Vikan


Vikan - 24.02.1949, Blaðsíða 2

Vikan - 24.02.1949, Blaðsíða 2
2 VIKAN, nr. 8, 1949 POSTURINN • Svar til „Draumadfsar“: Við birt- um ekki drauma og ráðum þá ekki heldur. Skriftin er slæm og réttrit- unin bágborin. Kæra Vika min! Ég hefi einu sinni áður skrifað þér um sama efni og ég skrifa þér nú, en ekkert svar fengið, — og nú von- ast ég fastlega eftir svari. Hvaða menntun þarf til að fá inntöku í iðnskóla? Er nóg að hafa verið tvo vetur á Héraðsskóla (annan i smíða- deild) ? Hvað er langur námstimi við að læra tré- og múrsmiði? Fá nem- endur kaup ? Þá hvað mikið ? Eru fleiri námsgreinar skyldar? — Svo vonast ég fljótt eftir svari. Ég þakka allar ánægjustundir, sem þú hefur veitt mér. Vertu margbless! H. E. H. V. ES. Hvemig er skriftin. Svar: Tveggja vetra Héraðsskóla- nám er yfrið nóg. Námstíminn er 4 ár. Eitthvað kaup er greitt, og meistari kostar skólagönguna. Al- mennar námsgreinar eru íslenzka, reikningur og teikning og svo ýmis- legt í efnisfræði, sem við kemur iðn- greininni. — Skriftin er dálítið hroð- virknisleg, en ekki ósnotur. Mig iangar til að spyrja þig, Vika mín, nokkurra spurninga, og von- ast eftir svari sem fyrst. 1. Er sérstök tungumáladeild innan Bréfaskólans ? 2. Hvert er heimilisfang skólans? 3. Hvað mun það kosta, að taka þátt í t. d. 3 málum ? Með fyrirfram þakklæti. X. Svar: 1. Bréfaskóli Sambands ísl. samvinnufélaga kennir tvö tungumál: íslenzku og ensku. — 2. Heimilisfang- ið er: Sambandshúsinu, Reykjavík. — 3. Námskeiðið í hverri grein fyrir sig kostar 75 krónur og nær það yfir 7 bréf. Allar frekari upplýsing- ar má fá með því að skrifa skól- anum. Kæra Vika! Mig langar til að vita, hvort þú getur frætt mig um þetta. Hvað lang- ur tími getur verið liðinn, þegar sagt er: Það skeði fyrir nokkru, og er nú lokið. Með kæru þakklæti. Kaupandi. Svar: Það fer alveg eftir þvi, hvað við er átt. [ Tímaritið SAMTÍÐIN j | Flytur snjallar sögur, fróðlegar l | ritgerðir og bráðsmellnar skop- • sögur. { 1 10 hefti árlega fyrir aðeins 20 kr. ; j Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. = : Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75. ; Mynd þessi er af fegurðadrottningu sameinuðu þjóðanna, sem kjörin var í Washington. Stúlkan er tyrknesk og höfðuðdjásnið, sem hún ber, er Josephine keisaradrottning talin hafa þegið að gjöf frá Napoleon. Kæri hr. ritstjóri. Ég ætla að senda hér nokkrar f ræð- andi línur í sambandi við svar yðar eða réttara sagt Vikunnar, sem þið gátuð ekki svarað fullnægjandi, en eftir því sem ég bezt veit um þessa glutamsýru (glutamic acid), þá fæst hún i Lyfjaverzlun ríkisins, og er nýlega komin þangað. Svo bið ég afsökunar á þessari framhleypni i mér. Með virðingu fyrir Vikunni og rit- stjóra hennar. S. Á. Halló, margfróða Vika! Ég vona, að þetta bréf lendi ekki í bréfakörfunni, eins og þau sem ég hef áður sent þér. Ég er frekar fáfróð, og það er margt, sem mig langar til að vtia, og þess vegna leita ég til þín. Viltu segja mér, hvernig á að geyma rauðrófur svo þær ekki skemmist. Ég vonast eftir svari í næsta blaði. Með fyrirfram þakklæti fyrir birt- inguna. — Hvernig er skriftin? H. P. Svar: Það er erfitt að geyma rauð- rófur án þess þær linist. Mestu máli skiptir, að þær séu á köldum og þurr- um stað. Hinsvegar er hægt að geyma þær nokkuð lengi eftir að þær hafa verið soðnar og lagðar í edik. Hreinar léreftstuskur ( keyptar [ Steindórsprent h.f. Bréfasambönd Birting á nafni, aldri og heimilis- fangi kostar 5 krónur. Henny Eldey Vilhjálmsdóttir (við pilta 13—15 ára), Merkinesi, Höfn- um, Gullbringusýslu. Sverrir Lúthersson (við pilt eða stúlku 14—18 ára), Héðinn Emilsson (við pilt eða stúlku 14—18 ára), Sveinn Þórarinsson (við pilt eða stúlku 14—18 ára), Eiðum, Suður- Múl. Fjóla