Vikan - 24.11.1949, Side 9
VIKAN, nr. 47, 1949
Fréttamyndir
Elízabet prinsessa og maður hepiar,
hertoginn af Edinborg, eru mjög vin-
sæl í Bretlandi og víðar. Hér sjást þau,
er þau eru að koma til kirkju hjá dóm-
prófastinum fræga, séra Hewlett John-
son, sem nefndur hefur verið „hinn
rauði“. Lengst til vinstri er erkibiskup-
inn af Kantaraborg.
Þessi stúlka er brazilisk og heit-
ir Margarita Hirchman. Var hún
dæmd í 20 ára fangelsi fyrir það
að útvarpa nazistaáróðri á portúr
gölsku. En vegna almennra áskor-
ana þingmanna hefur hún nú ver-
ið látin laus.
Þegar hitarnir gengu mest yfir í sumar í New York, tók maður
einn, Fred Parra að nafni, upp á því að fleygja sér í Austurá og
hugðist synda til Brooklyn. En honum fataðist sundið og eftir langar
lifgunartilraunir, úrskurðaði læknir, að maðurinn væri látinn.
Dwight D. Eisenhower hershöfðingi sést hér blása til brottfarar, er vígð var
ný járnbrautarlest í Bandaríkjunum. Járnbraut þessi hefur verið skírð „Hers-
höfðinginn". Eisenhower stjórnaði járnbrautarlestinni fyrstu 100 metrana á leið
hennar.
Þratt fynr mikla og góða friðarviðleitni þjóðanna á siðustu árum, er þó mikil borgarastyrjöld i
Kína. Kommúnistaherir eru á góðum vegi með að vinna landið úr höndum fyrri stjórnar Þessi
mynd er frá Shanghai og er tekin nokkru eftir að borgin féll i sumar.
Elízabet Englandsprinsessa hefur ver-
ið kjörin heiðursdoktor við Edinborg-
arháskóla. Myndin sýnir prinsessuna og
íöruneyti hennar við athöfnina.