Vikan


Vikan - 03.09.1942, Page 15

Vikan - 03.09.1942, Page 15
VIKAN, nr. 31, 1942 15 Er harn ydar ósannsögult? Framhaid af bis. 10. • er Ijótur hattur," finnið, að stundum má koma með „hvíta lýgi.“ Þér hafið á réttu að standa. Ég veit um eina móðir, sem skýrði það fyrir dóttur sinni, að henni mundi sennilega ekki falla það vel, ef vinstúlka hennar segði við hana: ,,Ég vil ekki leika mér við þig.“ Barnið skildi það, að það var stundum nauðsynlegt að leika sér við önnur börn, jafnvel þótt hann langaði ekki til þess. Stundum segir barnið ósatt, ein- ungis til þess að græða á því. I slík- um tilfellum verður móðirin að kenna þvi að taka tillit til annarra. Betty var sex ára, en Charlene fjögurra ára og var í bamagarði. Betty hafði verið mjög dugleg á fyrsta skólaári sínu og hrósuðu allir henni mjög. Brátt heyrði móðirin það, að Charlene fór að segja tröll- auknar sögur af gerðum sinum í barnagarðinum. Við athugun komst hún að því, að sögur þessar voru hreinasti uppspuni. Þessi vitra móðir ákvað að finna ástæðuna. Og hún fann hana. Undir eins og fjölskyldan sá, að Charlene vakti eins mikla at- hygli og Betty, hætti Charlene að segja þessar sögur sínar. Við rannsókn, sem gerð var í skóla einum, kom það í ljós, að foreldrar sannsögulla bama leggja meira upp úr „fordæmum" en foreldrar ósann- sögulla barna. Hlustið á símsamtal móðurinnar: „Ég er með svo mikinn höfuðverk, Eleanor. Getum við ekki frestað spila- kvöldinu þar til seinna? Mér þykir þetta leitt, en ég gæti alls ekki spil- að.“ Hún leggur heyrnartólið á og snýr sér að heimilisföðumum: „Kall- aðu nú á Betty og Bill, og við skul- um skemmta okkur eitthvað. Mér leiðist svo að hlusta á rausið í henni Eleanor." Pinnst ykkur það nokkuð einkenni- llegt, að fáum dögum síðar, þegar Dóra frænka er í heimsókn, segir -Janet, sem er fjögurra ára gömul, um morguninn að henni sé svo illt í maganum ? Móðir hennar sendir hana því ekki í skólann. Og er það einkennilegt, að klukkan tíu biður Janet um að mega fara með Dóru frænku út í bæ? Þetta er skemmti- legra en að fara í skóla, og Janet fer eftir fordæmi móður sinnar með þessu. Gætið þess einnig að hvetja ekki börn yðar til ósannsögli með spurn- ingum yðar. Þér takið eftir því, að kökur hafa horfið. „Jimmy, borðaðir þú kökumar?" Hreimurinn í rödd yðar og reiðisvipurinn bendir Jimmy á það, að bezt sé að segja ,,nei“ og hann gerir það. Og svo kemur leiðin- legt atvik, vegna þess að Jimmy hefir sagt ósatt. En sökin er ein- göngu yðar. Ef þér hefðuð sagt: „Jimmy, ég vildi, að þú hefðir ekki tekið þessar kökur. Næst, þegar þig og vini þína langar í kökur, þá skul- ið þið koma til mín, og ég mun reyna að finna eitthvað handa ykkur“ —- þá er öllu sennilegra, að Jimmy hefði ekki neitað þessu. Hér em fjögur atriði, sem mér finnst nauðsynleg, til þess að kenna bömum að meta gildi sannleikans: 1. Ásakið ekki barnið um ósann- sögli, þar til þér eruð vissar um, að það hafi á röngu að standa. Ekkert mun frekar knýja það til þess að segja sannleikann en það, að það veit, að þér treystið því. 2. Látið ekki barnið sleppa með ósæmilega ósannsögli. Ef það segir, að því sé illt í maganum, látið það þá fara að hátta. Ef því var ekki illt í maganum, er ósennilegt, að það reyni þennan prett aftur. 3. Látið börnin ekki freistast til þess að segja ósatt. Það er mikil freisting fyrir börnin, þegar þau sjá peninga, að taka þá og kaupa sér sælgæti. 4. Neyðið ekki bamið til ósann- sögli. Hve oft hafið þér heyrt bam neytt til þess að segja: „Mér þykir það leitt,“ þegar bæði barnið og móðirin vita, að það er alls ekki svo? Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Auglýsingaverð Vegna sívaxandi útgáfukostnaðar hafa út- gáfustjórnir undirritaðra blaða ákveðið að | hækka verð á auglýsingum frá 1. september n. k. í kr. 5.00 eind. cm. — Jafnframt verður lækkaður afsláttur á auglýsingaverði þannig: Áður 50% nú 30% — 33ys% nú 20% — 25% nú 15% Reykjavík, 29. ágúst 1942. Morgunblaðið, Isafold og Vörður, Vísir, Alþýðublaðið, Þjóðviljinn, Vikubl. Fálkinn, Heimilisbl. Vikan. KnpÉin H. Sjálfsævisaga byltingarmanns. ÆVISAGA KRAPOTKINS fursta hefir verið talin ein hin gagnmerkasta og bezt gerða sjálfsævisaga heimsbókmennt- anna. Fáum hefir gefist kostur á að skýra frá viðburðaríkari æviferli, enda tekur hann fram flestu því, er gerist í ævin- týralegustu skáldsögum: Aðalborinn af tignustu ættum Rússlands. Barn í grímubúningi við hásætisskör Nikulásar keisara fyrsta, sofandi 1 keltu keisaradrottningarinnar, er síðar varð. Hirðsveinn við hlið Alexanders annars — þess albúinn að leggja lífið í sölurnar fyrir hann. Landkönnuður og vísindamaður á heimsmælikvarða á hinni miklu vísindaöld og jafnframt uppreisnarmaður gegn öllum viðurkenndum stjórnmálakenningum um samfélag manna. Einn tíma dags- ins í tildurslegustu hirðveizlum í Vetrarhöll keisarans og annan í dularbúningi í úthverfum borgarinnar boðandi fátæk- um verkamönnum byltingarkenningar. 1 fangelsi í Rússlandi kominn að dauða úr harðrétti og skyrbjúg. Hinn bíræfnasti flótti úr fangelsinu og úr landi. Um langan aldur bláfátækur landflótta rithöfundur í Vestur-Evrópu, umsetinn af njósn- urum zarsins, árum saman í fangelsi, jafnvel gerðir út menn til að myrða hann. Stórgáfaður og hálærður maður með yfir- sýn yfir öll viðfangsefni mannlegs anda og heimsfrægur fyrir rannsóknir sínar og ritmennsku. En á allt annað skyggir fágætur persónuleiki hans og göfugmennska, sem- naumasi hefir átt sinn líka. Af hverri línu bókarinnar andar bla mannúðar, réttlætiskenndar, drengskapar og frelsisástar, og á boðskapur höfundar sérstakt erindi til yfirstandandi skálm- aldar ofstjórnar, mannfyrirhtningar, ofbeldis og kúgunar. BÓKAVERZLUN ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllll!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.