Ásgrímsdóttir (við pilta 16-—18 ára, mynd fylgi), Suðurgötu 20, Akranesi. Erla Karlsdóttir (við pilta 16—18 ára, mynd fylgi), Kirkjubraut 9, Akranesi. Drífa Garðarsdóttir (við pilta 16—18 ára, mynd fylgi), Suðurgötu 32, Akranesi. Hansína Vilhjálmsdóttir (við pilt eða stúlku 22—32 ára, mynd fylgi), Sigurhæðum, Isafirði. Bryndís Einarsdóttir (við pilta eða stúlkur 15—17 ára), Rebekka Einarsdóttir (við pilta eða stúlkur 15—17 ára), Fjarðar- stræti 27, Isafirði. Kristinn Egilsson (við stúlkur 16—18 ára, mynd fylgi), Vallargötu 15, Keflavík. Ingibergur Egilsson (við stúlku 14 —16 ára, mynd fylgi), Valiar- götu 15, Keflavík. Benedikta Helgadóttir (við pilta eða stúlkur 16—18 ára, mynd fylgi), Guðný Runólfsdóttir (við pilta eða stúlkur 16—18 ára, mynd fylgi), Gyða Guðmundsdóttir (við pilta eða stúlkur 16—18 ára, mynd fylgi), Helga Einarsdóttir (við pilta eða stúlkur 16—18 ára, mynd fylgi), Margrét Guttormsdóttir (við pilta eða stúlkur 16—18 ára, mynd fylgi), allar á Eiðaskóla, Eiðaþinghá, pr. Reyðarfirði. Gerður Þórðardóttir (við pilta 18—22 ára, mynd fylgi), Hjarðarholti, Dalasýslu. Inga Guðbrandsdóttir (við pilta 18 -—22 ára, mynd fylgi), Lækjar- skógi, Dalasýslu. Hreggvlður I. Sigriksson (við stúlku 17-—20 ára, æskilegt að mynd fylgi), Suðurgötu 83, Akranesi. Hreinn Elíasson (við stúlku 15—17 ára, mynd fylgi), Heiðarbraut 19, Akranesi. Sigríður Georgsdóttir (við pilt 18—22 ára, mynd fylgi), Melteig 16B, Akranesi. Lúðvíg A. Halldórsson (við pilt eða stúlku 15—17 ára), Kirkjutorgi, Sauðárkróki. Þorvaldur Óskarsson (við stúlku 15 —16 ára, mynd fylgi), Sleitustöð- um, Skagafirði. Snæbjörg Snæbjarnardóttir (við pilta 16—19 ára), Aðalgötu 5, Sauðár- króki. Kolbrún Svavarsdóttir (við pilta 16 —19 ára), Freyjugötu 22, Sauðár- króki. Gyða Jóhannsdóttir (við pilta eða stúlkur 18—25 ára), Alda Vilhjálmsdóttir (við pilta eða stúlkur 18—25 ára), báðar á Kvennaskólanum á Blönduósi. Sigrún Sigurðardóttir (við pilt 19—20 ára), Guðmundur Sigurðsson (við pilt eða stúlku 16—18 ára), bæði í Hólma- seli, Gaulverjabæjarhrepp. Árnes- sýslu. S. Helga Márusdóttir (við pilt 19—28 ára, mynd fylgi), Box 375, Reykja- vík. Óiafía G. Hagalínsdóttir (við pilt eða stúlku 17—20 ára), Grettis- götu 83, Reykjavík. Lovísa Marinósdóttir (við pilt eða stúlku 18—20 ára), Stórholti 33, Reykjavík. Jóna Guðbergsdóttir (við pilt eða stúlku 18—22 ára), Leifsgötu 25, Reykjavík. Armann (Sjá forsíðu). Nýlokið er mikilfenglegum hátíðarhöldum í tilefni af því, að 15. desember síðastliðinn var Glímufélagið Ármann sextíu ára. Komu þá glögglega í ljós vinsældir þessa ágæta félags, sem með fjölþættri starfsemi sinni hefur verið æskulýðnum hinn heppilegasti og heilbrigð- asti skóli í íþróttum og félags- lífi. Helgi Hjálmarsson prestur, Pétur Jónsson blikksmiður og Guðlaugur Guðmundsson sýslu- maður voru fyrstu forustumenn félagsins, en fyrsta kappglíma þess fór fram 1889. Glíman var eina viðfangsefnið til að byrja með og lengi fram eftir, en nú eru þar iðkaðar margar íþrótta- greinir og hefur fjórtán manns þjálfun og íþróttakennslu með höndum á vegum félagsins, en kennt er m. a. glíma, leikfimi, sund, sundknattleikur, róður, handknattleikur, frjálsar íþrótt- ir, skíðaíþrótt, hnefaleikar, dansar og vikivakar. Frægastur kennara félagsins er Jón Þor- steinsson, hinn ágæti íþrótta- frömuður, og hefur hann víða farið erlendis með Ármanns- flokka, félaginu og landi voru til sóma. Það er stórmál, sem félagið er nú að vinna að og rík áherzla verður lögð á að komist í framkvæmd sem fyrst, er bygging félagsheimilis og íþróttasvæðis, og er enginn vafi á að þetta hvortveggja verður með myndarbrag, enda á starf- semi slíks félags það sannar- lega skilið. Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.