Vikan


Vikan - 19.09.1946, Síða 2

Vikan - 19.09.1946, Síða 2
2 VIKAN, nr. 38, 1946 Pósturinn Kæra Vika! Geturðu sagt mér hvenær Ray Milland er fæddur. Geturðu líka sagt mér eitthvað frá Allan Ladd og síð- ustu myndum, sem hann hefir leikið i. Fyrirgefðu spumingarnar. — Þin Lóa. Svar: Ray Milland er fæddur 3. janúar 1905. Allan Ladd hóf leikferil sinn með því að leika í útvarp. Sue Carol (sem síðar varð kona hans) varð hrifin af rödd hans og lét hann fá smáhlutverk í kvikmyndum. Fyrsta aðaihlutverk sitt lék hann í kvik- myndinni „This gun for hire“ á móti Veronica Lake. Síðustu kvikmyndir Allan Ladd eru þessar: ,,And now tomorrow" og „Two years before the mast". Um tíma ferðaðist hann um í stríðinu og skemmti hermönnum. Isafirði 7. sept. 1946. Herra ritstjóri! 1 36. tölublaði, 5. september síðast- liðinn hafði þér, samkvæmt beiðni, prentað kvæðið „Vonleysi" með þeirri umsögn, að höfundur sé ókunnur, og kvæðið tekið úr Vasasöngbókinni. Það rétta er: Kvæði þetta kom fyrst út í Hörpuljóðum prentuðum á Isafirði 1942. Utgefandi Jón frá Ljárskógum, og þýtt af honum. Enn- fremur: Línan: Örlög mín fær enginn maður blekkt, í öðru erindi, á að vera: Örlög sín fær enginn maður blekkt. Með þökk fyrir leiðrétting- una. Jónína Kristjánsdóttir. Kæra Vika! Viltu birta fyTir okkur eftirfar- andi: Við undirritaðar óskum eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku, hvar sem er á landinu. Virðingarfyllst, Þóra Aradóttir (19—24), Hulda Ingvarsdóttir (15—18) og Þórunn Gísladóttir. Allar í Höfn í Homa- firði, A.-Skaftafellssýslu. Sögur um merka menn Ekki verulega likur! Maður nokkur af Flateyjardal kom að bæ á Svalbarðsströnd. Býr þar bóndi, sem Sigmundur heitir. Mann- inum var boðið til baðstofu. Uppi á þilinu hékk mynd af kvöldmáltíðinni, og horfði hann lengi á hana með gáumgæfni, þangað til hann spurði: „Er þessi mynd af fjölskyldunni héma?" „Nei,“ svaraði þá húsfreyj- an, „þessi mynd er af kvöldmáltíð- inni.“ „Já — einmitt það,“ sagði gesturinn, „mér sýndist hann ekki heldur veruiega líkur honum Sig- mundi — þessi stóri,“ — og benti um leið á Krist. Mark Twain sem fyrirlesari. Mark Twain, hinn frægi, ameríski rithöfundur, sem Tom Sawyer og margar aðrar skemmtilegar grínsög- ur eru eftir, var mjög vinsæll fyrir- lesari og ræðumaður. Einu sinni hafði hann lofað að halda fyrirlestur fyrir félag eitt í Denwer. Hann kom að kvöldi til borgarinnar og var eng- inn á járnbrautarstöðinni til að taka á móti honum, svo að annað gat hann ekki gert en rölta einn sins liðs til samkomuhússins, þar sem hann átti að tala. En þegar hann kom þangað og ætlaði þegar í stað að ganga inn í salinn til áheyrendanna, var hann stanzaður af dyraverðinum, sem heimtaði af honum aðgöngumiða. „Eg hefi engan," svaraði Mark Twain. „Jæja, þá verðið þér að kaupa einn, miðasalan er þama!“ Mark Twain laut brosandi að hon- um og hvíslaði: „Eg er fyrirlesarinn.“ Dyravörðurinn dró Einnað augað glettnislega í pung og sagði með rödd, sem ekki var hægt að skilja nema á einn veg og sem heyrðist af þeim, sem næstir stóðu: „Þér eru þriðji fyrirlesarinn, sem hefir komið síðustu tíu mínúturnar!" En hann bætti við um leið og hann sló kumpánlega á öxl Mark Twain: „O, jæja, farðu bara inn! En næsti fyrirlesari, sem gerir vart við sig hér, fær að greiða inngangseyri." „--------Málsfegurðinni og efnismeðferðinni i Snorra Eddu hefir lengi verið við- brugðið, og það að verðugu, enda mun hvergi vera fegra mál eða frásögn að finna í fornritum vorum, og óviða eins fagurt, nema ef vera kynni í Njálu og Egils sögu. •—------Það á engin þjóð eins dýran arf frá fomöldinni til eins og Islendingar, sem allir geta gengið jafnt að og notið eins og það væm nútiðarbókmenntir.“ 8 Því aðeins er gaman að eiga Islendingasögumar, að þeim fylgi hinar dýrmætustu perlur íslenzkra bókmennta: Sæmundar edda, Snorra edda og Sturlunga saga og svo auðvitað að þær séu í fyrsta flokks handunnu skinn- bandi. Strax í dag getið þér eignast allar Islendingasögurnar ásamt Sæmundar eddu, Snorra eddu og Sturlunga sögu í hinni þjóðkunnu alþýðuútgáfu Sigurðar Kristjánssonar. Sendum hvert á land sem er, yður að kostnaðarlausu. Bókaverzlun Siguröar Kristjánssonar, Bankastræti 3 Athugið! Engar áskriftir, en seljum ódýrt strax í dag. í v v v ♦ ♦ V V V V V V V V V ’♦" V V V ♦ V V V V V V * V V >;< V V I >;< V V V V V V >♦< V >♦< >♦< >♦< >;< v >♦< >♦< v >♦< ►♦< V >:< V >:< V V >:< V >:< >:< V >:< V >:< >;< ►i< ♦ >:< ►:< >:< >:< ►7< >;< >:< »»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»io»»»»»»»»»»»»»»»»:. Útgefandi: V3KAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.