Vikan - 17.01.1946, Síða 2
VIKAN, nr. 3, 1946
Pósturinn
Lysthús-kvæði:
Við höfum oftar en einu sinni verið
spurðir um kvæði, sem eftirfarandi
línur eru í:
„Undir bláum sólar sali.
Sauðlauks upp í lygnúm dali,"
en vissum ekki, hvar það væri að
finna eða eftir hvem það er. Við lest-
ur hinnar ágætu bókar, með þessum
skemmtilega titli: „Sól er á morgun"
rákumst við á kvæðið. Þetta er
kvæðasafn frá átjándu öld og fyrri
hluta nítjándu aldar, sett saman af
Snorra Hjartarsyni, en Leiftur gaf
bókina út. Hún er sannarlega þess
verð, að hún sé lesin. Þetta ljóð heitir
„Lysthús-kvæði" og er ekki eftir
„minni mann" en Eggert ólafsson og
hljóðar þannig:
Undir bláum sólar sali,
Sauðlauks upp í lygnum dali
fólkið hafði af hanagali
hverdags skemmtun bænum á,
fagurt galaði fuglinn sá;
og af fleiri fugla hjali
frygð um sumarstundir;
listamaðurinn lengi þar við undi.
Laufa byggja skyldi skála,
skemmtilega sniðka og mála,
í lystigarði ljúfra kála,
lítil skríkja var þar hjá,
fagurt galaði fuglinn sá;
týrar þá við timbri rjála,
á tóla smíða fundi;
listamaðurinn lengi þar við undi.
Gull-legur runnur húsið huldi,
hér með sína gesti duldi;
af blakti laufa blíður kuldi
blossa sunnu mýkti þá,
fagurt galaði fuglinn sá;
blærinn kvæða bassa þuldi,
blaða milli drundi;
listamaðurinn lengi þar við undi.
Hunangs blóm úr öllum áttum
ilmi sætum lifga máttu;
söngpípan í grasagáttum
gjörði tíð á enda kljá;
fagutr galaði fuglinn sá;
skjótt var liðið langt af háttum
lagst var allt í blundi;
listamaðurinn lengi þar við undi.
Kæra Vika!
Hvernig er hægt að losna við
„fílapensla."
Ungur maður.
Svar: „Þegar grefur í nöbbunum
á að færa út úr þeim gröftinn, en
þrifalega verður að fara að því, svo
að gröfturinn dreifist ekki út um
hörundið. Ef graftarnabbinn situr
niðri í húðinni, má opna hann með
því að stinga í hann með hnífsoddi,
sem brugðið hefir verið í loga. Þeg-
ar fært hefir verið úr nöbbunum á
að þvo hörundið vandlega úr súblí-
matvatni eð vínandablöndu. A nabb-
ana, sem opnaðir hafa verið, á þar
að auki að rjóða 10% iktyólsmyrsli.
Einkum verður að fara varlega við
aðgerðir á graftarnöbbum á efri vör
og þar í nánd og í kringum augu,
sérstaklega ef þeir eru viðkvæmir og
fótur er undir þeim. Er þá varlegast
Framh. á bls. 7.
Cerebos salt
e\ íoJLt þMÍax.
Cerebos borðsalt
er alltaf jain hreint og fínt og
ekki fer eitt korn til ónýtis, —
pjOtb (jazst í öúAuun u.ohtzJhmum
íslenzkir þjóðhœttir
eftir
'Jónas 'Jnnasscm
frá Hrafnagi
Önnur útgáfa þessarar ágætu og vinsælu
bókar kom út nokkrum dögum fyrir jól. Allt
sem hægt var að binda, seldist jafnóðum og
komst bókin því ekkert út fyrir Reykjavík og
nágrenni. Nú er verið að binda bókina, og verður
hún send út um land jafnóðum og ferðir falla.
Tryggið yður þessa þók, hún er skemmtileg
og þjóðleg eign á hverju íslenzku heimili.
Bókaverzlun ísafoldar
TJrval
6. hefti,
- ‘23
er komið í bókabúðir.
EFNI:
Núlímamaðurinn er orðinn á eftir tímanum
Saturday Review of Literature 1
Tvö hlutverk............„Masker og Menneskeru 11
Þrínið — píanó framtíðarinnar .... Radio News 19
Nýtt undraiyf.............................. Hygeia 24
Saga tízkunnar......................Pilot Papers 29
í sæludalnum á Nýju Guineu . . . Reader's Digest 35
Loftknúnu flugvélarnar — farartæki framtíðarinnar
eftir Hall L. Hibbard 54
„Þjóðflutningar" dýranna The Saturday Evening Post 59
Uppskurður við hugsýki..........Sunday Dispatch 65
Byggið hús yðar sjálfir.............The Listener 68
Konan í snjóhúsinu...................... Kabloona“ 73
Sokkaleitin.................„My Sister Eileen“ 8t
Þúsund dollarar á dag — hvað svo? Reader's Digest 91
Hve hratt leslu?...........................Liberty 95
Lækning á „migrene“
Journal of the Medical Association 98
Óvingjarnlegasta þjóð í heimi The Inter-American 101
Bókin: Aleinn...........eftir Richard E. Byrd 105
Bréf.............Saturday Review of Literature 127
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmimdsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.