Vikan


Vikan - 20.11.1941, Page 9

Vikan - 20.11.1941, Page 9
VIKAN, nr. 47, 1941 9 Bandaríkin eignast stœrsta loftfar heimsins. I-etta er stærsta loftfar heimsins, sem floti Bandaríkjanna á og- hefir í hyggju að nota við gæzlustarf. Myndin var tekin skömmu eftir að loftfarið kom úr reynsluferð, og sagði Knox hermálaráðherra að það hefði reynzt fullkom- ið. Það er 246 fet á lengd, kostaði 325 þús. dollara og mun verða utbúið tundurduflum, djúpsprengjum og vélbyssum: Yfirmaður frönsku kaupskipanna. Felix Arago skipstjóri er yfir- maður allra kaupfara „frjálsra Frakka“. Hann er nýkominn með skip sitt frá Afriku til Boston. — Hann er ættaður frá Baskahéruð- unum í Suður-Frakklandi. Stúlkur með vélbyssur. Frú Otis Lewis (t. v.) og Janet dóttir henn- ar sýna ljósmyndaranum, að þær kunni að fara með vélbyssur. Þær eru meðlimir kvennadeildar í Bandaríkjunum, sem lærir að fara með skotvopn undir handleiðslu lögreglunnar. Varnarsvæði Bandaríkjanna. Þetta kort- er af Atlantshafinu og álfunum, sem að því liggja. -— Vinstra megin punktalínunnar, sem dregin er frá austurströnd Grænlands, suður eftir hafinu, er vamarsvæði Bandaríkjanna samkvæmt því, sem Roosevelt hefir lýst yfir. Lagði hann svo fyrir, að hvert það skip frá möndulveldunum, sem sæist irrnan þessa svæðis, skyldi fyrirvaralaust skotið f kaf. Krossstrikaða svæðið er hafnbannssvæði Þjóðverja. Eins og sjá má á kortinu, grípa þessi tvö svæði hvort inn í annað á hafinu í kringum Island, enda munu árekstrar Ba'ndaríkjanna og Þýzkalands flestir hafa orðið þar. TJppskeran má ekki fara forgörðum. Þar eð allt allt of lítið er um karlmenn til að vinna að tóbaks- uppskeru í Lancaster County í Bandaríkjunum, hafa konur verið kvaddar til að stjóma dráttar- vélum og vinna á ökmnum. Á mynd þessari sjást þrjár systur og bróðir þeirra, og em þau öll önn- um kafin.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.