Vikan - 03.09.1942, Qupperneq 9
VIKAN, nr. 31, 1942
9
J>etta gerðu Japanir. Á myndinni
sést brezkur sjómaður, er særðist
i sjóorustu einhvers staðar á suð-
austur Kyrrahafi. Sífellt hafa
bandamenn gert árásir á Japani
á því svæði.
„Douglas MacArthur-blóm“. Mynd þessi
sýnir frú George C. Marshall, konu yfir-
manns ameríska hersins með nýja blóma-
tegund, sem kennd er við hetju Ameríku-
manna i þessu stríði, Douglas MacArthur.
■
Stúlkur sem bréfberar. Á mynd-
inni sjást ungar stúlkur, sem tóku
að sér bréfberastörf í Miami á
Florida, þegar póstmeistarinn til-
kynnti að sig vantaði starfsfólk.
Njósnarar Ameríkumanua i frumskógi. Á mynd þessari sjást nokkr-
:ir amerískir hermenn, með fiugnanet fyrir andlitinu i njósnarferð
á hollenzku Guineu. Þetta er fyrsta myndin, sem tekin var af
amerískri herdeild á hollenzku Guineu.
Astralskir skógarhöggsmenn í Skotlandi. Á myndinni sést ástralsk-
ur fulltrúi tala við ástralska skógarhöggsmannasveit í Skotlandi.
Hann horfði á þá fella tré og við vinnu í sögunarmyllum. Auk tré-
höggs taka þeir þátt í hemaðaræfingum.
\
Forseti Columbíu. Á mynd þessari
sést Alfonso Lopez, forseti Col-
umbía-fylkisins í Suður.Ameríku.
Hann hlaut þann stærsta kosn-
ingasigur, sem nokkur forseti þar
hefir hlotið. Hann er 68. forseti
Columbíu.
Merki fyrir skólabörn. Ákveðið er að láta öll skólaböm í New York
bera merki, sem á er ritað nafn barnsins og heimilisfang. Á mynd-
inni sést skólastúlka vera að sýna vinkonu sinni merki sitt.
Cordell Hull á Ieið til Hvíta húss-
ins. Á myndinni sést Cordell Hull,
ráðherra, á leið til Hvita hússins
á ráðstefnu við Marshall hershöfð-
ingja, Harry L. Hopkins og Roose-
velt Bandaríkjaforseta.
♦