Vikan - 13.07.1944, Page 2
2
VIKAN, nr. 28, 1944
Myndir
frá Bessastöðum.
Mynd þessi var tekin, er
blaðamönnum var boðið til
forseta að Bessastöðum. Auk
forsetahjónanna og blaða-
manna, eru á myndinni
nokkrir aðrir boðsgestir.
(Ljósm. Þorst. Jósepsson).
Neðri myndin er af kómum
og predikunarstólnum í Bessa-
staðakirkju.
Tilkynning
frá Happdrœtti Frjálslynda safnaðarins
Með leyfi stjórnarvaldanna verður drætti í happ-
drætti Frjálslynda safnaðarins frestað til 15. ÚRÚst
1944.
Pósturinn | B
Háttvirta Vika!
Við höfum tekið eftir því, hve
greiðlega þú svarar öllum spuming-
um sem fyrir þig em lagðar; þess
vegna langar okkur að leita til þin.
Við erum tvær og langar okkur mjög
mikið til að verða skátar. En af því
að við erum mjög ókunnar þessu
starfi, langar okkur að biðja þig um
góðar upplýsingar um þetta, og til
hvers við eigum að snúa okkur ef
við athugum þetta nánar.
Með fyrirfram þökk fyrir svarið.
Tvær frænkur.
Vonumst eftir svari sem fyrst.
Svar: Þið skuluð skrifa Bandalagi
íslenzkra skáta, pósthólf 831, Reykja-
vik, og þar munuð þið fá allar þær
upplýsingar og leiðbeiningar, sem þið
óskið eftir.
Kæra Vika!
Viltu ekki vera svo góð að birta
fyrir mig kvæðið „Förumannaflokkar
þeysa" eftir Davíð frá Fagraskógi.
Mér þætti vænt um, að þú gerðir það
sem fyrst. .
Beztu kveðjur frá Bínu.
Förumannaflokkar þeysa
friðlausir um eyðisand, 0
af leðurbelgjum böndin leysa,
blessa vatnið. Stormar geisa
yfir dauðans óskaland.
Langt er enn til lífsins stranda,
lækur enginn, hvergi björk,
bannlýst jörð til beggja handa,
brunasandar, — eyðimörk.
Hér er dauðans heljarveldi
hetjubeinum gömlum skráð.
Upp úr sandsins svarta feldi
sviðna þau í dagsins eldi,
vitna um þreytu og þrotin ráð.
Timinn blandinn kvöl og kvíða
kveikir þorstans eldibrand.
—- Förumannaflokkar riða
friðlausir um eyðisand.
Húsmœður!
Sultutíminn
er kominn!
Tryggið yður góðan árang-
ur af fyrirhöfn yðar. Varð-
veitið vetrarforðann fyrir
skemmdum. Það gerið þér
bezt með því að nota
BETAMON,
óbrigðult rotvarnarefni.
BENSONAT,
bensoesúrt natrón.
PECTINAL, Sultuhleypir.
VÍNEDIK,
gerjað úr ávöxtum.
VANILLETÖFLUR.
VÍNSÍRU.
FLÖSKULAKIÍ í plötum.
ALLT FRA
CHEMIAh/f
Fæst í öllum
matvöruverzlunum.
Voru hér ei hallir háar,
hávær torg og fjöldi manns,
laufskálar, lindir bláar,
ljúflingsmeyjar, fótsmáar,
er slógu hörpu, stigu dans?
— Um líf og gróður landsins horfna
lifir engin gömul sögn.
Sama gátan. Svarið forna:
Sandsins auðnir. Dauðaþögn.
Förumannaflokkar þeysa
friðlausir um eyðisand.
Fellibyljir bölsins geisa,
bylgjufalda svarta reisa.
Sandrok hylur sól og land.
Langt er enn til lífsins stranda,
lækur enginn, hvergi björk,
bannlýst jörð til beggja handa,
brunasandar, — eyðimörk.
Kæra Vika!
Getur þú sagt mér hverrar þjóðar
Carmen Miranda er, og líka hvort
hún er gift og þá hverjum.
Sú sem ér kölluð
Leikarafíflið.
Svar: Carmen Miranda er ættuð
frá Brasilíu, þar sem hún fyrst vakti
á sér athygii með söng sínum í Rio
de Janero. Síðar fór hún að leika og
syngja í kvikmyndum í Hollywood.
Carmen er ógift.
Kæra Vika!
Getur þú frætt okkur á eftirfar-
andi: Hvort var það Alexander
Dumas eldri eða yngri, sem ritaði
bókina „Þrír Fóstbræður" ?
Tveir sem veðja.
Svar: Það var Alexander Dumas
e 1 d r i.
Reykjavík, 5. júií 1944.
Kæra Vika!
Getur þú upplýst mig um hverrar
þjóðar Primo de Carnera, fyrrver-
andi heimsmeistari í hnefaleik, er?
«. Jón halti,
Svar: Italskur.
Utgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.