Vikan


Vikan - 04.11.1948, Page 10

Vikan - 04.11.1948, Page 10
10 VIKAN, nr. 45, 1948 iiii - HEIMILIÐ * i iiiiiiiiuiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiii 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111»'* Dýirmæfur eiginleiki .... Eftir dr. G. C. Myers. ... Matseðillinn Sveskjusúpa. 2 1. vatn. 500 gr. sveskjur (stein- lausar) 125 gr. sykur, 40 gr. sagómél, natron framan á hnífs- oddi. Sveskjurnar eru þvegnar og látnar liggja í bleyti í 12—24 klukkustund- ir I vatni, natrónið sett út í, síðan eru þær soðnar meyrar (i ca. 20 min), nokkuð af sveskjunum tekið upp og þær bornar heilar í súpunni, en hitt síað í gegnum fína síu. Súpan soðin upp með sagóméli og sykri hrærðum út í vatni. Borin fram með tvíbökum. Kálfakarbonaði. IV2 kg. kálfskjöt, 1 egg; tvíböku- mylsna, salt, pipar, smjör eða smjörlíki, til þéss að brúna í. Kjötið er þvegið, allar himnur teknar burtu, skorið í þunnar sneið- ar og barið með kjöthamri. Salti og pipar stráð yfir, dýft í egg og velt upp úr tvíbökumylsnu. Smjörið brún- að vel og stykkin steikt þar í, ca. 5 mínútur á hvorri hlið. Borðað með soðnum kartöflum. Súkkulaði búðingur. y2 1. þeyttur rjómi (þar af 1(4 dl. til skrauts), 75 gr. rifið i súkkulaði, 20 gr. kakó, 25 gr. sykur, 4 blöð matarlím. Matarlímið er lagt í bleyti. Súkku- laði, kakó og sykur er hrært saman. Rjóminn þeyttur og öllu blandað sam- an. Matarlímið er siðast sett út í. Hrært í búðingnum, þar til hann fer að stifna, þá er því hellt í glerskál. Skreytt með þeyttum rjóma. Mismunandi hárgreiðslur H U S R AÐ Skerðu laukinn aldrei á bretti; notaðu heldur öfugan disk eða smjör- pappir undir. * Hvítar marmaraplötur er gott að hreinsa með spritti eða sítrónusneið og þvo þær síðan úr sápuvatni. * Nikotin-blettum af fingrum má ná með þessari blöndu: 10 gr. vín- sýra, 10 gr. vatn og 1 gr. glyserin. * Nylon-bursta má ekki hreinsa í veitu vatni. Þeir eru þvegnir úr köldu vatni og salmiaki. * Heitt saltvatn gerir kristal falleg- an og hreinan. * Salt hreinsar baðker og handlaug- ar, og ef teppi eru burstuð úr salti skýrast litirnir. * Regnhlífar, sem eru orðnar mjög óhreinar á að hreinsa úr óblönduðu ediki. Notaðu aldrei vatn til þess. Enska kvikmyndaleikkonan Mar- garet Lockwood er hér sýnd með þrjár mismunandi hárgreiðslur. Hár- greiðslan breytir fólki ekki svo lítið eins og þið sjáið af þessu. Poreldrar ættu aö gera sér far um að efla hugmyndaflug barna sinna. Það er dýrmætt, að hugmynda- flug barnsins geti þróast, hvort sem það býr í höll eða hreysi. Enginn þarf að vera auðugur til að geta skapað með orðum og hugmyndum. Sum börn hafa reyndar svo mikið af glingri og verslegum hlutum umhverfis sig, að það skaðar hug- myndaflug þeirra. Það, sem mest getur stutt barnið í þessu efni, eru foreldrar og kenn- arar, sem geta heyrt, séð og reynt hluti, sem eru óraunverulegir og mótað hugmyndaflug barnsins ásamt því. Það er mikill skaði, að margir foreldrar vilja ekki njóta þess með barninu, þegar það tekur að svifa um heim hugmyndanna. Sumir foreldrar hlæja bara að barninu, gera gys að því. Og sumir foreldrar núa jafnvel hinu unga hugmynda- ríka barni ósannindum um nasir þegar það frá sínum bæjardyrum séð er sem næst sannleikanum. Þá bregður litla anganum e. t. v. mjög í brún, hann getur ekki gert mun á réttu og röngu. Mörg börn leiðast út í ósannsögli vegna skorts á ímyndunarafli hjá foreldrum þeirra. Við skulum gæta að því, hvers slíkir foreldrar fara á mis. Eg get vart hugsað mér annað skemmti- legra en að heyra lítil börn segja langar sögur, sem þau sjálf hafa búið til. Ég hefi skemmt mér við slíkt stundum saman. Sumar slíkar sögur hefi ég skráð eftir þeim og lofað þeim að lesa þær síðar, er þau eru orðin fullorðin, sér til mikillar ánægju. Ég bæði skemmti mér og börnunum og reyni að ýta undir hug- myndaflug þeirra með því að segja þeim alls kyns ævintýr, munnmæla- sögur og þjóðsögur. Sumir uppalendur hafa viljað halda því fram, að börn, sem slíku vend- ust, yrðu óhyggnir, ómannblendnir draumóramenn, sem ætíð myndu sniðganga staðreyndir. Þetta reynd- ist ekki svo um þau börn, sem ég minntist á áðan. Eitt þeirra varð vélfræðingur, annað vísindamaður og eitt hagfræðingur o. s. frv. Nú eru þau orðin foreldrar. Á vegi mínum hefur orðið margt ungt fólk, sem teljast verður hyggið og skynsamt, þrátt fyrir það að for- eldrar þess hafa lesið þeim sögur og ævintýri í bernsku þeirra og æsku. Ef þú héldir, að barn þitt, 15 mánaða til fimm ára gamalt, yrði náttúrufræðingur, vélfræðingur, læknir, lögfræðingur, prestur o. s. frv., ættir þú þegar í stað að gera þér far um að efla og þroska hug- myndaflug þess. Þú gætir hvatt það til að búa til smáhluti í höndunum og leika sér og starfa mikið með félögum sínum. Ef þú hyggur, að það ætli að verða verksmiðjumaður eða venjulegur dag- launamaður, ættir þú engu að síður að stuðla að þroska hugmyndaflugs þess. Það skiptir ekki máli, hvaða lífsstarf það kýs sér, það verður skemmtilegra, hamingjusamara og gagnlegra þjóðfélaginu í heild, ef það hefur fjörugt og frjótt hug- myndaflug. Fararstjóri mexikönsku Olympíu- faranna sýnir Griffen kardinála mynd af hinni frægu „heilögu jóm- frú frá Guadlupe“, í Westminster- kirkjunni i London. TÍZKUMYND Kjóll úr svörtu tafti með öklasídd.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.