Vikan - 03.06.1993, Page 35
••
TOFFARINN
BOGOMIL FONT
OG TROMMARINN
Það eru líklega fáir tón-
listarmenn sem eiga
eins breiðan aðdá-
endahóp og Sigtryggur Bald-
ursson, fyrrum Þeysari, Kukl-
ari og Sykurmoli sem nú
bregður sér í gervi Bogomil
Font og syngur sig inn í hug
og hjörtu áheyrenda.
Konur um sextugt bregða
undir sig betri fætinum og
slást í hóp með fólki allt niður
í tvítugt til að hlusta á Bogomil
syngja gamla slagara frá
fimmta áratugnum. Fyrrum
pönkarar, sem dáðu Kuklar-
ann Sigtrygg, fylgjast með úr
fjarska og þeir sem lofuðu
hann fyrir sérstæðan trommu-
leik með Sykurmolunum furða
sig á fjölhæfni hans. Bak við
töffarann Bogomil, sem er að
gefa út sína fyrstu plötu um
þessar mundir, leynist blíður
barnakarl sem segist vera allt
önnur persóna en Bogomil
Font.
„Bogomil er fyrir mér eins
og persóna i leikriti. Flann er
harður töffari og alltaf
drellifínn, annað en ég sem
þarf að setja upp sérstakt
gervi til að vera töffari og fer
sjaldan í spariföt nema á
gamlárskvöld þegar við Una
dóttir mín klæðumst Skota-
pilsum."
Hljómsveitin Bogomil Font
og milljónamæringarnir var
stofnuð í byrjun júní á síðasta
ári og hefur síðan stöðugt ver-
ið að bæta við sig verkefnum
og spilar núna þrisvar til fjór-
um sinnum í viku. Bogomil er
orðinn alltof stór hluti af lífi
Sigtryggs, að hans sögn,
enda þarf hann að skipta sér
af öllu er viðkemur hljómsveit-
inni. Það er því engin tilviljun
að hann fer með mig á aug-
lýsingastofu þá sem er að
vinna plötuumslagið fyrir
Bogomil daginn sem viðtalið
er tekið. Þangað förum við
eftir að hafa hrökklast út af
Hótel Borg sem var hertekin
af yfir tvö hundruð eldri borg-
urum Reykjavíkur.
Sigtryggur hannaði sjálfur
plötuumslagið fyrir Bogomil
og ætlar greinilega að sjá til
þess að hugmyndum hans
verði framfylgt. Það á vel við
hann að skipa fyrir og hann
segist láta illa að stjórn. Hann
ítrekar einnig að raddböndin í
honum séu orðin bólgin af of-
reynslu, hann megi sam-
kvæmt læknisráði ekki tala
meira en nauðsyn krefur og
ekki veita nein viðtöl. Þar sem
ég hef eftir ábyggilegum
heimildum að Sigtryggi þyki
voða gaman að tala hef ég
ekki áhyggjur af að hann neiti
að svara spurningum mínum
og viðtalið getur loks hafist
fyrir alvöru.
Hver er Bogomil Font?
Bogomil er eiginlega sam-
suða úr Jean Paul Belmondo
Frank Sinatra og Mikka mús
og hann syngur svona „sexy-
lög“, djass og mambó og
leggur mikið upp úr útlitinu.
Hann varar sig samt á því að
taka sjálfan sig of alvarlega
og það verða áheyrendur líka
að gera. Það fylgir honum á-
kveðinn húmor sem má aldrei
hverfa. Það var dálítið erfitt að
koma þessum húmor til skila
á plötunni þar sem hann er
hluti af sviðsframkomunni.
Platan er tekin upp á tveimur
böllum í Hlégarði. Ég leyfði
mér smávegis prakkaraskap
og kom fyrir hljóðnemum úti í
sal, lók upp það sem fólk var
að segja. Þetta blandast svo
inn í lögin og eins blöndum
við ýmsum dýrahljóðum sam-
an við fagnaðarlæti áhorfenda
á milli laga. Þannig kemst
húmorinn, sem fylgir Bogomil,
Framh. á bls 37
Eg kom
fyrir hljóð-
nemum úti
í sal og
tók upp
þaö sem
fólk var aö
segja. Þaö
var svo
notaó á
plötunni.
ll.TBL 1993 VIKAN 35
TEXTIOG UÓSM.: SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR