Vikan


Vikan - 07.08.1941, Síða 6

Vikan - 07.08.1941, Síða 6
6 VIKAN, nr. 32, 1941 Veiðigyðjctn DIANA. Leon kallaði á Bon Bon inn á skrif- stofu sína. ,,Ég hefi smávegis handa þér að gera,“ sagði hann. „Reyndu nú að taka eftir, því að þetta er áríðandi.“ „Já, ég skal reyna,“ sagði Bon Bon og setti upp svip, sem hann vonaði að væri gáfulegur. Hann vissi, að Leon var mjög duglegur maður. Hann fann ótal smávik fyrir Bon Bon og borgaði honum vel fyrir það. Leon var í orði kveðnu bókhaldari, en í raun og veru verzlaði hann með stolna muni. „Það er ungur maður að nafni Calignac," sagði Leon mjög hægt og greinilega, „sem er ekki alveg eins mikill fáráðlingur eins og þú, en slagar þó hátt upp í það. Hann þarf að fá peninga. Hann vantar þá mjög tilfinnanlega. Annars verður hann tekinn fastur fyrir skuldir. Hann á ríkan frænda og frænku, sem hafa ekki allt of háar hug- myndir um hann, og ef svona fer fyrir honum, þá eru þau vís til að strika hann út af erfðaskránni. En það eru skartgripir geymdir þar í peningaskáp í veggnum. Calignac kann ekki að opna hann og er hræddur við að reyna það, og það eigum við að hjálpa honum við. Calignac kemur öllu fyrir, en þú opnar skápinn og svo fá- um við hluta af þýfinu. Skilurðu það?“ Bon Bon vissi, að hann var heimskur — þeir voru ekki svo fáir, sem höfðu sagt honum það — en leikni hans við peninga- skápa var dæmalaus. Hann brosti breiðu brosi. s,Hvenær eigum við að byrja?“ spurði hann. „Þú verður að búa fáeina daga í íbúð Calignac,“ sagði Leon. „Hús frænda hans er við hliðina, og Calignac getur sent þig út, þegar tækifæri gefst. Þetta er mjög góð íbúð. Þú mátt ekki brenna allt með sígarettum og sparka í húsgögnin. Reyndu að koma prúðmannlega fram. Og þvoðu þér við og við, það drepur þig ekki.“ Gerard Calignac var ungur maður, hor- aður og fölleitur. Hann horfði á Bon Bon með augljósum viðbjóði, þegar þeir hitt- ust. Það gerði ekkert til; Bon Éon var van- ur að vera fyrirlitinn og fótum troðinn, og hann var allt of hrifinn af íbúðinni til að taka eftir nokkru öðru. Hann trítlaði inn í dagstofuna, þrýsti húfunni fast að brjóstinu og horfði flóttalega í kring um sig. Calignae reigði sig og sagði: „Þér get- ið verið í herbergi þjónsins míns. Ég gaf honum frí í viku og kom því svo fyrir, að maturinn verður sendur upp til yðar, þar sem mér hefir skilizt, að þér eigið að halda kyrru fyrir hér, þangað til — eh, þessu litla verki er lokið.“ Hann leit á klunnalega fætur og stórar hendur Bon Bon og hreytti út úr sér: „Og í öllum guðanna bænum, brjótið þér ekki neitt!“ Bon Bon kinkaði sljólega kolli. En þegar hann var að stara í kring um sig, hafði hann komið auga á éitthvað, sem vakti Smásaga eftir Henri Duvernois. athygli hans. „Heyrið þér, herra minn,“ sagði hann aumingjalega, „hvað er þetta þarna?“ Calignac leit þangað, dlm Bon Bon horfði. „Ó, þetta! Það er líkneski af Díönu. Það er hræðilegt, en frændi minn gaf mér það, svo að ég get ekki hent því. Hérna eru vikublöð, bækur og spil handa yður.“ Það var óþarfa pappírseyðsla að fá Bon Bon vikublöð, bækur og spil; en það var öðru máli að gegna með líkneskið. Nú var það hann, sem leit á Calignac með fyrir- litningu. „Hræðilegt?” sagði hann. Hvernig gat manninum dottið þetta í hug. „Díana,“ sagði hann við sjálfan sig. „Það er, fallegt nafn, já, það er mjög fallegt nafn.