Vikan


Vikan - 01.01.1948, Blaðsíða 11

Vikan - 01.01.1948, Blaðsíða 11
VIKAN, nr. 1, 1948 11 Framhaldssaga: —------------------------ Hver var afbrotamaðurinn ? ___________—---------— Sakamálasaga eftir Agatha Christie því athygli fram að þessu, að frú Mercado var komin inn í stofuna til okkar. Hún hlýtur að hafa læðzt inn á meðan við vorum að virða fyrir okkur blóðug-a kvamarsteininn, því þá voru mest- ar líkur til að eginn hefði tekið eftir henni. Nú rak hún skyndilega upp skrækt vein og sagði upp úr eins manns hljóði: „Ö, guð minn góður! Nú sé ég, hvemig í öllu liggur. Séra Lavigny á sök á þessu öllu saman. Hann er haldinn trúarbragðaofstæki. Hann held- ur, að allt kvenfólk sé svo óguðlegt og ætlar því að myrða okkur hverja á fætur annarri. Fyrst var það frú Leidner, síðan ungfrú John- son og næst verður það ég .... “ Hún hljóp þvert yfir herbergið til dr. Reilly og greip báðum höndum um jakkakraga hans. „Ég verð ekki héma lengur!“ skrækti hún. „Ekki einum deginum lengur! Hér er hætta á ferðum — alls staðar. Hann liggur í felum ein- hvers staðar — og bíður eftir tækifæri. Siðan tekur hann undir sig stökk og hremmir mig!“ Ég fór til dr. Reilly til að aðstoða hann við að róa frú Mereado. Ég losaði tak hennar á jakkakraga læknisins og neyddi hana til að setj- ast i stól. „Það sækist enginn eftir lífi yðar,“ sagði ég. „Við skulum líka vemda yður fyrir öllum árás- um. Setjist aðeins niður og segið ekkert!" Þetta hreif. Hún lokaði munninum og horfði á mig undrandi og skelfd. En nú kom annað óvænt atvik fyrir. Dymn- um var hmndið upp og Sheila Reilly kom inn. Hún var óvenjulega hæg og föl og gekk beint til Poirots. „Hg kom við á pósthúsinu snemma i morgun,“ sagði hún, „og það var komið símskeyti til yðar, svo ég tók það hingað með mér.“ „Þakka yður fyrir, ungfrú,“ svaraði Poirot. Hann tók við símskeytinu og opnaði það. Sheila Reilly horfði fast á hann, en enginn dráttur hreyfðist í andliti Poirots. Þegar hann hafði les- ið skeytið, braut hann það saman og stakk því í vasann. Frú Mercado hafði einnig horft á hann á með- an hann var að þessu og spurði nú með hinni skræku rödd sinni: „Var þetta skeyti —- — frá Ameríku ? “ „Nei, frú,“ svaraði Poirot. „Það var frá Túnis." Hún starði á hann nokkur augnablik eins og hún skildi hann ekki, en síðan hallaði hún sér aftur í sætinu og skrækti: „Já, það er um séra Lavigny. Ég hef þá haft rétt fyrir mér. Ég vissi alltaf, að það var eitthvað einkennilegt við hann. Hann sagði einu sinni nokkuð skritið við mig .... Ég býst við, að hann sé bilaður." Hún þagnaði, en bætti siðan við í afsökunarróm: „Ég skal vera róleg og ekki segja meira, en ég verð að fara héðan. Við Jósep getum án efa fengið að dvelja í gistihúsinu til að byrja með.“ „Verið hægar, frú,“ sagði Poirot. „Ég skal skýra þetta allt bráðum." Maitland yfirforingi leit á hann undrandi: „Haldið þér karmske, að þér hafið komizt fyrir morðin og þetta allt?“ spurði hann. Poirot hneigði sig eins og leikari á leiksviði. Ég sá, að þetta fór í taugamar á Maitland. „Nú, jæja,“ rumdi í honum. „Orðið er laust fyrir yður.