Vikan - 21.07.1949, Síða 8
8
VIKAN, nr. 29, 1949
Gissur nœr sér niðri.
I
Rasmína (grætur): Herra Ofanvarp, leigjandinn
uppi á lofti, ætlar að senda kvörtun til húseigand-
ans út af söngnum mínum og þá verðum við rekin
út, út, ú—hú—hú.
Dóttirin: Vertu ekki fást um það, mamma. Við
fáum einhversstaðar inni.
Rasmína: Gissur, góði, talaðu við herra Ofan-
varp og biddu hann að senda ekki kvörtunina. Við
getum aldrei fengið aðra íbúð.
Teikning eftir George McManus
Gissur: Kona Ofanvarps segir, að hann hafl
ætlað á skemmtigöngu. EJg vildi gjarnan tala við
hann, því að mig langar ekkert til þess að verða
að hírast á götunni.
Gissur: Halló, Ofanvarp, mig langar til þess að
tala við yður.
Ofanvarp: Ég á ekkert vantalað við yður.
Gissur: Hann vill ekki tala við mig. En ég hugsa
honum þegjandi þörfina.
Daginn eftir. Frú Ofanvarp: Drottinn minn dýri!
Hér er tilkynning um það, að Gissur sé búinn að
kaupa húsið!
Herra Ofanvarp: Hvað ertu að segja, kona?
Nú rekur hann okkur út. Ég verð að tala við hann.
Herra Ofanvarp: Mig langar til þess að tala við
Gissur. Ég heiti Ofanvarp.
Kalli: Hann hefur búizt við yður í allan dag.
Herra Ovanvarp: Gissur, mér þykir mjög fyrir
því, hvemig ég hagaði mér í gær. Munduð þér vilja
lofa mér að vera, ef ég lofa því að kvarta aldrei
undan söng konu yðar?
Gissur: Nei, það kemur ekki til mála-------
Gissur: — — En ég skal lofa yður að vera, ef
þér lofið því að halda áfram að kvarta yfir söng
hennar. Eg hef gert það í 30 ár, en hún tekur ekki
minnsta tillit til þess.