“ Líkneskið stóð rétt fyrir innan hurðina í stofunni. Það sýndi Díönu ofurlítið minni en í líkamsstærð. Gríska veiðigyðjan stóð á tánum, rétt eins og hún svifi, kjóllinn var með belti og sýndi vel grannan líkams- vöxtinn, annar handleggurinn hékk niður með hliðinni, en hinum handleggnum hélt hún á lofti og hálf benti með fingrinum. Þetta var mynd af fallegri stúlku og ein- hvern veginn bar hún með sér allan yndis- þokka æskunnar. Eftir því sem dagarnir liðu, varð Bon Bon meira og meira hrifinn af líkneskinu. Það var engu líkara en einhver af fegurstu kvikmyndastjörnunum, sem hann hafði séð, væri stöðugt hjá honum í herberginu, nema hvað Díana var enn fegurri. Bon Bon vissi, að allir sögðu, að hann væri heimsk- ur, en einfeldningarnir eiga líka sína drauma og Díana hefði getað verið tekin beint úr leyndasta draumi hans. Fallegar varir hennar brostu stöðugt og augu henn- ar voru alltaf viðkvæm og hún hélt hand- leggnum alltaf útréttum — til hans, ef hann var á réttum stað. En þrátt fyrir þetta þorði Bon Bon ekki að nálgast hana fyrstu dagana. Hann var vanur að færa sig ofurlítið nær henni, þeg- ar Calignac var sofandi eða úti, og stóð þá í hæfilegri f jarlægð og horfði á drauma- dísina sína. Honum fannst, að ef hann kæmi nær, þá mundi Díana mótmæla því. Hvemig gat hann líka jafnazt á við hana? Ljótur, fyrirferðamikill og stirður uxi, nema auðvitað þegar hann var að opna peningaskápa. Það var ekki fyrr en á fjórða degi, að hann þorði að koma nær henni. Þann morg- un hafði hann líka gert dálítið einkenni- legt. Hann hafði þvegið allan líkama sinn. Það var sannarlega leiðinlegt verk, en ein- hvern veginn var það svo, að honum fannst Díana eiga það skilið. Daginn eftir þvoði hann sér öllum aftur, skjálfandi frá hvirfli til ilja. Ef til vill var það brjálæði, en það borgaði sig, því að sama kvöldið, þegar Calignac var farinn út, þá fékk hann að lokum kjark í sig til að ganga beint til Díönu og standa fast hjá henni — og horfa inn í augu hennar. Hún virtist horfa enn viðkvæmar en áður á hann. Hann hefði getað svarið, að ljós skini úr þeim, og með andköfum horfði hann á hendina, sem virtist benda á hann — hann einan. Hann var í sjöunda himni. Hann var hamingjusamari, en hann hafði nokkru sinni verið áður. En hrifningin fór út um þúfur. Calignac kom allt í einu inn í herbergið. Fölar kinn- ar hans voru nú rjóðar og augu hans leiftr- uðu. „Þau eru farin í leikhúsið," sagði hann æstur, „og þjónustufólkið á frí. Við gæt- um ekki fengið betra tækifæri, þótt við biðum í heilt ár. Ég opnaði gluggann í stof- unni, áður en ég fór út með þeim. Gætið þess nú að gleyma engu — ég á við arm- bandið, ennisdjásnið og smaragðafestina. Ég veit, að þetta er allt saman þarna, því að hún er ekki með neitt af þessu á sér. Hitt, sem er þar, er eintómt gamalt rusl; þér getið hirt það, ef þér viljið. En flýtið þér yður nú!“ Bon Bon tók á öllu, sem hann átti til, að koma aftur niður á jörðina úr skýja- borgum sínum. Hann bjó sig undir vanda- samt verk. Verkið sjálft var mjög einfalt. Hann smeygði sér inn um gluggann og fékkst við skápinn í hálfa klukkustund í skininu frá vasaljósinu sínu; þá gaf lásinn eftir og hurðin opnaðist. Hann sópaði innihald- inu út. Höfuðdjásnið, hálsmenið og arm- bandið setti hann í flauelispoka, sem hann hafði komið með sjálfur. Síðan athugaði hann hina munina, sem Calignac hafði kallað „gamalt rusl“. Hann kærði sig ekki um neitt af því, nema demantsprjón og gamlan, þungan gullhring, sem hann bjóst við að mundi vera éinhvers virði. Hann stakk þessu í vasa sinn og fór í skyndi eins og hann hafði komið.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.