Vikan


Vikan - 07.08.1941, Qupperneq 10

Vikan - 07.08.1941, Qupperneq 10
10 VIKAN, nr. 32, 1941 Heimilið Matseðillinn. Saltfiskrönd. 50 gr. smjörliki, 60 gr. hveiti, % 1. mjóík, 4 egg, 200 gr. salt- fiskur, y2 teskeið sykur, pipar. Smjörlíkið er brætt, hveitinu hrært út í, þynnt út með mjólkinni og suð- an látin koma upp. Þetta gr kælt ofurlítið, eggjarauðunum, fiskinum, sem hefir verið hreinsaður frá bein- unum, roðið tekið af og hakkaður, kryddinu og þeyttum eggjahvitunum er bætt út í. Hringmót er smurt vel með smjörlíki og þakið innan með muldum tvíbökum. Síðan er deigið látið í mótið, svo að mótið sé rúm- lega hálffyllt. Mótið er sett inn i vel heitan ofn og bakað við fremur sterk- an hita í % úr klukkustund. Þegar hvolft er úr mótinu, er bezt að losa aðeins frá börmunum með hníf. Rétt- inn má borða með hrærðu smjöri eða einhverjum káljafningi. Rabarbarasúpa. % kg. rabarbari, 2% 1. vatn, % kg. sykur, 40 gr. kartöflu- mjöl, 2 eggjarauður. Rabarbaraleggirnir eru hreinsaðir, skomir niður og soðnir í vatninu i hálfa klukkustund. Þá eru þeir síað- ir frá og safinn settur aftur á elda- vélina. Þegar sýður, er kartöflumjöl- inu, sem áður hefir verið hrært út í ofurlitlu vatni, bætt út í. Eggjarauðurnar eru hrærðar með sykrinum, þangað til þær eru stifar. Þá er sjóðandi súpan þeytt út i þær. Eggjarauðunum má sleppa og er þá sykurinn bara settur út í. I Mynd þessi er af hinni fögru, 17 ára gömlu Anne Bullitt, dóttur William C. Bullitt, sem áður var sendiherra Bandaríkjanna í Frakk- landi. Myndin var tekin, þegar ung- frú Bullitt var kynnt í samkvæmis- lífi Philadelphiu. Yfir 1000 gestir voru í veizlunni. Ðökkblár útikjóll. Dökkblár litur er mjög í tízku nú sem stendur. Þetta er dökkblár úti- kjóll með hálflöngum ermum. Blúss- an gengur niður á mjaðmir en í mitt- inu era tekin lítil ,,lek“ og haft belti. Hún er hneppt alla leið niður. Krag- inn og uppslögin eru úr hvitu og bláu, þunnu, stífu efni. Pilsið er fellt allt í kring. Það má hafa pilsið heilt upp í mittið og láta blússuna ganga útyfir það, svo að hægt sé að nota pilsið eitt út af fyrir sig. Qleðjið vinina Kaupið smekklegar og ódýrar tækifærisgjafir r 1 Meðferð ungbarna. Skipting máltíða. Réttast er að bamið fái að borða 4 sinnum á dag með 3—4 tíma milli- bili. 1 meltinguna gengur talsverð vinna, sem tekur nokkrar klukku- stundir eftir hverja máltíð, og melt- ingarfærin þurfa helzt að fá nokkra hvíld eftir þetta starf. Það virðist þvi fremur auðskilið mál, hver fá- sinna það er, að vera alltaf að smá- troða í bamið hinum og þessum mat, hvað ofan i annað; maginn fær þá aldrei frið né hvíld, meltingin trufl- ast á margvíslegan hátt og upp koma hinir og þessir meltingarkvill- ar, sem oft á tíðum er illt við að fást. Auk þess venst bamið á þann óvana, að vera sífellt að troða upp i sig hinu og þessu af eintómri rælni. Af þess- um sökum er það ekki nema sjálf- sagt og rétt að hafa reglu á máltíð- unum. Strax og bamið fer að geta matað sig sjálft á að kenna því að borða, þriflega og snyrtilega. Það á ekki að venjast á að ryðja matnum upp í sig með áfergju og óskapagangi, láta allt of mikið upp í sig í einu, og missa svo og svo mikið niður á sig og á gólfið, jóðla matnum um andlit og hendur o. s. frv. Það kann að sýn- ast óþarfi, að minnast á þetta, og margar mæður máske vantrúaðar á, að það hafi nokkuð upp á sig að reyna að siða bömin svona snemma. Þessar vantrúuðu mæður þyrftu að sjá hve miklu má til vegar koma í þessum efnum með þolinmæði og festu frá fyrstu byrjun. Sama máli gegnir er bamið fer fyrst að geta setið til borðs; þá á að venja það á að borða snyrtilega, spilla ekki matn- um á dúkinn o. s. frv., og umfram allt að tyggja vel og vandlega. Það er vitaskuld, að foreldrarnir sjálfir verða að vera bömunum fyrirmjmd í þessu sem öðra, því að „það nema böm sem á bæ er titt“. Sumum börn- um hættir við að flýta sér allt of mikið að borða, til þess að geta kom- ist út eða farið að leika sér. Þau borða sig þá kannske ekki hálfsödd, en koma svo aftur eftir litla stund og vilja þá fá meira. Þetta er mesta skaðræði; maginn er þá í sífeldu erfiði og ofþreytist, maturinn meltist illa, og afleiðingarnar auðráðnar: meltingarkvillar, óregla á hægðum o. s. frv. Þau böm þrífast sjaldnast vel sem þetta hendir. 1 öllum tilbreyt- ingum um matartilhögun er bezt að stilla öllu hóflega, láta aldrei verða mjög snögg umskipti eða mikil í einu; aldrei má heldur hóta bömum til að borða þann og þann mat, sem þau máske hafa ólyst á. Þá er betra að beita lempni, og má þá langt kom- ast oftast nær. Þetta og þvilíkt verð- ur ekki kennt af bókinni, en sú mun reyndin á, að hverri móður verði bezt sýnt um að siða böm sín í þessu sem öðru. Gott er að böm læri sem fyrst að fara vel með matinn, skilja að hann kemur ekki fyrirhafnarlaust upp i hendur fólks, og að margt er umstangið sem móðirin þarf að hafa, og mörg fyrirhöfnin foreldranna til þess að sjá fjölskyldunni farborða. (D. Sch. Thorsteinsson: Bamið). Húsráð. Þegar hrufóttar, ógagnsæar rúður verða óhreinar, þá leggið þær á lá- réttan flöt og þurrkið þær vel með mjúkum klút og ræstidufti. Hreinsið vel báðum megin og fægið svo aftur yfir með þurram, hreinum og mjúk- um klút. Ef þér hafið ekki rjóma í kaffi við hendina, þá takið eggjarauðu, þeytið hana og látið eina teskeið af sykri og ofurlítið vatn út í. Látið síðan lítið eitt af þessu í hvem bolla og hellið kaffinu út í. * Nauðsynlegt er að þvo blómstur- potta að minnsta kosti tvisvar á ári. Auk þess verður oft að þvo þá til þess að ná burtu slímlagi, sem sezt á þá, og aftrar loftinu frá að komast í gegnum pottana inn að rótunum. * Skór verða oft rykugir i þurrk- um á sumrin. Manni líður því oft illa að koma inn til kunningja sinna. Þá er gott að hafa lítinn bursta í tösk- unni og bursta aðeins yfir skóna, þegar tækifæri gefst. HEILOSÖLUBIROÐIR: ÁRN! wÓNSSON, HAFNARSTR.5 WEYKJAVÍK

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.