“ En þetta var ekki aðferð Poirots. Ég sá strax, að hann ætlaði að setja þetta á leiksvið, ef svo mætti segja. Ég var ekki viss um að hann hefði í rauninni komizt að nokkurri niðurstöðu, bjóst jafnvel við, að hann segði þetta aðeins í einhverj- um ákveðnum tilgangi. Poirot sneri sér að dr. Reilly og sagði: „Vild- uð þér gera svo vel, dr. Reilly, og kalla á hitt fólkið." Dr. Reilly stökk á fætur og þaut út. Eftir dá- litla stund fóru leiðangursmenn að koma inn. Fyrst komu þeir Reiter og Emmott, næst kom Bill Coleman, þá Richard Carey og loks Jósep Mercado. Aumingja Jósop Mercado, hann var bleikur sem nár. Ég býsi við að hann hafi óttazt, að nú mundi hann fá skammir fyrir að hafa látið eitruð efni liggja tvona á glámbekk. Allir settust í kring um borðið, á svipaðan hátt og við höfðum gert fyrsta daginn, sem Poirot kom. Það kom dálítið h:k á þá Bill Coleman og David Emmott, þegar þeir komu auga á Sheilu Reilly. Hún stóð úti við giuggann og sneri baki að þeim. „Stól, Sheila?“ spurði Bill Coleman. „Viltu ekki fá þér sæti?“ sagði David Em- mott með hinni viðkunnanlegu, lágu rödd sinni. Sheila sneri sér við og leit á þá til skiptis. Þeir ýttu báðir sitt hvorum stólnum í áttina til hennar. • Hún settist á hvorugan stólinn, heldur tyllti sér á lítið borð úti við gluggann. „Ég ætla að sitja héma,“ sagði hún, en bætti síðan við: „Það er að segja, ef Maitland yfirforingi hefii ekkert á móti því að ég sé viðstödd.“ Ég veit ekki, hvað Maitland mundi hafa sagt, en Poirot varð fyrri til og svaraði: „Ég óska þess, að þér verðið kyrrar, ungfrú Reilly. Það er meira að segja nauðsynlegt, að þér séuð við- staddar." Hún lyfti augabrúnunum og horfði á Poirot. „Nauðsynlegt ?“ át hún eftir. „Já, ég sagði það, ungfrú,“ svaraði Poirot. „Ég þarf að leggja fyrir yður nokkrar spumingar.“ Hún lyfti enn brúnunum, en svaraði engu. Hún sneri sér við og horfði þrjózkulega út um glugg- ann, eins og hún ætlaði sér ekki að hlusta á það, sem fram færi að baki henni. „Nú, jæja,“ sagði Maitland yfirforingi. „Kann- ske við fáum þá loks að heyra sannleikann í málinu!" Hann virtist vera orðinn óþolinmóður, því hann var sýnilega áhlaupamaður. Mér fannst eins og hann vildi losna sem fyrst og snúa sér að öðr- um verkefnum, svo sem leitinni að séra Lavigny eða einhverju þess háttar. Hann leit á Poirot, og vax ekki laust við að lítilsvirðingarsvip brygði fyrir á andliti hans. Ég þóttist sjá, að hann hugsaði sem svo, að ef þessi Poirot hefði eitthvað að segja, þá skyldi hann fara að opna á sér túlann. Poirot leit yfir söfnuðinn og reis siðan hægt og virðulega úr sæti sínu. Ég veit ekki, hvað ég bjóst við að hann mundi segja, en þegar hann hóf mál sitt, kom hann mér mjög á óvart, því hann mælti fram setningu á arabisku. Hann hafði setninguna yfir hægt og hátíðlega — já, eins og hann væri að prédika: „Bismillahi ar rahman ar rahim.“ Síðan þýddi hann hana á ensku: „1 nafni Allah, hins miskunnsama, hins samúðarfulla." 