Vikan


Vikan - 04.08.1949, Blaðsíða 14

Vikan - 04.08.1949, Blaðsíða 14
14 VIKAN, nr. 31, 1949 Verkfall á sjó! I ÞOKUIMIMI Framhald af bls. 4. unnar. Þau höfðu ákveðið merki, eða blístur. Hún fann til öryggiskenndar við það að vita af honum í nánd, þó að hún sæi hann ekki. Sporvagnar og bílar óku hægt, það grillti aðeins í þá vegna þoku, sudda og myrkurs. Gregers fór út á götuna og ætlaði yfir til hennar. Það þótti henni óviturlegt. Þau þurftu að komast þeim megin við götuna, sem hann var. Hún vildi reyna að mæta honum á miðri leið, og svipaðist um eftir tækifæri til þess. Bíll hemlaði og bílstjórinn skammaði hana fyrir að vera á leið hans. Svo kom annar bíll er hemlaði svaka- lega, sporvagn staðnæmdist, hemlar hvinu bílaþvagan var óskapleg. Þá heyrðist maður æpa og veina. Hún hrópaði ósjálf- rátt: ,,Gregers!“ Hún ruddi sér braut þó erfitt væri. Henni varð það ijóst að hún liti aldrei glaðan dag ef Gregers hefði verið drep- inn. Þetta var henni að kenna. Hún hafði hringt til hans. Hún olnbogaði sig áfram í gegnum mannþröngina, og fór óvarlega. Skyndilega var hún gripin og lyft upp. „Ætlarðu líka að láta aka á þig, litli kjáninn?" heyrði hún sagt um leið. Það var Gregers, sem hafði ávarpað hana og komist með hana yfir götuna. Nú voru þau á réttum kanti. Hún hallaði höfðinu að brjósti Gregers, þó að regnfrakki hans væri rennvotur, og brast í grát. „Gráttu bara,“ hvíslaði hann. Rödd hans var hjartnæm. „Þú varst hrædd. Það var ekið á mann, hann féll á götuna og slasaðist. Sjúkrabíllinn er að koma.“ Hún hugsaði: „Ég áleit að þú hefðir orðið fyrir slysi. Guði sé lof að svo var ekki.“ Hana langaði til þess að syngja af gleði, þar sem Gregers var ósærður. Hún ætlaði að giftast honum þrátt fyrir breyt- ingu þá, sem við það yrði á heimilinu. Hún elskaði Gregers miklu meira en allt dótið. 485. krossgáta Vikunnar Lárétt skýring: 1. Fljótsendi. — 4. hús- dýr. — 8. kvæðabók. — 12. gangur. — 13. efni. — 14. kyn. — 15. bera. — 16. ilraa. — 18. sæg. — 20. viðkvæmu. — 21. ó- hljóð. — 23. flana. — 24. kv.n. — 26. mjóstar. — 30. stía. — 32. ending. — 33. tölur. — 34. tíndi. — 36. óskipta. — 38. inn- ganga. — 40. samhl. — 41. verzlun í Rvík. — 42. fornmanns. — 46. áhald. — 49. ending. -— 50. sam- tenging. — 51. samhl. —- 52. sláa. — 53. soðningu. — 57. hljóm. — 58. hvílu- staður. —- 59. ending. — 62. veiki. — 64. húsdýr. 66. sjúkdómur. ■— 68. verða. — 69. verkfæri. — 70. atvinna. — 71. eldsneyti. — 72. heimskingi. — 73. fugl. — 74. marga. Lóðrétt skýring: 1. andar. — 2. fljót. — 3. gerjun. — 4. æði. — 5. viðbótanna. — 6. mannsefni. — 7. óhreinka. — 9. húsdýr. — 10. æðisgengin. — 11. efni. — 17. óhljóð. — 19. elska. — 20. for. — 22. minnis- merki. — 24. kv.n. þ.f. — 25. blað. — 27. atv.orð. — 28. gróðurblettur. — 29. skinni. — 30. kulda. — 31. eftirnafn. — 34. prísir. — 34. sáld. — 37. skáldað. — 39. hreysi. — 43. samhl. — 44. hreyf- ingar. — 45. áfella. — 46. búverk. — 48. öryggi. — 53. líkamshl. — 54. bæjarn. — 55. ending. — 56. fugl. -— 57. frem glæp. — 60. sárt. — 61. mannsn. — 63. fóru. — 64. í hálsi. — 65. kvika. — 67. gælun. Lausn á 484. krossgátu vikunnar. Lárétt: 1. megn. - 4. ungabörnum. - 12. las. - 14. alull. — 15. naumar. — 17. óræktina. — 19. nauða. — 20. sór. — 22. maganum. — 24. snóta. — 26. ala. — 27. aðlaðandi. — 30. rana. — 32. uaa. — 33. fa. — 34. gusu. — 35. essió. — 36. ullu. — 38. að. — 39. sat. — 41. nauð. — 42. valtarana. — 45. uga. — 46. handa. — 47. selspik. — 48. son. — 49. amast. — 51. prammana. — 53. sann- ar. — 55. óvart. — 57. fón. — 58. línsterkja. — 59. tala. — Lóðrétt: 1. Mannmargar. — 2. gluggans. — 3. nam. — 5. na. — 6. glóð. —■ 7. aura. — 8. blæ. — 9. ölkanna. — 10. neisti. —- 11. móar. — 13. sanna. — 16. rauðhetta. — 18. Nóa. — 20. uml. — 23. alauð. — 24. Sauðanes. — 25. ódaun. — 28. ausur. — 29. sauðakarla. — 31. ausan. — 33. flugi. — 37. laupanna. •— 40. aldamót. — 42. vanan. — 43. asa. —■ 44. altaf. — 46. hor. — 48. spöl. — 49. anar. — 50. mark. — 52. Ave. —■ 54. nót. — 56. Tj. Svör við „Veiztu —?“ á bls. 4: 1. 1 París. 2. 997. Ólafur Tryggvason. 3. 1901. 4. 1,9. 5. 2450° C. 6. 26 km. 7. Súgandafjörð. 8. Verdi. 9. Færeyskt skáld, lýðháskólastjóri. 10. 1880—1919. Hópur þrýstiloftsflugvéla af gerðinni Repu- blic F—24 sjást hér á æfingu yfir South Caro- lina, Bandaríkjunum. Hafi menn aðeins einu sinni heyrt drunur i einni þrýstiloftsflugvél, geta menn gert sér í hugalund hvernig verða muni, er allur þessi hópur er á ferðinni.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.