Vikan


Vikan - 09.07.1942, Page 10

Vikan - 09.07.1942, Page 10
10 VIKAN, nr. 23, 1942 u iri m ni i i in. nci i iii i LIU Matseðillinn. Blómkálssúpa. 2 1. vatn, % kg:. blómkál, 50 gr. smjörlíki, 50 gr. flórsykur, 1 egg, 1 eggjarauða, salt og pipar. Blómkálið er soðið í vatninu, þar til það er orðið meyrt, þá er það tekið upp úr vatninu og skipt í smá parta. Smjörlíkið er brætt í potti, hveitinu hrært saman við og þynnt út með soðinu af blómkálinu. Krydd látið í súpuna eftir vild. Eggið og eggjarauðan er hrært vel í súpuskál- inni, súpunni síðan hellt í skálina og blómkálið látið saman við. Kjötgratin. 250 gr. hakkað kjöt, 75 gr. smjör, 75 gr. hveiti, 3% dl. mjólk, 3 egg, salt og pipar. Smjör og hveiti er bakað saman og þynnt með sjóðandi soði eða mjólk. Þetta er kælt og eggjarauðumar látnar saman við, ein í senn. Hvít- umar eru stífþeyttar og þeim er var- lega hrært saman við deigið, krydd látið í eftir vild. Allt látið í smurt, eldfast fat, tvíbökumylsnu stráð yfir og smjörbitar látnir á, síðan er grat- inið bakað í vatni í einn klukkutíma. Borið fram með hrærðu smjöri. Eplakaka. 750 gr. epli, 300 gr. hveitibrauð, 75 gr. smjör, 75 gr. sykur, 100 gr. brætt smjör, 2 tesk. vanilla. Eplin eru þvegin vel, síðan soðin í litlu vatni, þar til þau eru orðin að þykkum graut. 75 gi;. smjör, sykur og vanilla er hrært saman við graut- inn. Hveitibrauðið er skorið í mjóar ræmur, 5 cm. langar og 2 cm. breið- ar. Skorpan er skorin af, ræmunum dýft ofan í brætt smjör. t-ekjið mót eða eldfast leirfat með þessum ræm- um þannig, að þær eru lagðar endi- langar í mótið upp með brúnunum, grautnum hellt í mótið, bakað i ofni % úr klukkustund, síðan kæíc og hvolft úr mótinu. Borið fram með þeyttum rjóma. Þessi dragt er samansett úr blá- gráu og köflóttu ullarefni. Pilsið er allt köflótt, en efsti hluti treyjunnar aðeins og hitt einlitt. Efsti hluti kragans er einnig köflóttur. Tveir bogadregnir vasar eru á treyjunni. Á pilsinu er ein lokafelling að framan, en það er alveg slétt að aftan. Húsráð. Ef fötin vilja renna út af herða- trjám yðar, þá skuluð þér setja gúmmítakka á enda þess, það heldur fötunum kyrrum á þeim. Til bragðbætis á vöflum er gott að láta rúsínur í deigið. Fyrst verður að þvo þær og þurrka, síðan klippa þær í tvennt eða þrennt með eldhússkær- unum og láta þær svo í vöfludeigið. Orðugleikar við skólanám. Kafli úr „Hagnýtri barnasálarfræði“. Það er mjög áríðandi frá hag- nýtu sjónarmiði, að menn geri sér i hverju tilfelli glögga grein fyrir or- sökunum til örðugleikanna hjá þeim börnum, sem mistekst skólanám. Hans er 11 ára gamall drengur. 1 viðræðum virðist hann mjög sinnug- ur og greindur, ákaflega liðlegur, ást- úðlegur og fimur í umgengni, og eftir frammistöðu sinni við prófanir okkar var ekki hægt að álykta ann- að en honum veittist 'létt námið í skólanum. En í þess stað er Hans mjög slakur nemandi og nær því lág- marki eínkunna, sem þarfnast til þess að vera fluttur milli bekkja aðeins með aukakennslu og stöðugu eftirliti, og, að því er virðist, með miklum erfiðismunum. Skólanámið er honum og fjölskyldu hans stakasta kvalræði. 1 skólanum lifir hann í draumum sín- um og fylgist ekki með því, sem fram fer. Af þeim ástæðum verður hann allan siðari hluta dagsins að streitast við að læra upp aftur það, sem hann átti að læra í skólanum. Þegar hann Einkeniii.sbúningur kvenna. Þessi búningur var til sýnis á tizkusýningu í Washington. Allir búningar á sýn- ingunni voru þannig, að sem minnst var notað til þeirra af efnum, sem herinn þurfti á að halda. kemst höndum undir, reynir hann að komast hjá þessum bannsettum lær- dómi. Hann var upp á síðkastið farinn að þegja um verkefni og skólavitnis- bui'ð til þess að losna við heimavinnu og áminningar. Hvað vill hann þá í stað þess, þegar hann kemur sér hjá skyldustörfum ? Hvað gerir hann, þegar hann er sjálfráður? Iðkar hann íþróttir, safnar hann frimerkj- um eða öðru, gerir hann við hluti eða situr hann einnig i tómstundum sin- um dreymandi og aðgerðarlaus ? Nei, ekkert af þessu. Hann leikur sér. Hann Ieikur sér að jámbrautum og býr til heilan heim utan um jám- brautir sinar, notar alls konar smá- vélar í þessum leik, dregur þær upp og lætur þær knýja vagnana og tím- unum saman fram fara margs konar flóknar samorkanir. Þessi leikur er enn mjög bamalegur, enn þrunginn. ræningja- og bardagahugarflugi, sem finna má í tjáningarleikjum bama á fyrstu skólaárunum, enn óvitrænn, felur í sér engin viðfangsefni og er fjarri öllum veruleika. Þetta bam skortir enn þroska til að eiga þau vitrænu áhugaefni, sem ætlazt er til af þvi. Að þvi er tekur til áhugaefna er það á lægra þroska- stigi en aldur þess segir til, en það er ekkert vandkvæðabarn, heldur aðeins seinþroska. Það verður aðeins að bíða síns tíma, að þau áhugamál, sem samsvara aldri þess, þróist með því. (Cr Charlotte Buhler: Hagnýt bamasálarfræði. Ármann Hall- dórsson skólastjóri þýddi. Útgef.: Ólafur Erlingsson). >»»»»»»»»»»»»1«

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.