Vikan - 25.11.1943, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 47, 1943
Pósturinn
Kæra Vika!
Þú upplýsir svo margt í spurninga-
dálki þínum. Viltu nú vera svo góð
að fræða mig á eftirfarandi:
Hvað ber prestum Þjóðkirkjunnar
fyrir eftirtöld prestsverk með núver-
andi verðlagi: 1. Barnsskírn. 2. Ferm-
ingu. 3. Giftingu. 4. Greftrun með
ræðu i kirkju og án ræðu — Hús-
kveðju. 5. Þjónusta í heimahúsum.
5. Önnur aukaprestsverk, sem greiða
ber fyrir.
Fastur kaupandi Vikunnar
í Reykjavík.
Svar: Samkvæmt gildandi gjald-
skrá fyrir aukaverk sóknarpresta
útgefinni af dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu 16. febr. 1942, ber prest-
um gjald fyrir aukaverk sem hér
segir:
1. Fyrir barnsskírn .... kr. 10.00
2. Fyrir fermingu ........ — 30.00
3. Fyrir hjónavígslu ..... — 20.00
4. Fyrir greftrun (líksöngs-
eyrir) ............... — 15.00
5. Fyrir vottorð í embættis-
nafni ................. — 2.00
Fyrir ræður fluttar við hjónavígsl-
ur eða jarðarfarir ber presti sérstök
greiðsla, eftir efnum og ástæðum
hlutaðeigenda.
Ekki er litið svo. á, að presti beri
sérstök greiðsla fyrir að þjónusta í
heimahúsum eða fyrir sjúkravitjanir,
en ferðakostnað ber að greiða prest-
inum, þegar hans er vitjað, bæði til
þessara og annara aukaverka.
Kæra Vika!
Nú langar mig tii að spyrja þig
um ættarnöfn:
Nú heitir maður til dæmis Jón
Ármann og er Hansson. Er honum þá
heimilt að breyta nafhi sínu þannig:
Jón Hansson Ármann eða þá Jón
Ármann og sleppa föðurnafninu ? —
Segjum sem svo að Ármanns-nafnið
finnist ekki í ætt hans, en hafi bara
verið skírður svona „út i bláinn“.
Er honum þá heimilt að taka sér
Ármanns-nafnið fyrir ættarnafn ?
Heð beztu kveðju og fyrirfram
þakklæti. Guðm. Kr.
Svar: Upptaka nýrra ættarnafna
var bönnuð með lögum árið 1925.
Kæra Vika!
Við erum héma tvær systur, tví-
burar, sem langar til þess að læra
að syngja. Við höfum svo að segja
alveg eins raddir, nema ég (sú sem
skrifar) hef meira raddsvið. Eg hef
sungið allar raddir i barnakór frá
fyrsta sópran, niður í annan bassa.
Við höfum verið í kórum frá því við
vorum tiu ára en aldrei notið neinn-
ar söngkennslu og langar okkur til
þess að biðja þig að svara nokkrum
spumingum um söngkennara:
1. Ætli það sé hægt að fá tíma
hjá Sigurði Birkis?
2. Hvar er hægt að ná tali af hon-
um og hvenær?
3. Hvað er símanúmer hjá Guð-
rúnu Þorsteinsdóttur söngkonu frá
Akureyri ?
Vertu svo sæl og ég vona eftir
svari sem fyrst (helzt í næsta blaði).
Systur frá Fáskrúðsfirði,
nú staddar í Reykjavik.
Svar: Það er bezt fyrir ykkur, að
tala við Sigurð Birkis sjálfan um
Sæmdur heiðursmerki eftir árás á Japani. Yfirmaður 7. flugdeildarinnar W.
H. Hale festir pálmagrein á barm R. E. Lambert fyrir þátttöku hans í
árás á Japani einhversstaðar á Kyrrahafinu.
