Vikan - 03.06.1993, Qupperneq 49
- Það er merkilegt með þenn-
an spíritisma. í gærkvöldi tal-
aði ég við látna systur mína.
- Það var sko merkilegt.
- Já, en það merkilegasta
var nú að ég hef aldrei átt
neina systur.
Við látum fyrstu verðlaun vera
átta daga ferð til Parísar og önn-
ur verðlaun einnig - en með eig-
inkonu.
- Svo þér viljið giftast dóttur
minni, ungi maður. Gerið þér
yður Ijóst aö hún er vön að fá
allt sem hún bendir á?
- Já, og í þetta sinn bendir
hún á mig.
Siggi litli heyrði köttinn mala og
sagöi við mömmu sína: - Mér
þætti gaman að vita hvar sviss-
inn er á kettinum svo maður geti
drepið á honum.
- Heyrðu, Pétur litli, ef þú get-
ur útvegaö mér lokk úr hári
systur þinnar skal ég gefa þér
tíkall.
- Ég slæ til, svaraði sá
stutti. - Og fyrir annan tíkall
skal ég ná í tennurnar hennar,
ég veit hvar hún geymir þær á
nóttunni!
Það var erlendis, þar sem
strangur agi ríkir í skólum. Tveir
drengir höfðu gerst óhlýönir og
fengu skipun um aö skrífa nafnið
sitt fimm hundruð sinnum fyrir
næsta dag.
- Þetta er afar óréttlátt, herra
kennari, mótmælti annar drengj-
anna.
- Jæja, svaraði kennarinn
byrstur.
- Já, hann heitir bara Per Lind
en ég heiti Torvald Frederik
Christian Schaffalitzky de
Muckadell.
- Hann hefur móðgað mig
stórlega, sagði bóndinn fyrir
rétti þar sem hann kærði ná-
granna sinn fyrir meiðyrði. -
Hann sagöi aö ég hefði nauða-
, Ijótan sauðarhaus.
- Þaö hefur hann sagt í
fljótræði, sagði dómarinn.
- Nei, ekki held ég það.
Hann horfði lengi á mig áöur
en hann sagði það.
FINNDU 6 VILLUR
Finniö sex villur eöa fleiri á milli mynda
Qjjjoij J9 sojq 9 ‘bj6u9| je Q;p|eíds g ‘jeuunuo>| |Ojs ? ujæq jb iQndQnjoq p ‘ijj
jnQjæj QU9A jnjoq möods x ‘nuuAjs b Bjjœq jo jBuuoq puoq z ‘Jnönjo jo JBuunuo>| jnnBH ' l
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 20. apríl
Þar eð þú ert í einu af eld-
merkjunum hefur þú tilhneigingu til
þess að láta ímyndunarafliö ráða of
miklu í lífi þínu. Reyndu að hafa
stjórn á þessu og vera þér meðvit-
andi um muninn á draumi og veru-
leika. Sýndu aðhaldssemi í fjármál-
um og gættu þín á freistingum. Það
fer ekki alltaf saman að langa og
geta.
NAUTIÐ
21. apríl -21. maí
Þú munt á næstunni hljóta
boð sem þú þiggur með þökkum.
Gott er að vera stoltur af góðum
verkum sínum. Þótt þú eigir þakkir
skildar skaltu gæta hógværðar og
æðruleysis gagnvart öðrum. Vinir
þínir og vandamenn munu skilja
andstöðu þína við ákveðnar breyt-
ingar í umhverfi þínu.
TVÍBURARNIR
22. maí - 21. júní
Þú virðist eiga býsna ann-
ríkt um þessar mundir og hefur ekki
haft tóm til að sinna kunningja-
hópnum sem skyldi. Gefðu þér
tíma til þess að halda góðu sam-
bandi viö þá svo þeim finnist þú
ekki vanrækja þá. Gáðu að því
hvort ekki megi sleppa einhverju
eöa hagræða hlutunum betur svo
meiri tækifæri gefist til frístunda og
vinakynna.
KRABBINN
22. júni - 23. júli
Reyndu að gera hreint fyrir
þínum dyrum svo að ekki verði
hætta á aö einhver saki þig um
óheiðarleika og brögð í tafli. Þér
gengur vel í einkalífinu og margir
virðast sækjast eftir félagsskap þín-
um. Ekki gefa meira af þér en þú
hefur að bjóða.
UÓNIÐ
24. júlí - 23. ágúst
Þú hefur tilhneigingu til að
bregðast illa við vinsamlegri gagn-
rýni og athugasemdum þeirra sem
vilja þér vel. Er það vegna þess að
þú ert að fela eitthvað eða vegna
hræðslu við það að sýnast ekki full-
kominn í því sem þú tekur þér fyrir
hendur? Þér líður best innan um
fólk sem þér finnst þú þekkja hæfi-
lega mikið.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Eitt af einkennum (Dinum er
að vilja stundum vera alein og út af
fyrir þig. Ýmislegt bendir til þess að
á næstunni sértu opnari en vant er
fyrir félagsskap sem á eftir að veita
þér mikið. Hrós frá einhverjum sem
þú metur mikils mun veita þér mikla
uppörvun.
VOGIN
24. september - 23. okt.
Meö kímnigáfu þinni
muntu láta sem vind um eyru þjóta
ummæli þeirra sem segja að sókn
sé besta vörnin. Að öllu jöfnu kem-
uröu til dyranna eins og þú er
klædd. Þrátt fyrir það er stundum
eins og þú þurfir að leyna einhverju
þegar ástin er annars vegar.
SPORDDREKINN
24. október - 22. nóv.
Á næstunni munt þú láta
hverjum degi nægja sína þjáningu
og taka hlutina mátulega alvarlega.
Þess vegna nýturðu ýmissa við-
buröa með meiri krafti en þú hefur
áður viljað láta eftir þér. Þetta verð-
ur einnig til þess að þú kynnist nýju
og spennandi fólki.
BOGMAÐURINN
23. nóvember - 22. des.
Einhver verður til þess að
benda þér á einkenni í fari þínu
sem þú hefur ekki gefið gaum fram
að þessu. Þú lætur heldur ekki hjá
líöa að hjálpa þeim hinum sama að
líta í eigin barm. Þú verður á næst-
unni opnari fyrir nýjungum en áður,
ekki síst á listasviðinu.
STEINGEITIN
23. desember - 20. jan.
Þú ert þessa dagana í
hugarástandi sem gerir þér kleift að
tileinka þér sitthvað sem þú hefur
ekki áður viljað taka á dagskrá.
Samband þitt við trúnaðarvin eða
vinkonu á eftir að hjálpa þér að
hefja spennandi en flókið, róman-
tískt samband viö einhvern sem þú
hélst að væri víðs fjarri.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
Loksins þegar þér finnst
þú geta tekið þér frí og slakað á
kemstu að því að þú átt ýmislegt
eftir ógert. Drífðu í því, gleymdu
ekki smáhlutunum og láttu engan
bilbug á þér finna. Góöur árangur á
einhverju sviði verður til þess að þú
uppskerö langþráðan ávinning og
kærkomið frí.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Þú keppir að settu marki
og nærð því með þeim árangri að
þér opnast nýjar og betri leiðir. Þú
ert ómeövitaö undir áhrifum frá at-
burðum úr fortíðinni. Þú skalt gera
hana upp við þig í eitt skipti fyrir öll
svo þú getir notfært þér þá mögu-
leika sem þér eiga eftir að bjóðast.
ll.TBL. 1993 VIKAN 49