Alþýðublaðið - 09.03.1923, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 09.03.1923, Blaðsíða 1
GeflO ilt af Alþýðufloklmnm 1923 Föstudaginn 9. marz. 55. tölubiað. sigrar. Yerkamannaflokkurinn brezki yiniiur frægan aigur. Leikfélao Reykiavíkur. Nýjársnóttin Khöfn, 8. marz. Frá Lundúnum er símað: Viö þrennar aukakosningar hafa þrír ráðherrar fallið fyrir frambjóð- endum verkamannaflokksins. Er það talið einsdœmi í þingsögu Breta. Henderson bendir á það, að þelta sýni, hversu stjórnin hafi glatað tiltiú þjóðarinnar. „Leti og ðmenska." Eitt af þeim miklu verkefnum, sem bíða aðgerða alþýðunnar og leiðtoga hennar, er bráðnauð- syslegt >endurmat allra mæta< þeirra, sem þýjar auðvaldsins hampa og nota til villingar and- stæðingum sínum í baráttunni. Þessi mæti þarf að grannskoða til þess að ganga úr skugga um, hvort þau eru nú nokkuð annað en hismi og innantÖmar vind- blöðrur, sem ekkeft verðskulda nema eyðingu í eldi, þótt þau hafi einhvern tíma verið að gagni. Hvert það tré sem ekki ber góðan ávöxt, skal upphöggvið verða og því í eld kastað. í þessu efni eru sérstaklega ísjárverð ýms orðtök, sem tuggin eru upp aftur og aftur án þess að hugsast til nokkurar hlítar, en hrækt er út til að hræða fólk frá að koma nauðsynlega nærri því, sem þau eiga að tákna. Sem dæmi þessarar orðtaka má nefna þetta: >letiogómenska«, sem alt af er á lofti, þegar minst er á hjálp til fátækra. >E>að er ekkert nema leti og ómenska, sem veldur því, að hann þarf styrk«. >Það er ófært að veita verður leikin á laugard. kl. 8 síðd. Aðgöngumiðar séldir á Iaugard. kl. 4—7 og á sunnud. kl. 10—12 og eftir kl. 2. 7 5. slnn þeim styrk, sem þurfa hans að eins vegna leti og ómensku«. Þessi eru orðtökin, sem fyrst verða á tungu hjá nánösuum, sem vegna ettirsjár ettir útsvörum sínum kveina, þegár einhvern þarf að styrkja eða þegar rætt er um fátækramál. Þáð er sök sér, þótt flestir, sem hæst tala þannig, séu sjálfir útvaldir letingjar og ómenni af' ásetningi, en hafi fyrir kjaftavit og ósvífni flotið uppi á arði af starfi þeirra, sem ekki geta sér af iðjusemi tóm til að hampa þessum þvælings-orðtökum. Hitt er verra, að þá skortir allan skilning á því, sem þeir tála um; ekki vita þeir, af hverju það stafar, sem nefnt er leti og ó- menska; þeir vita það ekki frem- ur en annað. »Það bylur hæst í tómum tunnum«. Þess vegna er líka þetta orða- gjálfur svo andstyggilegt. Þess vegna þarf að spretta á þessum orðá-himpum, svo að úr þeim rjúki vindurinn og þeim verði fleygt til fullnustu. Til þess þarf sárbeittan sann- leikann: Leti er fyrst og fremst sök þjóðfélagsms, svo framarlega sem hún á sér stað án þess að stafa af sjúkleika á sáiinni. Tildrög hennar eru þau ein, að fyrir- komulag þjóðfélagsins kemur í veg fyrirt að þess börn fái nauðsýn- Café & Restaurant „Borg“, Orkester-harmoniku-musik. Spilað af Sigurgeir Tómassyni. lega mentun til þess að skilja nauðsyn starfsins. Ekki nóg með það: Starís- og iðjumenn eru eltir á röndum og rúnir inn að skinni, meðan þeir gá ekki ann- ars en að fullnægja starfalöng- un sinni. Því er haldið áfram, þangað til augu hins heimskasta manns eru orðin opin fyrir því, að það sé nokkurn veginn það vitlausasta, sem menn taki fyrir sér til uppheldis, að vinua. Og ómenskan — er hún ekki langeðlilegasti ávöxturinn af meiði þjóðskipulagsins, eins og það nú er, þar sem það er gam- all sannleikur, að »fantar hefjast á fremdarstig«? Svo eiga þeir menn, sem haldnir eru af þessum eiginléik- um, hinum eiginlegustu ávöxtum þjóðskipulagsins, ekki að eiga rétt á styrk af almannaié éér til llfsuppheldis án missis »borg- áralegra< réttinda! Að réttu lagi ættu þeir að vera uppáhaldsbörn þjóðfélags- ins, þar sem þeir sýna með lit- andi dæmum, hversu dásamlegt sé skipulag þess. Framhalcl k 4. síðú,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.