Vikan


Vikan - 14.07.1949, Blaðsíða 7

Vikan - 14.07.1949, Blaðsíða 7
VIKAN, nr. 28, 1949 7 Gamanvísur í>að er ekki ofsögum sagt af vinsæld- um Alfreds Andréssonar sem gamanleik- ara og gamanvísnasöngvara. Hvar sem hann lætur sjá sig og heyra í sér í söng eða leik komast menn í gott skap og hlæja sér til heilsubótar. „Slíkir menn eru þarfir þjóðinni“ er oft sagt um ýmsa menn, sem þykja hafa unnið nytsöm störf fyrir land sitt; við sjáum ekki betur en að þessi orð eigi prýðilega við Alfred og „hlutverk“ hans meðal okkar, því að íslendingar hafa löngum hlegið of sjaldan og of lítið! Alfred Andrésson hefur nú gefið út annað hefti af „Gamanvísum“, eftir ó- nefnda höfunda, sem hann hefur sungið við ýms tækifæri og þykir flestum fengur í að fá slíka bók í hendurnar. Gallinn er aðeins sá, að ekki fylgir með undir hvaða lögum kvæðin eru ort, þó að margir geti auðvitað fundið það út, hver þau eru. Sumum finnst það ókostur, að ekkert efnisyfirlit er í bókinni. En þetta eru ekki stórvægilegir gallar. Heftið hefst á „Hjónabandsvísum“ og er þetta lokaerindið í þeim: Þá er nú ekki burðulegt í bólinu á kvöldin, bölvað ekki sins þverlyndið, sem hefur alltaf völdin. Hún lemur mig eins og harjfisk, ef mig langar til að vona og lætur mig snúa hinsegin, þegar ég vil snúa svona. Svo koma „Raunir piparsveinsins“, „Kjósið M-listann“, „Rottugangur", „Á ferð og flugi“, „Hún Sigga“, „Fyrr og nú“, „Afburðamaðurinn", „Reykjavíkur- lífið“, „Lofsöngur til kvenna“, þar í er þetta erindi: Og nýjan hatt hún fær sér aðeins áttunda hvert ár, en ekkert spyr um tízkuna, sé prisinn nógu lár. Að konan vendi hverri flík og hryggist ekki par — það hljómar likt og áróður við næstu kosningar. Síðan kemur „í ríkissjóð", „Söngur úr síldinni“, Bjórfrumvarpið", „Kvæði fert- ugrar konu af Akranesi“, „Um dagiim og veginn“, „Skömmtun“, „Til viðskipta- nefndar“, þar er þetta erindi: Ég hef, — sko — til útlanda erindi brýn, sem ei geta dregizt lengur. — 1 Florida liggur hún frænka min og fer víst að deyja, eins og gengur. Og í New York er frændi minn kominn í kör, karlhróið, alveg að deyja, það gæti því orðið gjaldeyrisför þótt gott verði ei um að segja. Viðskiptanefnd! Hressari í hnjánum ég kem máske aftur með arf, — you see! arðmeiri dollaralánum. Þá koma kvæðin „Um ungar og gaml- ar jómfrúr“, „Þjóðvarnarfylkingin og annað þess háttar“, „Happdrættisbíllinn“, „Fegrum bæinn“, „Peningalykt“, „Draum- ur leikaraspíru um þjóðleikhús og margt fleira“, „Stóð ég út hjá þinghúsi“, „Dönsku pillurnar“, „Bæjarfréttir“, „Ég kem þar ekki aftur“, ,,Bæjarfréttir“, „Vísur um ís- lenzku herstjórnina“, „Þegar rafmagns- staurinn brotnaði fyrir austan“, „Ég þekki mann . . .