Vikan - 01.04.1948, Qupperneq 2
2
VTKAN nr. 14, 1948
PÓSTURINN •
Kæra Vika!
Getur þú ekki gefið okkur upplýs-
ingar um einhverja söngkennara,
helzt jass-söngkennara.
Óskum eftir svari í næsta blaði.
Með fyrirfram þakklæti.
Fimm áhugasamar.
Svar: Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem við höfum getað aflað okkur,
mun enginn fást við jass-söngkennslu
hér í Reykjavík, en aðrir söngkennar-
ar munu vera allmargir og kunnum
við að nefna: Sigurð Birkis, Pétur Á.
Jónsson og Benedikt Elfar.
Kæra Vika!
1. Getur þú sagt mér, hvað ég á
að vera þungur. Ég er 14 ára og
1,58 m. á hæð.
2. Hvað er mánaðarkaup hjálpar-
kokka á togurum ?
EZIO PINZA
Framhald af forsíðu.
hans datt í hug að Pinza kynni
að vera efni í óperusöngvara.
Skólastjóri tónlistarskólans í
Bologna komst á sömu skoðun
eftir að hann hafði prófað Pinza,
og útvegaði honum styrk til
söngnáms, 40 krónur á mánuði.
Þess, sem ávantaði til lífsfram-
færis, aflaði hann sér með tré-
smíði. Eftir tveggja ára nám,
en það er eina kennslan, sem
Pinza hefir hlotið, kom hann í
fyrsta sinni fram í óperu. En
svo skall fyrri heimsstyrjöldin
á og hann var kallaður í herinn.
Vann hann sig þar upp í kaf-
teinstign.
Eftir styrjöldina sneri hann
sér aftur að söngnum, og eng-
um varð það meira undrunar-
efni en Pinza sjálftmi, hve frægð
hans jókst nú með skjótum
hætti. Áður en tvö ár voru lið-
in barst honum beiðni frá Arturo
Toscanini, hljómsveitarstjóran-
um fræga, að syngja í hinni
stórfenglegu óperu ,,Nerone“,
sem leika átti í Scala-óperunni í
Milano, en hún er á?amt Metro-
politan-söngleikahúsinu fræg-
asta óperuhöll heimsins. Pinza
vakti svo mikla athygli í þess-
ari óperu, að söngstjórinn Gatti-
Casazza tók hann skömmu síðar
með sér til Metropolitan söng-
leikahússins í New York.
Sönggagnrýnendur í New
3. Hvernig1 er skriftin. — Gætir
þú svarað mér í næsta blaði.
Fyrirfram þakklæti.
Viku lesandi.
Svar: Um 56 kg. — 2. Samkvæmt
taxta er mánaðarkaup þeirra kr.
193.75 í grunnkaup á mánuði, en al-
mennt mun vera borgað miklu hærra.
Algengast mun vera, að þeir fái 1500
krónur á mánuði, sem svarar til 300
króna grunnlauna. — Skriftin er
heldur viðvaningsleg, en ekki ólæsi-
leg.
Kæra Vika!
Ég hefi fremur dökk hár á fót-
leggjunum og langar mig því til þess
að spyrja hvort ekki sé hægt að af-
lita þau.
Með fyrirfram þakklæti.
Virðingarfyllst,
Ásta.
Svar: Hár má bleikja með vatns-
sýringi í 3% upplausn eða smyrsli.
York hældu honum á hvert reipi
og kölluðu hann „hinn unga
Chaliapin". Síðan þetta var eru
liðin 20 ár og allan þann tíma
hefir hann verið fastur starfs-
maður við Metropolitan, en auk
þess hef ir hann sungið sem gest-
ur í öllum stærstu söngleika-
húsum heimsins og haldið hljóm-
leika í mörgum löndum.
Pinza þykir frábærlega fjöl-
hæfur óperusöngvari og jafn-
framt mikill leikari. Hann legg-
ur mikla rækt við gervin og sagt
er, að hann eigi jafnan í fórum
sínum: 35 nef, 47 hökuskegg,
51 yfirskegg, 22 eymapör, 15
„sett“ af nöglum og 41 par af
augnabrúnum.
Pinza neitar því ekki, að sér
finnist orðið tilbreytingarlítið
starfið við Metropolitan, þar
sem hann er búinn að syngja
sömu 15 til 20 óperuhlutverkin
ár eftir ár í 20 ár. Hann langar
til að reyna kraftana á einhver ju
nýju og þá helzt í kvikmyndum.
Hann trúir því ekki, að hann geti
ekki orðið eins vinsæll kvik-
myndasöngvari og sumir starfs-
bræður hans við Metropolitan,
eins og t. d. Lauritz Melchior,
Risé Stevens og Lawrence Tib-
bett. Raunar hefir hann leikið
í einni kvikmynd, „Carnegie
Hall', og munu margir hér á
landi muna eftir honum í þeirri
mynd, en hann var ekki ánægð-
ur með það hlutverk, því að
hann lék bara sjálfan sig. Ef til
vill eigum við eftir að sjá hann
og heyra í stórum hlutverkum í
kvikmyndum.
