Vikan - 07.04.1949, Síða 1
Lúðrasveit Vestmannaeyja 10 ára
Lúðrahljómurinn er ekki lengur nýstár-
legt fyrirbæri í Vestmannaeyjum. Það
mun nú liðið langt að aldarhelmingi síð-
an lúðrasveit lét þar fyrst til sín heyra.
Síðan hefur horna-músikin haldið áfram
að óma þar um byggð og bergmála i f jöll-
um — að vísu með óeðlilega löngum
þögnum til þess að geta talizt samfelld
hljómkviða. — En ný lúðrasveit hefur þó
jafnan risið upp á grunni þeirrar eldri,
sem varð að láta staðar numið við ein-
hverja torfæruna, sem hennar samtíð réð
ekki við.
Þannig höfðu sveitir þeirra Brynjúlfs
Sigfússonar organista, Helga Helgasonar
tónskálds og Hallgríms Þorsteinssonar
söngkennara ræktað jarðveginn, þegar sú
lúðrasveit, sem nú starfar í Eyjum óx úr
grasi.
Lúðrasveit Vestmannaeyja var stofnuð
hinn 22. marz 1939 og á því 10 ára afmæli
um þessar mundir.
Framhald á bls. 3.
ÍB»Aí ' < T f , ' "r i." »*.
~ Jb| - m Wk
Lúðrasveit Vestmannaeyja 19J/9. Standandi frá vinstri til hægri: Gísli Brynjólfsson, 1. tromma. Hafsteinn Ágústsson, X. tenór. Svanur Kristjáns-
son, trekkbásúna. Hreggviður Jónsson, form., 1. túba. Karl Guðjónsson, ritari, 2. tenór. Jóhann Gíslason, 1. tenór. Erlingur Ágústsson, 3. tenór.
Alfons Björgvinsson, 2. tromma. — Sitjandi frá vinstri til hægri. Sigurður Markússon, klarinett. Guðlaugur Kristófersson, 1. corinett. Erlendur
Eyjólfsson, 2. corinett. Oddgeir Kristjánsson, stjórnandi og gjaldkeri. Guðjón Kristófersson, 3. corinett. Baldur Kristinsson, 1. alt. Óskar Sigurðs-
son, 2. alt.