Glœsileg búð
Blómaverzlunin Flóra flutti nýlega í Austurstræti 8, en þar var áður Isa-
foldarprentsmiðja, og hefir þar verið gerð ein glæsilegasta sölubúðin í bæn-
um. Er gaman að því, að íslenzkir iðnaðarmenn skuli leysa verk sín svo vel
og snyrtilega af hendi, eins og þar má sjá. Böm Sigurðar heitins búnaðar-
málastjóra, Ragna og Ingimar, stofnuðu verzlunina 1932 og var hún fyrst á
Vesturgötu 17, flutti árið 1935 í Austurstræti 1, en fyrir fimm ámm í Aust-
urstræti 7 og hefir verið þar þangað til nú. Ungfrú Ragna tók ein við rekstri
verzlunarinnar 1940. Húsnæði þetta er miklu stærra en það, sem Flóra
hafði áður.
þetta, hann mun gefa ykkur allar
nánari upplýsingar þessu viðvíkjandi.
Símanúmerið hjá honum er 4382.
Því miður höfum við ekki getað
aflað okkur upplýsinga um hvaða
símanúmer Guðrún Þorsteinsdóttir
frá Akureyri hefir.
7. nóvember 1943.
Kæra Vika!
Viltu gjöra svo vel og svara spurn-
ingum mínum:
1. Er Vibratorinn í straumbreytar-
anum ónýtur eftir þær 1200 klukku-
stundir sem hann á að duga?
2. Fæst nýr Vibrator?
3. Hvað kostar hann?
Fyrirfram þökk fyrir svarið.
Útvarpshlustandi.
Svar: 1. Já, það mun vera, þetta
er meðal endingartími, annars er um
margar gerðir Vibratora að ræða.
2. Þeir fást ekki núna, en von er
á þeim hjá Viðtækjaverzlun ríkisins
eftir áramótin.
3. Það fer eftir gerð.
Rvík, 18. nóvember 1943.
Kæra Vika!
Ég hefi veitt því athygli að þú
leysir ótrúlega vel og fljótt úr vanda
lesenda þinna.
Nú langar mig til að biðja þig
um hjálp. Ég hefi heyrt að ensku-
kennari Alþýðuskólans kenndi sér-
staklega vel ensku, nú langar mig
að vita hvað hann heitir og hvort
hann muni geta tekið fleiri i skóla-
tímana eða hvort hann taki nokkra
„prívat" tíma. Einnig langar mig til
að vita hvort það á að tala við hann
um þetta eða skólastjóra skólans
Skúla Þórðarson magister.
Þakka væntanlegt svar.
Virðingarfyllst.
n. þ.
Svar: Enskukennari Alþýðuskól-
ans er Jón Ingimarsson. Hann kvaðst
ekki geta sinnt því, að kenna í
„prívattímum", þar sem hann hefir
kennslu á hendi annarsstaðar en í
Alþýðuskólanum. En reynandi er fyr-
ir yður að tala við skólastjóra skól-
ans, Skúla Þórðarson, ef ske kynni
að hægt væri að bæta nemanda í
enskutíma skólans.
Kæra Vika!
Mig langar til að spyrja þig hvað
stærsta sundlaug á landinu sé stór
og hvar hún er.
Viltu gjöra svo vel og segja mér
hvað Sundhöllin er stór?
Ég vonast eftir svari sem fyrst.
Sveitastúlka.
Svar: Stærsta sundlaugin á land-
inu er í Hveragerði i Ölfusi. Hún er
12 metrar á breidd og 50 metrar á
lengd. Sundhöllin í Reykjavík er 12
metrar á breidd og 33% metriálengd.
„Vinur Vikunnar" sendi blaðinu
þessa kveðju með þakklæti fyrir, hve
það hefir oft stytt honum stund-
irnar:
Ég þrái vor, ég þrái sól,
ég þrái sumardægrin löng.
Og lítinn bæ við lágan hól
og lækjarnið og vatnasöng.
Og fagurbláan fjallatind
og foss er kveður þýðum róm
og grænan hvamm og litla lind
og líf og yl, og fuglahljóm.
Sauðárkrók, 14. nóv. 1943.
Getur þú gert svo vel og sagt mér,
af hvaða húsi myndin er, sem er á
fimm krónu seðlunum?
Sævar.
Svar: Hún er af Landbankahúsinu,
eins og það leit út fyrir breyting-
una, sem gerð var á "því fyrir
skömmu.
Síðari spumingunni sem í bréfinu
var, getum við því miður ekki svar-
að að þessu sinni.
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.