Vikan


Vikan - 01.01.1948, Blaðsíða 9

Vikan - 01.01.1948, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 1, 1948 9 Frétta- myndir Til vmsrtri er mynd af suðrænni næturklúbbadansmær í Havana, sem tekin var föst, ákærð fyrir að hafa myrt bandariskan lögfræðing frá Chi- cago (sést hér að ofan ásamt konu sinni, sem einnig er dansmær). Lög- fræðingurinn dó fimm dögum eftir að hann hafði orðið fyrir skoti um borð í, lystisnekkju sinni. Borgarstjórinn í Havana á Kúbu hlýtur að hafa verið skyldu- rækinn maður. Hann hafði lofað þvi i kosningabaráttunni, að hann skyldi láta gera fullkomna vatnsveitu fyrir borgina. Honum tókst ekki að efna þetta loforð, og framdi hann þá sjálfsmorð. Myndin er tekin i anddyri-ráðhússins, og er heiðursvörður við kistu borgar- stjórans. Pjórtán ára gamall sonur forseta Mexíkó, Mi- guel Aleman, sést hér á þessum tveim myndum. Hann er-á skemmtiferðalagi i New York og þarf margt að sjá og reyna, eins og gefur að skilja. Til hægri sést hann vera að borðá pylsu hjá pylsuvagni, en til vinstri er hann í skemmtiggrði borgarinnar. Þetta er mynd af áströlsku kvik- indi, svonefndum ,,Tasmaníudjöfli“. Hann er smávaxinn og í ætt við poka- dýrið, en með afbrigðum grimmur. Hausinn á honum er stór og ginið vitt, eins og sjá má á myndinni, en skrokkurinn frekar lítill. Myndin er tekin í Bronx-dýragarðinum í New York. Þetta er 22 ára gömul Parísardama um borð í skipi á leiB til Ameríku. Þar biður kærastinn hennar, amerískur hermaður, sem hún kynntist á striðsárunum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.