Vikan - 04.11.1948, Qupperneq 13
VIKAN, nr. 45, 1948
13
Þrjár prófraunir
Eitt sinn í fyrndinni var uppi
konungur, sem engan son átti, er erft
gæti ríkið að honum látnum. Kóng-
urinn lét kalla hirðgaldramanninn
fyrir sig og mælti:
„Við verðum að gera ráðstafanir
til þess að ég fái eftirmann. Hann
verður að vera ungur og hraustur,
og umfram alt vitur. Að öðrum
kosti getur hann ekki stjórnað landi
og lýð. Segðu mér hvað þú álitur að
gera beri til þess að fá rétta mann-
inn."
Galdramaðurinn hugsaði málið dá-
litla stund. Hann átti son, sem hann
vildi gjarnan að yrði kóngur. Og nú
virtist honum tækifærið gefast. Hann
gaf kónginum ráð. Voru svo sendir
menn í allar áttir til þess að kunn-
gjöra vilja konungsins.
Boðskapurinn var þess efnis að
allir ungir menn, frá átján ára til
þrítugs skyldu mæta í höllinni og
leysa þrjár prófraunir. Sá sem bezt
tækist átti að verða kóngur.
Að nokkrum tíma liðnum mættu
mörg hundruð ungra manna, er
keppa skyldu um konungstignina.
Meðal þeirra var ungur skógar-
höggsmaður, og brostu hinir að
honum.
Maður þessi hét Jens, og var fá-
BARNASAGA
tækur. Hann grobbaði ekki eins og
hinir, en veitti öllu athygli.
Sonur galdramannsins var meðal
keppendanna. Var hann hvergi
hræddur, og leit smáum augum á
hina.
Svo hófst prófið. Enginn stóðst
það. Að lokum voru aðeins tveir
eftir. Það voru þeir Jens og sonur
galdramannsins. Áttu þeir að fara
til prófsins samtímis.
Kóngurinn sat í hásætinu og var
þreytulegur. Galdramaðurinn stóð
frammi fyrir konungi, og mælti:
,,Nú er betra að hafa augun hjá
sér. Horfið gaumgæfilega á allt, sem
er í sal þessum, og farið að því búnu
inn í stofuna við hlið salarins.
Þegar kóngurinn kallar, komið þið
og segið hvað nýtt sé í salnum. Ég
mun breyta mér í einhvern hlut. Ef
þið sjáið hvað það er, hafið þið
leyst fyrstu prófraunina."
Þeir aðgættu hvað var í salnum,
fóru inn í stofuna og voru þar þar
til kallið kom.
Galdramaðurinn hafði sagt syni
sínum í hvað hann mundi breyta
sér.
Pilturinn gekk þvi til kóngsins
Biblíumyndir
1. mynd. Ætlið ekki, að ég sé
kominn til þess að niðurbrjóta lög-
málið eða spámennina; ég er ekki
kominn til þess að niðurbrjóta, held-
ur til þess að uppfylla.
2. mynd. ... en eigi sé þvi svo
farið yðar á meðal, en sér hver sá,
er vill verða mikill yðar á meðal,
hann skal vera þjónn yðar.
3. mynd. .. . og hann hljóp fram
fyrir og steig upp í mórberjatré,
til þess að hann gæti séð hann, því
að leið hans lá þar fram hjá. Og
er Jesús kom þangað, leit hann upp
og sagði við hann: Zakkeus, flýt þér
ofan, þvi að í dag ber mér að dvelja
i húsi þinu.
4. mynd. En Zakkeus gekk fram
og sagði við drottinn: Sjá, herra,
helming eigna minna gef ég fátæk-
um, og hafi ég haft nokkuð af nokkr-
um, gef ég honum ferfalt aftur.
hugsa sig um. Nú ætlaði kóngur að
taka til sinna ráða.
Er galdramaðurinn hugðist að
breyta sér í þriðja sinn sagði kóngur-
inn:
,,Ég krefst þess að þú breytir
þér í vín í eitt af þessum glösum.
Ef þeir leysa báðir þessa þraut verð-
um við að finna upp eitthvað nýtt.“
Galdramaðurinn maldaði í móinn.
En kóngurinn hélt fast við þessa
kröfu. Og varð galdramaðurinn að
hlýða. Þegar sonur hans kom hvíslaði
hann að kónginum:
„Faðir minn hefur breytt sér í
fiðrildið, sem —“
„Hvaða vitleysa," sagði kóngur-
inn. „Hvar er það fiðrildi?"
Sonur galdramannsins starði riftgl-
aður í kringum sig. Það var ekkert
fiðrildi sjáanlegt. Hann þagði.
Svo kom Jens. Hann mælti:
„Ég sá hér áðan þrjú tóm glös.
Nú er vín i einu þeirra. Ég hef það
á loft og drekk skál konungsins."
1 sama bili og Jens tók glasið
breytti galdramaðurinn sér í sína
réttu mynd. Var hann fokvondur.
Jens missti glasið, og brotnaði það.
„Jens hefur sigrað," mælti kóngur-
inn. Þegar galdramaðurinn heyrði
þetta varð hann enn reiðari, en þó
hræddur samtímis.
Hann flaug því burt með son
sinn, því hann vildi ekki vera í
nánd við svo vitran mann sem Jens,
er hafði leyst allar þessar próf-
þrautir með prýði og hann gat ekki
villt sýn.
Kóngurinn var mjög ánægður yfir
því að losna við galdramanninn, og
gerði hann Jens þegar að ríkis-
erfingja. Hann var vitur og varð
ágætur konungur.
Veiztu þetta — ?
Mynd efst til vinstri: Hinar þrettán nýlendur í Norður-Ameríku brutust
undan Englendingum sökum hinna háu skatta, sem lagðir voru á þar. En
nú á dögum eru sambandsskattarnir einir hundruð sinnum hærri. Mynd
neðan til vinstri: Hve mikla lífsorku notar maður þegar hann situr? Sem
svarar til þess, sem 100 kerta rafmagnspera notar. Mynd í miðju: Allar
köngulær geta gefið frá sér eitur en fáar eru mönnum hættulegar. Mynd
til hægri: Risa-fíkjutréð í Himalayafjöllum ber ávexti sina allt frá rótum
upp að greinunum.
og hvíslaði rétta svarinu að honum.
Jens var hugrakkur og gaf öllu
gætur. Hann sá svartan gimstein í
kórónu kóngsins, er hann áður hafði
ekki séð.
Jens mælti:
„Þessi svarti gimsteinn var ekki
í kórónu yðar hátignar. Hann hlýtur
því að vera galdramaðurinn."
Þetta var rétt svar. Galdramaður-
inn breytti sér í sína réttu mynd.
Hann horfði reiðilega á Jens. En nú
kom önnur prófraunin.
Sonur galdramannsins leit háðs-
lega á Jens, er hann gekk til kóngs-
ins og hvíslaði laukréttu svari að
honum.
Jens horfði á allt í salnum góða
stund. Að því búnu sagði hann:
„Þetta teppi, sem liggur framan
við kónginn bar ekki þessa liti. Það
er galdramaðurinn, sem hefur breytt
sér í teppi. Hitt teppið liggur undir
þessu."
Þetta var rétt. Galdramaðurinn
var nú orðinn enn reiðari en áður.
En það var ekki öll von úti. Og
galdramaðurinn vildi gera son sinn
að kóngi hvað sem það kostaði.
Kóngurinn var farinn að gruna
galdramanninn um græzku. Hann
var forviða á því hve sonur galdra-
mannsins hafði svörin á reiðum
höndum. Jens hafði þó orðið að