Vikan - 01.06.1944, Side 2
VIKAN, nr. 22, 1944
2
Pósturínn
Kæra Vika!
Ég sé að þú leysir úr margra
þrautum, og langar mig því að leita
til þín og vona ég að þú bregðist vel
við og svarir mér fljótt og vel.
Ég hefi mjög loðna handleggi og
þykir mér það voða Ijótt og ætla ég
þvi að biðja þig að ráðleggja mér
eitthvað til að losna við hárin.. —
Hvað get ég gert við hárið á mér,
það er einhver órækt í þvi og vill
klofna upp í hárin að neðan. Er það
hættulegt fyrir hárið að þvo það upp
úr sápu, svo sem sólsápu. Að lokum
vil ég þakka þér margar ánægju-
stundir og óska þér langra lífdaga.
Svo þakka ég fyrirfram fyrir svarið,
sem ég vona að fá bráðlega í Póst-
inum. Ein í vandræðum.
Svar: 1. Við viljum ekki ráðleggja
þér að eiga neitt við hárin á hand-
leggjunum, því að rakstur o. þvíl.
örvar aðeins hárvöxt, það er heldur
ekkert ljótt þótt vaxi nokkur lítil
hár á handleggjunum. 2. Við gerum
ráð fyrir að það sé hinn svonefndi
hármaðkur, sem gengur að hárinu.
Hann getur stafað af ýmsu. 1 fyrsta
lagi er hann sjúkdómur, sem getur
valdið hárroti; og er þess vegna ráð-
legast að leita til sérfræðings. Ann-
ars getur hármaðkur, eða það, að
hárið klofnar í endann, stafað af
ýmsu öðru t. d. „pemanenti“, krullu-
pinnum" o. fl. Við því er reynandi að
klippa hárið og bera oliu i sárið.
3. í>að ætti ekki að vera neitt hættu-
legt. _____
Heimilisblaðið Vikan, Rvík.
1 þorpi einu á Norðurlandi hefir
sú regla verið gildandi og er alls-
staðar þar, sem ég þekki til, að i
bamaskólum sé bömunum gefin eink-
unn fyrir framkomu sina og hegðun.
Á síðasta ári var þessu breytt hér
í þorpinu, þannig, að bömunum var
að vísu gefin einkunn fyrir fram-
komu, en svo var tekið meðaltal af
öllum hópnum, svo þeir, sem versta
og bezta höfðu framkomu, fengu
jafnt. Mér og fleirum þykir þetta
hæpin jafnaðarmennska og ég hefi
ekki sterka trú á frjósemi þessa rétt-
lætis. Ég held að bömum, sem leggja
þessar einkanir fram, sem meðmæli,
séu þau lítilsvirði, báðum aðilunum.
Nú vildi ég biðja þig, Vika mín, að
komast fyrir það, hvort þessi regla
sé víðar gildandi og hvort hún sé þá
hyggð á einhverjum lögum, eða
reglugerðum. Síðan ætla ég að biðja
þig að bera mér svarið, svo ég og
aðrir, sem em óánægðir með þetta,
geti vitað á hverju þetta er byggt.
Með þökk fyrir birtinguna.
Norðlenzk kona.
Svar: Engin ákvæði eru til um
það, í lögum eða reglugerðum, að
gefa eigi einkunn fyrir hegðun eða
reglusemi í bamaskólum, en hins veg-
ar gera ýmsir kennarar það, eftir því
sem þeim þykir henta, og em sjálf-
ráðir um það.
Svar til „Þriggja ungra og fagurra
stúlkna": Þessi „stóra hugmynd“
ykkar finnst okkur ekki eins góð og
Ný bók:
Samferðamenn
og lleiri sögur
eliir Jón H. Guðmundsson
kom út um síðustu helgi.
Þetta eru f jórtán sögur og gerast
þær allar, nema ein, í Reykjavík.
Takið „Samferðamenn og fleiri sögur“ með yður
í sumarfríið — kostar aðeins 12 krónur.
ra
ykkur! Það er gott fyrir íslendinga
að tileinka sér það í fari og háttum
erlendra þjóða, sem við getum haft
gagn af og spillir ekki menningu
okkar. En þið verðið að muna það,
að Island er allt annað og örðuvísi
en Ameríka; margt, sem á við þar
eða hefir þar komizt í tízku, getur
átt mjög illa við Island og Islendinga.
Öll slík eftiröpun verður að gerast
með gát, þvi að Islendingum hefir
aldrei verið það meiri nauðsyn en nú,
að þeir geti' sýnt það svart á hvitu,
að þeir eiga sjálfstæða menningu,
sem byggð er á traustum, fornum
grundvelli, en ekki stælingu á hégóm-
legustu háttum og siðum annarra
þjóða, sem í svipinn eru áhrifaríkar
hér á landi. — Til fróðleiks skal þess
getið vegna þess, sem vitnað er í
gamalt efni blaðsins, að þá voru
aðrir menn við stjórn þess. — Við
erum ekki vön að dæma skrift, en
fyrst þið endilega viljið fá að vita
álit okkar, þá er það þetta: Okkur
finnst skriftin tilgerðarleg.
Þrjátíu ára gamalt lerki í Mörkinni á Hallormsstað. Hæð um sex
metrar. (Sjá forsíðu).
ásamt skrá um stríðsgróðaskatt, námsbókagjald,
elli- og örorkutryggingaskrá,
liggja frammi á bæjarþingstofunni í hegningarhúsinu frá
miðvikudegi 31. maí til þriðjudags 13. júní, að báðum
dögum meðtöldum, kl. 10—20 daglega. Kærufrestur er
til þess dags, er skrárnar liggja síðast frammi, og þurfa
kærur að vera komnar til Skattstofu Reykjavíkur, eða í
bréfakassa hennar, í síðasta lagi kl. 24 þriðjudaginn 13.
júní næstkomandi.
Skattstjórinn í Reykjavík,
HALLBÓR SIGFÚSSON.
Qtgefandi; VLKAN LLF., Reykjavik. — Ritstjóri og ábyrgóarmaður: Jón IL Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.