27. KAFLI. „Bismiliahi ar rahman ar rahirn." „Þessa setn-i ingu hafa Aarbarnir yfir áður en þeir leggja upp í ferðalag. Ég ætla nú að leggja upp í ferð með ykkur, ferð inn í fortíðina, hið liðna." Mér fannst þetta einkennilega til orða tekið hjá Poirot, en þegar ég hafði litazt um i stof- unni, fann ég þó, að þetta voru orð að sönnu hjá honum. Við vorum að vísu öll saman í þessari stofu núna, en brátt mundu leiðimar skilja og við færum sitt í hverja áttina. Poirot hélt áfram: „Frá því ég fór fyrst að rannsaka þetta mál, hefi ég gert mér ljóst, að til þess að komast á rétta sporið, yrði ég að kynna mér persónuleika allra þeirra, sem hér bjuggu, áhugamál þeirra og leyndardóma hjartna þeirra. Ég vil strax taka það fram, að þótt ég telji mig hafa komizt að endanlegri og réttri niður- stöðu í máli þessu, þá hef ég engar beinar sann- anir fyrir máli minu. Ég veit aðeins, að þetta hlýtur að vera þannig, því að einmitt á þennan eina hátt verður hvert einasta atvik skiljanlegt og skýranlegt og myndar samfellda og eðlilega heildarmynd. Þetta er að mínu áliti bezta sönn- unin, þegar hvað kemur heim við annað, og verð- ur ekki á betri sönnun kosið. Ég ætla þá að byrja á því, þegar ég var beð- inn að koma hingað og rannsaka þetta mál. Mér var skýrt lauslega frá því, sem komið hafði fyrir og hvernig ástatt hafði verið hér fyrir morðið. Ég þóttist strax sjá, að allt yrði að snúast um að fá upplýsingar um persónuleika frú Leidners. Ég mundi aldrei komast að því, hvers vegna frú Leidner liafi verið myrt, nema ég kæmist að því með vissu, hvernig kona frú Leidner hafði verið. Þessu næst yrði ég að rannsaka það atriði, að sambúðin hafði verið eitthvað þvinguð hér. Ég hafði frétt að svo var úr ýmsum áttum og flestir töldu, að þetta væri frú Leidner að kenna. Mér fannst þetta vel geta verið, en þó fannst. mér þetta ekki fullnægjandi skýring á því, sem gerzt hafði. Eitthvað meira varð að koma til. En ég mun víkja nánar að þessu síðar. Eins og ég sagði áðan, byrjaði ég á því að kynna mér persónuleika frú Leidners. Flestum bar saman um, að hún hefði haft talsverðan per- sónuleika til að bera. Hún hafði góðan smekk, en barst þó ekki mikið á í klæðaburði. Ég hafði séð handbragð hennar á útsaumuðum dúk og furðaði mig á, hve vandvirk og smekkleg hún vera í verkum sínum. Með þvi að skoða bækum- ar, sem hún hafði hjá sér í svefnherbergi sínu, komst ég að því, að hún var hugsandi manneskja, en jafnframt mjög eigingjöm. Mér hafði verið sagt, að frú Leidner væri mjög ástleitin kona og legði sig mjög fram um að ganga í augun á karlmönnunum. Ég lagði engan trúnað á, að þetta væri satt. Fyrst og fremst sá ég strax, að hún hafði á- huga á listum og nútíma vísindum. Þetta dró ég af rannsókn bóka þeirra, sem frú Leidner hafði í herbergi sínu, eins og ég sagði áðan. Með rann- sókn ýmsra annara atvika, gat ég gert mér nokkra mynd af skapferli hennar. Því næst sneri ég mér að leiðangursmönnum og öðmm, sem kynnzt höfðu frú Leidner. Við þetta gat ég fullkomnað mjög mynd mína af henni. Ég varð þess fljótt fullviss, að dr. Reilly og nokkrir aðrir ásamt honum, höfðu rétt fyrir sér þvi, að frú Leidner var einn þeirra kvenmanna,

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.