Bréfasambönd
Birtmg- á nafni, aldri og heimilis-
fangl kostar 5 krónur.
Kristján Steindórsson (15—18 ára),
Bjami Hansson (16—17 ára, mynd
fylgi bréfi), Kirkjubóli, Langadal,'
pr. Amgerðareyri, N.-ls.
Inga Ruth Olsen (16—19 ára, mynd
fylgi bréfi), Tangagötu 6, Isafirði.
Helga Þórðardóttir (16—19 ára, mynd
fylgi), Hafnarstræti 4, Isafirði.
Ragna Finnbogadóttir (16—19 ára,
mynd fylgi), Hlíð, Isafirði.
Hrefna Xngimars (16—19 ára, mynd
fylgi), Hrannagötu 1, Isafirði.
Þórey Þórarinsdóttir (16—19 ára,
mynd fylgi), Aðalstræti 32, Isafirði.
Guðrún Jónsdóttir (16—19 ára, mynd
fylgi), Smiðjugötu 10, Isafirði.
Inga Jónsdóttir (16—19 ára, mynd
fylgi), Hafnarstræti 14, Isafirði.
Martha Guðmundsdóttir (16—19 ára,
mynd fylgi), Aðalstræti 26, Isafirði.
| Tímaritið SAMTÍÐIN
| flytur yður fjölbreytt og Bkemmti-
| legt efni, sem þér fæmð annars á
mis við.
Árgjald aðeins 20 kr.
| Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
1 Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75.
MUáMOHMIIIHIIWIUIIIIMIIMfllMillllHIIIIIIMNIIIMIIIl'
Sigríður Skúladóttir (16—19 ára,
mynd fylgi), Smiðjugötu 5, Isafirði.
Bryndís Ólafsdóttir (við pilt 17—23
ára), Eyrarveg 14, Selfossi.
Steingerður Þorsteinsdóttir (við pilt
17—23 ára), Austurveg 2, Selfossi.
Þorgeir Haraldsson (11—12 ára),
Vesturgötu 24, Akranesi.
María Ögmundsdóttir (13—15 ára),
Stighúsi, Sandgerði.
Þórður Magnússon (14—16 ára),
Strandveg 1, Vestmannaeyjum.
Oddbjörg Þórarinsdóttir (20—22 ára),
Strandgötu 13, Patreksfirði.
Alda Þórarinsdóttir (18—20 ára),
Strandgötu 13, Patreksfirði.
Eiríkur G. Bjamason (10—11 ára),
Aðalstræti 15, Patreksfirði.
Agnes Engilbertsdóttir (14—16 ára),
Bima Hervarsdóttir (14—16 ára),
Súðavík, Álftafirði, N.-Isaf.
Björk Nóadóttir (14—16 ára), Kirkju-
bæ, Húsavík, S.-Þingeyjars.
Magdalena Ingimundardóttir (15—17
ára), Hlíðarveg 12, Isafirði.
Þórhalla Sveinsdóttir (16—18 ára).
Ragna Bjamadóttir (16—18 ára).
Ransý Ólafsdóttir (16—18 ára).
Valgerður Friðriksdóttir (16—18 ára),
Laugaskóla, S.-Þingeyjars.
Steinn E. Gunnarsson (við stúlku, 16
—19 ára), Torfastöðum, Biskups-
tungum.
Þóra Ólafsdóttir (12—14 ára), Lind-
argötu 10, Siglufirði.
Minny Leósdóttir (12—14 ára),
Hverfisgötu 11, Siglufirði.
PAGREIMNIIXIG
1. hefti þessa árgangs er komið út og hefir verið
sent kaupendum og bóksölum um land allt.
-■m
Helztu greinar þessa heftis eru:
Verður árið 1948 eitt merkasta ár í íslandssögu?
Hvað gerðist 2. janúar 1948?
Prinsessan af Júda.
17. maí og 11. nóvember 1948, allar eftir ritstjór-
ann Jónas Guðmundsson og Islands-geislinn, eftir
Adam Rutherford og Hvað er framundan? eftir
Bandaríkjamanninn dr. Robertson Orr.
Kaupendur eru beðnir að athuga það, að þessu hefti
fylgir póstkrafa og er þess vænst, að hún verði innleyst
sem fyrst.
Dagrenningu þurfa allir að lesa, sem fylgjast vilja
með heimsviðburðunum.
Skrifið eða símið.
Tímaritið Dagrenning9
Reynimel 28. Reykjavík. Sími 1196.
Útgefandi VTKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.