Vikan - 01.12.1994, Síða 55
JÓLABÚÐINGUR EÐA JÓLAKAKA
*
þetta skiptið er ekki
meiningin að færa ykkur
uppskrift í uppskrifta-
safniö heldur miklu fremur
að gefa ykkur góða hug-
mynd að því hvernig hægt er
að skreyta, á jólalegan hátt,
góða köku sem þið eigið
áreiðanlega uppskrift að nú
þegar. Þar sem kakan hefur
verið bökuð í því, sem kalla
mætti búðingsmót, hefur hún
hlotið nafnið jólabúðingur í
stað þess að heita til dæmis
jólakaka.
HRÁEFNI
Fyrst er bökuð svamp-,
ávaxta- eða súkkulaðikaka í
til dæmis eins lítra búðings-
formi. Auk þess þarf aprí-
kósusultu eða -marmelaði,
hjúpsúkkulaði og loks marsí-
pan sem litað er með matar-
lit. Að lokum er flórsykri
stráð yfir skreytinguna svo
ætla mætti að snjór hafi fallið
á kökuna eins og best sést
með því að skoða myndina.
Erfitt er að segja nákvæm-
lega til um hvað þið þurfið
mikið af þeim efnum, sem
hér hafa verið talin upp. Það
fer allt eftir því hversu stór
kakan ykkar er. Við efumst
þó ekki um að þetta muni
ganga vel hjá ykkur. Ef þið
eigið ekki búðingsmót með
því lagi, sem kakan hefur hér
á myndinni, getið þið yfirfært
skreytinguna á ósköp venju-
lega tveggja hæða tertu eða
jafnvel formköku. Kakan þarf
hins vegar að vera nokkuð
há til þess að „snjóhatturinn“
njóti sín til fullnustu.
1. Byrjað er á þvi að
skera mesta toppinn af kök-
unni ef hann er óeðlilega
hár. Síðan er kökunni hvolft
og hún sett á fallegan köku-
disk. Diskurinn verður að
vera töluvert stærri um sig
en kakan svo laufin og berin
komist vel fyrir í kringum
hana. Smyrjið þessu næst
apríkósusultu utan á kök-
una. Ef um er að ræða
ávaxtaköku getur verið gott
að smyrja hana með seig-
fljótandi marsípanmassa,
sem fæst í verslunum, því
hann á betur við ávaxta-
bragðið. Allt er þetta þó að
sjálfsögðu smekksatriði.
2. Þessu næst er hjúp-
súkkulaðið brætt og því hellt
yfir kökuna og látið hylja
hana til fullnustu. Þeir, sem
eru hrifnari af marslpani,
geta að sjálfsögðu valið aðra
leið. Þeir geta einfaldlega lit-
að marsípanið brúnt með
matarlit, flatt það út og lagt
yfir kökuna. Þá er komið að
því að setja snjóhattinn ofan
á toppinn. Hann er búinn til
úr marsípani sem því miður
verður ef til vill ekki alveg
nógu hvítt á litinn. Til þess
að bæta úr því kemur flór-
sykurinn í góðar þarfir en
honum er stráð yfir allt í lokin
eins og áður var nefnt.
3. Nú er komið að lista-
manninum sem býr í okkur
öllum. Það þarf að skera út
úr marsípani 15 egglaga
blöð og skera svo úr hliðum
þeirra eins og gert er hér á
myndinni til þess að búa til
sem raunverulegust blöð
jólaviðar eða kristþyrnis,
öðru nafni. Kristþyrnir er al-
geng sjón í jólaskreytingum
víða um heim þótt minna
beri á honum hér þar sem
plantan vex ekki hér hjá okk-
ur. Skerið æðar í blöðin með
hnífsoddi og beygið þau of-
urlítið saman svo þau verði
sem eðlilegust. Nú er aðeins
eftir að búa til lítil, rauð krist-
þyrnisber. Það gerið þið með
því að lita marsípanið rautt
og hnoða svo úr því litlar kúl-
ur.
4. Komið blöðum fyrir of-
an á kökunni og allt í kring-
um hana á diskinum og rað-
ið berjunum, þremur sam-
an, milli hverra tveggja
blaða. Stráið flór-
sykrinum yfir
allt sam-
an.
Frábært úrval af
glæsilegu
kökuskrauti
tv)XV)S
KAUPFÉLAGIÐ
MOSFELLSBÆ
Opið mán.-fi. ke_. 09:00-18:30, fö. 09:00-19:00
OG LAU. KL. 10:00-19:00.
KOKUBLAÐ