allir eru þeir meira eða minna
afmyndaðir eftir fyrri viðureignir. Bardag-
inn byrjar og blóð og sviti drýpur af
keppendunum, en áhorfendurnir æpa og
hrópa.
Þessum hluta leikanna líkur með mjög
grimmilegum leik, sem nefndur var ,,Pan-
kration" og er sambland af hnefaleik og
glímu. Kependurnir berjast me, öllum hlut-
um líkamans: höndum, fótum, olnbogum,
hnjám, hálsi og höfði. Þeir mega sparka,
bíta og jafnvel reka augun úr mótstöðu-
manninum. Oft höfðu þessir leikar dauð-
ann í för með sér.
Nú er fjórði dagur leikanna runninn
upp. Þá er aðal-hátíðin: Kappreiðar með
vagna og leikarnir fimm. -
Kappreiðarnar eru háðar á ferhyrndri
braut um morguninn. Vagnarnir eiga að
fara 4600 m. og eru það 12 ferðir í kring-
um völlinn. Þetta var leikur, sem hinir
tignustu menn stóðu að. Furstar og auð-
menn sendu gulli búna vagna. Duglegir
ökumenn voru mjög kaupháir og hestarnir
voru heldur ekki gefnir.
Vagnarnir þjóta af stað, svipurnar
hvína, rykið þyrlast upp og svitinn streym-
ir niður andlit ökumannanna. Að lokum
er 12. umferðinni lokið og sigurvegarinn er
hylltur.
Síðan hefjast leikarnir fimm. Þeir voru
kallaðir „leikar hinna fögru manna“. Þess-
ir leikar voru hlaup, stökk, kringlukast og
glíma. Þeir kröfðust aliir jafnt krafta,
lipurðar, hraða og þols.
* ■
Leikunum er lokið, eftir er að afhenda
sigurvegurunum lárviðarsveigana. Það er
gert í hofinu á 5. deginum fyrir framan
líkneskið af Seifi. Kallari hrópar mettöl-
umar, sem keppendurnir hafa náð, og
verðlaunin eru veitt. Nafn sigurvegarans,
föður hans og fæðingarbær er kallaður
upp. Mennirnir koma, hver á fætur öðrum,
með hvít bönd um enni og sveigarnir eru
settir á hÖfuð þeirra. Síðan ganga þeir að
einu af 70 ölturum Seifs og færa honum
þakkarfóm. Um kvöldið er veizla í ráðhús-
inu fyrir sigurvegarana og vini þeirra.
Næsta dag halda allir heim. Þar bíða
sigurvegarans enn hátíðlegri móttökur.
Fyrir utan hliðið em allir borgarbúar sam-
ansafnaðir. Skrautvagn með fjórum hvít-
um hestum flytur sigurvegarann að hofinu
og þar leggur hann sigursveiginn á altarið.
Um kvöldið er haldin hátíð til heiðurs hon-
um. Ólympíu-sigurvegari gleymist aldrei.
Hann þarf aldrei að borga skatt. I Spörtu
naut hann þess heiðurs að fá að berjast
við hlið konungsins í stríði. I Aþenu fengu
þeir að borða ókeypis í ráðhúsinu aila æfi.
Menn úr öllum stéttum streyma til Ólympíuleikanna allsstaðar að úr Grikklandi.
£ t Helgi lundurinn, endurteiknaður með hofum, Seifshofinu o. fl.
Málverk á skrautkeri af grískum hlaupurum.