Vikan


Vikan - 03.09.1942, Page 2

Vikan - 03.09.1942, Page 2
2 VIKAN, nr. 31, 1942 Pósturinn | hér önnum kafnir. Höldum vér, að bezt væri fyrir yður að bíða dálítið lengur með þetta. Svar til Maggý. Þér hafið á réttu að standa, Maggý. Mickey Rooney lék alls ekki í mynd- inni „Sjómannalíf“, þér getið sagt honum kunningja yðar það frá okkur. Svar til G. N. Nýlega var auglýsing í Morgun- blaðinu, þar sem Ingólfur S. Gíslason, Ingólfstræti 2, Rvík, sagðist hafa til sölu tvo sjónauka. Svar til „Áhyggjufull". Þetta ættuð þér bezt að geta gert upp við yðar eigin samvizku. Að okkar áliti er þetta alveg ófyrirgef- anlegt; en á þessu sem öðru er mis- jafnt álit manna. Yður hlýtur að líða illa í þessum tvöfalda iifnaði yðar, og við ætlum að biðja yður að minn- ast máltækisins, sem segir: „Upp koma svik um síðir“. Svar til „Sorgmædd". Ja, nú er úr vöndu að ráða. Þetta er meiri klípan, sem þér eruð þarna komin í. Hvernig væri að reyna að fara að vera með einhverjum öðrum pilti og vita, hvort sá fyrri verður ekki afbrýðisamur? Verði hann það ekki, er hætt við, að öll von sé úti og hann búinn að missa allan áhuga fyrir yður. En þér skuluð ekki gráta það, ekki eru allar bjargir bannaðar, þótt einn bregðist. Og eitt er það, að tíminn læknar öli sár. Eftir nokkra , mánuði skiljið þér kannske alls ekki, hvers vegna þér hafið verið að syrgja hann. Svar til E. T. M. B. H. Þetta er ævagömul venja hér á landi og hingað til hafa allir sætt sig við hana, en þið virðist vilja gera uppreisn. Það er mjög ósennilegt, að almenningur vilji taka til greina þessa uppástungu ykkar, en þið gettð auðvitað farið ykkar fram hvað ykk- ur sjálf snertir. Að okkar áliti er þetta mjög fjarstæð uppástunga. Svar til Braga. Það er nú sem stendur mjög slæmt og einnig dýrt að fá blöðin innbundin héma í Reykjavík, þar sem allir eru Svar til „Ógæfusömust allra“. 1. Það er sorglegt, að þér skuluð vera með bognar fætur, væna, en því miður er ekki nokkur leið fyrir okk- ur að rétta úr þeim. 2. Viðvikjandi kremi til þess að ná burtu hárum, skuluð þér snúa yður til næstu lyfjabúðar, eflaust mun fylgja því leiðarvísir um notkun þess. 3. Lítið í blöðin og reynið að taka ákvörðun samkvæmt auglýsingum þeirra, við treystum okkur ekki til þess. Svar til „Áhugasöm skólamær“. Því miður getum vér ekki veitt yður svar við þessu, og þykir okkur harla ólíklegt að nokkursstaðar sé til orðabók yfir ástralskt negramál. Höfum aldrei tekið að okkur að lesa nokkurn skapaðan hlut í skrift nokk- urs manns. Svar til Rydju. 1. Þér skuluð þvo hárið vandlega og nudda svo hárssvörðinn vel og rækilega með feitri hárolíu. 2. Eina ráðið gegn hármaðki er að svíða hárin í burtu; eftir á skal nudda hárið með pappírsserviettu til þess að ná sviðnu hárunum í burtu. 3. Það kemur ekki ósjaldan fyrir. Ellilaun og örorkubœtur Umsóknir um ellilaun og örorkubætur fyrir árið 1943 skal skilað fyrir lok septembermán- aðar. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu borgar- stjóra, Pósthússtræti 7, herbergi 26, 3. hæð alla virka daga kl. 10—12 og 2—5 nema laugardaga eingöngu kl. 10—12. Umsækjendur geta fengið aðstoð við að fylla út eyðublöðin á sama stað og tíma. Þeir eru sér- staklega beðnir að vera við því búnir að gefa upplýsingar um eignir sínar og tekjur frá 1. okt. 1941 og um framfærsluskylda venzlamenn sína (börn, kjörbörn, foreldra, kjörforeldra, maka). Þeir, sem sækja um örorkubætur fyrir árið 1943 og hafa ekki notið þeirra árið 1942 verða að fá örorkuvottorð hjá trúnaðarlækni Trygg- ingarstofnunar ríkisins. Þeir öryrkjar, sem notið hafa örorkubóta á þessu ári, þurfa ékki að fá nýtt örorkuvottorð nema þeir fái sérstaka til- kynningu um það. Trúnaðarlæknirinn verður fyrst um sinn til viðtals á lækningastofu sinni, Vesturgötu 3, alla virka daga nema laugardaga. Ef umsækjendur senda ekki umsóknir sínar á réttum tíma, mega þeir búast við því, að þær verði ekki teknar til greina. BORGARSTJÓRINN í REYKJAVÍK. Erla og unnust- inn. Erla: Hringdi Oddur í morgun, Stína? Erla: Það er vottur þess, að hann elskar Stína: Já, ungfrú, hann hringdi einu sinni, en ég hlýddi skipun yðar og mig ekki. Mér finnst hann hræðilegur. sagði, að þér vilduð ekki tala við hann. Copr. 1941, King Pcaturcs ilyndicalt, Inc., World rights renervci Oddur: Ég held, að vinir mínir hafi á réttu að standa. Ég á ekki að láta Erlu valda mér svona miklum áhyggjum. Ég er búinn að ákveða að gleyma henni. Oddur: Mér líður nú eiginlega miklu betur núna, síðan ég hætti að hugsa um hana. Vinnan er fyrir öllu, og ég ætla ekki að láta Erlu rugla mig svo, að ég viti ekki, hvað ég er að gera. Dyravörðurinn: Hvað ætlið þér að gera á skrifstofuna í dag? Það er sunnudagur. Oddur: Sunnudagur! Otgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður-; Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.