Vikan


Vikan - 08.07.1948, Page 7

Vikan - 08.07.1948, Page 7
VIKAN, nr. 28, 1948 7 Sigurður Birkis Framhald af bls. 3. tímum að syngja meðan hann var í verzl- unarskólanum og áræddi þvi að halda hljómleika í Reykjavík, er hann var kom- inn hingað heim. Söngur hans fékk hinar beztu viðtökur. Eflaust hefir þetta hvatt hann, til að snúa sér óskiptur að söngnum, og sjálfsagt hefir hann dreymt frægðar- drauma, eins og alla, sem út á þá braut leggja. Hann fór nú í annað sinn til Kaup- mannahafnar, það var um haustið 1920, og nú var það til að læra að syngja á hinum konunglega tónlistaskóla í Kaupmanna- höfn. Sú ferð var söguleg að því leyti, að skipið fórst á leiðinni, og komst Birkis lífs af, slyppur og snauður, því að aleiga hans hvarf í hafið með skipinu. Það var ekki efnilegt að hefja námið þannig efnum bú- inn, en með hjálp Guðs og góðra manna tókst honum að ráða fram úr erfiðleikun- um, og lauk prófi úr skólanum 1923. Á þessum árum söng hann með hinum nafn- kunna karlakór ,,Bel Canto“ og fór með kórnum í söngferðalag til Prag og fleiri borga og er sú söngför mikið rómuð. Birk- is hefir skrifað um hana góða grein í eitt tímaritið okkar. Síðan settist Birkis að í Reykjavík og tók að kenna söng. Kom þá í ljós, að vönt- un hafði verið á lærðum söngkennara, því að nemendur fékk hann marga, meðal þeirra söngmennina í karlakórnum K.F. U.M. (nú karlakórinn „Fóstbræður“), en þessi kór fór nokkru seinna frægðarför til Noregs, svo sem kunnugt er. Árið 1926 fór Birkis til framhaldsnáms til ítalíu, en í því landi hefir sönglistin öldum saman staðið með mestum blóma. Hann stundaði fyrst nám hjá meistaran- um Podesti eða maestro Podesti, eins og ítalir kölluðu hann. Hann var frægur söng- stjóri, og hafði hann oft spilað undir söng Carusos, enda voru herbergisveggirnir hjá honum prýddir fjölda mynda af Caruso í allskonar óperuhlutverkum. Maestro Pod- esti var þá orðinn fjörgamall og dó litlu síðar, en þá varð annar meistari kennari hans, maestro Carpi, sem var frægur, ljoð- rænn tenórsöngmaður. í ítalíu varð Birkis fyrir margskonar áhrifum og meðan hann dvaldi í Milano, þá hlýddi hann margoft á óperur í Scalasöng- leikhúsinu. Eins og nærri má geta, þá voru ekki valdir aðrir en hinir færustu söng- stjórar við söngleikhúsið, en þó bar einn af, svo bæði hljómsveit og söngvarar virt- ust leggja sig betur fram en ella, þegar hann hélt á taktsprotanum. Þessi söng- stjóri var Toscanini. Eftir þetta hélt Birkis heim til Reykja- víkur. Það var árið 1927. Hann kom við í Kaupmannahöfn og hélt þar opinberlega hljómleika og fékk ágætar viðtökur bæði hjá áheyrendum og blöðum. Berlingske Tidende minntist á sönginn og sagði, að nann hefði fullkomna ítalska söngaðferð og „klassiskt Foredrag“. Eftir að Birkis var seztur að í Reykja- vík var söngkennslan aðalstarf hans. Hann söng þó opinberlega við og við framan af og hélt nemendahljómleika. Nemendur hans voru meðal annars söngmennirnir í karlakórunum auk annara, sem löngun höfðu til að læra að syngja. Nokkrir nem- endur hans hafa síðan orðið nafnkunnir söngmenn og skal þá fyrst fræga telja óperusöngmennina Stefanó íslandi og Ein- ar Kristjánsson, sem voru báðir með fyrstu nemendum hans. Mörgum árum seinna kenndi hann Þorsteini H. Hannessjmi, Guð- rúnu Á. Símonar og Kjartani heitnum Sig- urjónssyni að syngja, en öll urðu þau síð- ar landskunn fyrir söng sinn. Anð 1928 var Birkis fenginn til að kenna „Hátíðakórnum 1930“ söng, en þetta var 100 manna blandaður kór, sem flutti verðlaunakantötu Páls fsólfssonar og önn- ur lög á Alþingishátíðinni. Árið 1929 var Birkis ráðinn til að kenna karlakórsöngmönnum að syngja og var hann í þjónustu karlakórasambandsins allt til þess tíma, að hann var gerður að söng- málastjóra kirkjunnar. Þurfti hann þá að ferðast um landið milli kóranna og var þetta mikið starf og þreytandi. Hefi ég heyrt það úr mörgum áttum, að nemend- um hans hafi fundizt mikið til um elju hans og áhuga við starfið og átti hann vináttu þeirra og hylli. Þegar Birkis var skipaður söngmála- stjóri árið 1941, þá tók hann þegar til óspilltra málanna, ferðaðist um milli safn- aðanna og stofnaði kirkjukóra, og eru þeir nú orðnir rúmlega 120 að tölu og auk þess 9 kirkjukórasambönd. Það eru skiptar skoðanir um það, með hverjum hætti safn- aðarsöngur eigi að vera. Sumir vilja hafa hann einraddaðan, en aðrir vilja hafa þjálf- aðan kirkjukór með orgelinu, sem yrði leiðandi kraftur í safnaðarsöngnum, og sú leið hefir verið farin hér á landi, svo sem víða annarsstaðar. Góður kirkjusöngur getur gert guðþjónustuna að hátíð og auk- ið mjög á áhrif hénnar. Kirkjukór í hönd- um góðs stjórnanda getur einnig sungið hin viðhafnarmeiri kirkjulög og fer oft vel á því, að syngja þau við guðþjónustur, ekki sízt á hinum meiriháttar hátíðisdög- um kirkjunnar. En það er ekki einhlítt að stofna kirkjukór, ef ekki er til hæfur mað- ur til að æfa og stjórna honum. Það sem mestu máli skiptir er það, að organistinn við kirkjuna sé vel fær um að æfa og stjórna kórnum, að hann sé gæddur þeim eldi áhugans og þeim hæfileikum búinn, að hann geti haldið uppi sönglífi við kirkju sína. Annars yrði kórinn, hversu góðum söngmönnum, sem hann væri skipaður, eins og hljóðfæri í höndum manns, sem lítið kynni með það að fara. Þetta hefir Birkis séð, og þess vegna var fyrir hans atbeina starfræktur söngskóli kirkjunnar síðastliðin vetur, en í þeim skóla var org- anistaefnum veitt kennsla, svo og söng- kennaraefnum og guðfræðinemum Háskól- ans. Þetta hygg ég, að sé rétta leiðin, því Framhald á bls. 15. Kirkjukór Akureyrar.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.