“, þar er þetta erindi: Ég þekki mann, sem þekkir menn á mikið háum stað, og maður þessi sagði mér, — í laumi auð\ntað, að bráðum kæmi í lög að sækja leyfi um andardrátt og líka þyrfti að sækja leyfi um hjartaslátt . . . Þ'á kemur sér nú vel að þekkja mann, sem þekkir menn, í mikilvægum stöðum, — já, það gengur svo til enn, að hnippa í þann fyrsta, sem svo hnippir í næsta mann, það heitir að redda smávegis fyrir kunningjann. Síðasta kvæðið í heftinu heitir „Óður einyrkjans" og er um ráðningu þýzka verkafólksins hingað til lands. Beira í Austur-Afríku Framhald af bls. 3. mennirnir saman öllum sínum veraldlegu fjármunum, konum og krökkum. Þar sofa þeir líka. — Japanskar fjölskyldur eru einnig við þessa götu. Er þú hefur gengið yfir nokkrar fleiri brýr, kemur þú á aðalgötuna. Þar eru verzlanir með rándýrum varningi. Ensk föt eru þar meðal annars til sölu fyrir geypilegt verð. Samhliða götu þessari er „Indverski markaðurinn“. Með harki og prútti eru nokkrar líkur til, að þér takist að herja þar út fallega indverska dúka á þolanlegu verði. Sitt hvoru megin þeirrar götu eru kvik- myndahúsin tvö. Þar er miðstöð sam- kvæmislífsins. Evrópumenn bíða hver annars í drifhvítum smókingum undir flöktandi ljóskerum. Á ljósmynd gæti þetta litið ekki ólaglega út, en er í raun- inni ekki eftirsóknarvert. Annar aðalvettvangur samkvæmislífs- ins er „kabarettinn“. Þar er fimm manna hljómsveit með frumlegar skoðanir á því, hvernig leika skuli jazz, kvenróma dans- lagadúllari og kona með viðkvæma rödd. Allir verða að koma þangað virðulega klæddir, en fötin eru þar fljót að óhreink- ast og pyngjan enn fljótari að tæmast. Þótt Ijósadýrð sé nokkur umhverfis kvikmyndahúsin, er bærinn yfirleitt ljós- laus að kalla. Þú ert því hálfsmeykur að paufast áfram í myrkrinu og hrekkur í kút við hinn minnsta hávaða. En hér er ekkert illt að óttast. Bæjarbúar hafa prýðilega framkomu, og það er engin hætta á, að þeir fylli þig og veiti þér síðan aðför, eins og siður er í Durban, eða betli og barmi sér eins og í Bombay og Port Said. En samt ertu hræddur og vilt ekki vera einn á ferð. Þú leitar drykkjukránna og þeirra er skammt að leita, þær eru á hverju strái. Ef þú tímir að eyða þremur skild- ingum fyrir bjórpotti (kostar rúman skilding í Englandi) skaltu veita þér þann munað, því að það er ósvikinn drykk- ur. Hann er rótáfengur og himneskur á bragðið. Það jafnast enginn enskur bjór á við hann. Þarna fæst líka kampavín og koníak og kostar nokkra skildinga flask- an. Af innlendum vínum er hægt að drekka nægju sína fyrir sama og ekkert verð. Portúgalska lögreglan í Beira er fá- menn, en að sama skapi harðhent, eink- um við enska sjómenn, enda er þeim betra að drekka lítið og gæta sæmdar sinnar, því að lögregluþjónunum er það sannkall- að gleðiefni að geta danglað í Englendinga með kylfu eða skammbyssuskefti. Þannig er það ekki margt, sem hægt er að skemmta sér við í Beira. Þar eru engin gullin tækifæri. Það skársta, sem hægt er að gera, er að eyða kvöldstund í járn- bfautarklúbbnum með enskum og skozk- Framhald á bls. 14. Rómversku vatnsveiturnar voru samanlagt um 600 km. langar og birgðu Róm með 1 millj. lítra af vatni á sólarhring. Þetta vatn vegur 1000 tonn. Niagarafossarnir flytja 572 millj. m3 af vatni á sólarhring. I ; | Heimsmetið í kafsundi var sett af John Howard í Cicago, árið 1938. Hann synti 138 m. í kafi á 2 mín. 35 sek. En enn merkilegra er metið fyrir að halda sér í kafi, sem var sett af Frakkanum Pouliquen árið 1912, en hann hélt cér í liafi í 6 mín. 29,2 sek.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.