Vikan - 07.08.1941, Side 8
8
VIKAN, nr. 32, 1941
Gissur tekur rögg á sig.
i
Frú Geirþrúður: Ó, góða, í yðar stöðu í þjóðfélag-
inu ættuð þér að hafa tvo kjallarameistara. Þeir,
sem voru hjá frú Axlaröxl eru atvinnulausir. Þér
ættuð að ráða þá til yðar.
Rasmína: Kæra frú, stórkostleg hugmynd. Hvar
get ég náð í þá?
Frú Geirþrúður: Látið mig um það. Ég skal láta
senda þá heim til yðar. Ég er viss um, að yður líkar
vel við þá. Þeir eru mjög fullkomnir við vinnu sína.
Rasmina: Ágætt! Látið þér þá fara beint heim.
Maðurinn minn verður heima til að taka á móti
þeim.
Rasmina: Já, elskan. Þeir koma eftir klukkustund.
Vertu heima, þegar þeir koma. Ég kem seinna.
Gissur: Kjallarameistara, hal? Jæja, ég
skal hræða þessa pilta, fyrst þeir vilja fá
vinnu hér.
Gissur: Heyrið þið! Ég get varla lynt við sjálfan mig. Það
er erfitt að gera mér til hæfis. Og ég er mjög skapríkur.
1. kjallarameistari: Það gerir ekkert til. Þér eigið ekki að
gera okkur til hæfis.
2. kjallarameistari: Við eigum að gera yður til hæfis, og ef
yður þóknast, þá mun það gleðja okkur að geta gert yður til
hæfis.
•*----------------------------- -----------------------------------
I
t
Gissur: Haldið þið, piltar, að þið getið matreitt
handa mér? Verið ekki með nein kjánalæti! Ég er
sérvitur með mat.
1. kjallarameistari: Og við eldum sérvitringslegan
mat. Er nokkur sérvitringslegur jafningur, sem yður
þykir góður?
2. kjallarameistari: Að sjálfum yður undantekn-
um?
Gissur: Þið eruð bara að eyða tímanum, með því
að fara inn í eldhúsið. Ég borða ekki það, sem þið
búið til. Ég sendi eftir lögreglunni!
1. kjallarameistari: Gerið þér það ekki strax. Sjá-
ið fyrst, hvemig yður líkar maturinn.
Gissur: Drottinn minn! Ég verð að dást að þessari
sprengdu uxabringu og toppkálið er framúrskarandi
gott.
1. kiallarameistari: Þakka yður fyrir, herra minn.
Ég vona, að þér hafið ákveðið að taka okkur. Og ef
svo er, hvað eigum við þá að fá í laun ?
1. kjallarameistari: Þér eruð prýðilegur! Við höfð-
um ekki gert okkur vonir um svo há laun.
Gissur: Það er allt í lagi. Mér líkar vel við ykkur,
og nú verðið þið að heilsa frúnni.
2. kjallarameistari: Með svona há laun, þurfum við
enga frídaga.
Gissur: Rasmína, hér eru kjallarameistararnir, sem þú réðir. Gissur: Heyrið þið, piltar! Ég skal tvöfalda launin ykkar.
Rasmína: Ágætt! Láttu þá bíða í eldhúsinu. Ég hringi og segi þeim fyrir- 2. kjallarameistari: Nei, nei!
skipanir mínar. 1. kjallarameistari: Nei og aftur nei og nei að eilífu.