Vikan - 07.04.1949, Side 3
'VTKAN, nr. 14, 1949
3
Árbók Ferðafélags Islands:
Vestmannaeyjar
Árbækur Ferðafélagsins eru ákaflega
vinsælar, eins og flestum mun kunnugt.
Þær hafa selzt svo, að nokkrir árgangar
þeirra hafa lengi verið algerlega ófáanleg-
ir, en unnið er að því að bæta úr þessu, ný
útgáfa af þessum uppseldu árbókum mun
vera á leiðinni og er það mikið fagnaðar-
efni öllum þeim, sem hafa saknað þeirra.
Árbókin fyrir síðastliðið ár er um Vest-
mannaeyjar. Aðalhöfundur hennar er Jóh.
Gunnar Ólafsson, bæjarfógeti á ísafirði.
Um þetta segir í formála: ,, . . . Ferðafé-
lag Vestmannaeyja fór fram á það við
Ferðafélag íslands fyrir rúmu ári, að Ár-
bókin flytti lýsingu Vestmannaeyja við
fyrstu hentugleika, og benti á Jóhann
Gunnar Ólafsson, bæjarfógeta á Isafirði,
sem æskilegan höfund. Stjórn Ferðafélags-
ins féllst á þetta, og Jóhann Gunnar tók
verkið góðfúslega að sér, en hann er upp-
alinn í Eyjum, sem kunnugt er, og manna
fróðastur um sögu þeirra, örnefni og at-
vinnuhætti. Auk þess hefur hann fengið í
lið með sér f jóra valinkunna menn og sér-
fróða, sem lagt hafa til sinn kaflann hver
um náttúru Eyjanna. Ritar Trausti pró-
fessor Einarsson um jarðfræði, Þorsteinn
íþróttafulltrúi Einarsson um fuglalífið,
Baldur héraðslæknir Johnsen um gróður-
inn og Geir Gígja um skordýralífið. . . .“
Fjöldi ágætra mynda er í Árbókinni,
enda hefur verið leitað fanga til hinna
beztu manna x þvi efni, en það eru þeir
Kjartan Guðmundsson, G. Fr* Johnsen,
Kjartan Ó. Bjarnason, Guðmundur Hann-
esson, Þorsteinn Jósepsson, Páll .Jónsson,
Arinbjörn Ólafsson, Sigurjón Jónsson,
Friðrik Jesson, Guðni Þórðarson og Þor-
steinn Jónsson. Auk þess eru nokkrar
teikningar eftir Engilbert Gíslason. Svo
fylgir og litprentað kort af Eyjunum. Að-
alhöfundurinn segir m. a. í niðurlagsorð-
um: „ ... Ég vil sérstaklega vekja at-
hygli á ritgerð dr. Trausta Einarssonar um
jarðsögu Vestmannaeyja. Þetta er í fyrsta
skipti, sem tekin er til rækilegrar og vís-
indalegrar athugimar myndun Vestmanna-
eyja. Niðurstöðumar eru nýstárlegar og
varpa nýju ljósi á ýms vafaatriði í sögu
Vestmannaeyja. Pramhaid á bis. 7.
Lúðrasveit
Vestmannaeyja
Framhald af forsíðu.
Stofnendur voru 9 ungir menn. Af þeim
voru aðeins 2, sem áður höfðu iðkað
lúðraleik, þeir Hreggviður Jónsson og
Oddgeir Kristjánsson, enda voru þeir aðal-
forgöngumenn um félagsstofnunina.
Aðrir stofnendur voru: Árni Guð-
mundsson frá Háeyri, Árni Guðjónsson
frá Breiðholti, Kjartan Bjarnason frá
Djúpadal, Jóhann Gíslason frá Uppsölum,
Haraldur Kristjánsson, nú rakari í
Reykjavík, Guðjón Hjörleifsson, nú múr-
arameistari í Keflavík og Karl Guðjóns-
son frá Breiðholti.
Hin fyrsta stjóm var þannig skipuð:
Hreggviður Jónsson, formaður. Oddgeir
’Kristjánsson, gjaldkeri. Karl Guðjónsson,
ritari-
Þessi stjórn hefur haldizt æ síðan, en
nú skipa stjórnina auk þessara manna
Svanur Kristjánsson og Jóhann Gíslason.
Oddgeir Kristjánsson hefur stjómað
.sveitinni frá upphafi og nýtur hins bezta
trausts í því starfi, enda er hann mikill
áhugamaður um tónlist og óþreytandi
starfsmaður á því sviði.
Æfingar hafa jafnan verið tvær í viku
hverri, sumar og vetur og mun sveitin
því eiga um 1000 æfingar að baki.
Mjög hefur það háð sveitinni, hve ó-
stöðugir atvinnuhættir Vestmannaeyinga
eru. Þó hefur hitt verið enn verri ann-
marki í félagsstarfinu hin síðustu ár, hve
hljóðfærakosturinn er lélegur, enda eru
flestir lúðrarnir erfðagripir frá eldri
lúðrasveitum. En vonir standa til að úr
þessu rætist á næstunni.
Starfandi félagar í Lúðrasveit Vest-
mannaeyja em nú 17, þar af aðeins 4,
sem starfað hafa frá upphafi.
I tilefni afmælisins efnir sveitin til
afmælishófs og opinberra hljómleika um
páskana í byggðarlagi sínu.
Lúðrasvelt Vestmannaeyja 1940. Standandi frá vinstri til hægri: Jón Kristinsson, 2. tromma.
Hreggviður Jónsson (stofnandi), 1. túba. Árni Guðjónsson (stofnandi), 3. corinett. Kjartan Bjarna-
son (stofnandi), 3. tenór. Jóhann Gíslason (stofnandi), 2. tenór. Karl Guðjónsson (stofnandi), 1.
tenór. Björn Sigurðsson, 2. tenór. Jónas Dagbjartsson, 2. corinett. Gisli Kristjánsson, 2. túba.
Sigurður Guðlaugsson, 1. tromma. — Sitjandi frá vinstri til hægri: Haraldur Ki'istjánsson (stofn-
andi), 1. corinett. Guðjón Hjörleifsson (stofnandi), 1. alt. Oddgeir Kristjánsson (stofnandi), og
stjórnandi, Guðlaugur Kristófersson, 2. alt.
V
Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur á Austurvelli 1948. (Pétur Thomsen tók myndina.)