Vörður - 22.05.1926, Qupperneq 1
»
Útgefandi: Miðstjórn íhaldsfilokksins.
IV. ár.
Reykjavík 22. mai 1926
22. blað.
Foringjar nórnamanna fytfr utan Downing Street 10 (forsætis-
ráðhenabústaðinn i London), að afloknum fundi hjá Baldwin.
Yst til vinstri handar stendur Richards, þá A. J. Cook (ritari sam-
bands enskra námamanna), Herbert Smith (formaður sambands-
ins) og Richardson.
Vimudeilurnar
á Englandi.
Verkamenn þyrpast saman á götu í London, til þess að lesa á-
varp um verkfallið frá stjórninni.
Saga breska allsherjarverk-
faltsins virðist í stuttu máli vera
þessi, eftir því sem ráða má af
nýkomnum erlendum blöðum
og sfðustu skeytum:
Sunnudaginn 2. maf náðist
samkomulag um kaup kola-
námamanna milli Baldwins
og Thomas og annara fulltrúa
miðstjórnar verkalýðsfjelagauna.
Er talið að hinir síðarnefndu
hafi fallist á nokkra lækkun á
launum námamanna fyrst um
sinn. Sunnudagskvöldið komu
foringjar námamanna saman til
fundar til þess að ræða þessa
málamiðlun, en áður en því
væri lokið, kom algerlega óvænt
tilkynning frá stjórninni um að
hún sliti samnÍDgunum. Ástæð-
an var sú, að prentarar blaðs-
ins Daily Mail (sem er eitt af
stærstu og merkustu stjórnar-
blöðunum) höfðu stöðvað út-
gáfu blaðsins, vegna þess að
ritstjórnin hafði hafnað kröfu
frá þeim um að breyft yrði
grein um kaupdeiluna, sem
birtast átti í blaðinu.
Pegar svo var komið náðu
hinir róttækari meðal verka-
mannaforingjánna (Cook og
fylgjendur hans) öllum yfirráð-
um í sfnum herbúðum og svör-
uðu stjórninni með allsherjar-
verkfalli. t*að hefði verið til
litils að lála sjer nægja að
hefja kolaverktall — náma-
menn höfðu enga von um að
vinna það. Námaeigendur myndu
hafa Iátið sjer það í ljettu rúmi
liggja, þótt vinnan stöðvaðist
um hríð, úr þvi að stórtap var
fyrirsjáanlegt á námarekstrinum.
Allsherjarverkfall var, úr því
sem. komið var, eina vopn verka-
manna. En það var tvieggjað
vopn — og beittari sú eggin er
að þeim vissi, sem það átti að
verja, nefnilega verkalýðnum
sjálfum. Algert samgöngubann
og sá matvælaskortur í bæjun-
um, sem af þvi leiddi, kom
auðvitað fyrst niður á fátæk-
lingunum. far við bættist að
óeirðir og upphlaup mögnuðust
í bæjunum með hverjum degi,
allsherjarverkfallið varð óvin-
sælt, þjóðin skipaði sjer undir
merki stjórnarinnar og sjálf-
boðaiiðið, sem tók samgöngurn-
ar í sínar hendur, óks daglega.
Baldwin krafðist þess að
samnÍDgar hæfust að nýju, en
neitaði að taka þátt i þeim fyr
en allsherjarverkfallið væri aft-
urkallað. Hann kvað það vilja
sljórnarinnar, að freista allra
ráða til þess að komast hjá
því að lækka þyrfti laun verka-
manna. Hann lofaði því aö
leggja fast að vinnuveitendum
að teygja sig eins langt
til samkomulags og fjárhagur
kolaiðnaðarins frekast leyfði.
Hann bað menn að skilja það,
að námareksturinn gæti ekki
borið það kaupgjald sem verka-
menn hefðu haft, og að hins
vegar væri það óverjandi að
halda áfram að skattleggja
borgara þjóðfjelagsins til þess
að geta styrkt námaiðnaðinn.
En stjórnin myndi taka til
nýrrar yfirvegunar, hvað hægt
væri að gera til endurbóta á
öllum rekstri kolavinslunnar.
12. maí var allsherjarverk-
fallið afturkallað. Baldwin hefir
borið fram umtangsmikla samn-
ingatillögu i kolaiðnaðarmálinu
og er simað að hún hafi fengið
góðar undirtektir i þinginu.
Leggur hann til að 3 miljónum
sterlingspunda verði varið til
styrktar námarekstrinum á með-
an verið er að endurbæta skipu-
lag hans. Annað úr tillögum
hans hefir enn ekki verið simað.
Námamenn greiddu atkvæði um
tillögurnar á fimtudag.
Talið er að þjóðartapið á
allsberjarverkfallinu nemi um
25 milj. punda.
Ellen Key.
Ellen Key Ijest 25. apríl, 76
ára að aldri. Hún var í tölu
hinna fremstu andlegu leiðtoga
Svia og hinna merkustu kven-
rithöfunda í Evrópu.
Bækur hennar eru tlestar heim-
spekilegs og siðfræðilegs efnis
og hinar frægustu um sálarlif
konunnar og stöðu hennar í
Iífinu, um heimilin, uppeldi
barna o. s. frv. t*ær þykja ekki
fyrst og fremst ágætar að skap-
andi krafti, en hún boðar trú
sína á betra lif, fegurri og sælli
kynslóðir með heitum sannfær-
andi krafti góðleiks, hreinleiks
og sannleiksástar. Hún erisenn
vitur og barnsleg — kjarninn í
kenningu hennar er sá, að eng-
inn sem ekki sje sannur, heill
og fullur sakleysis geti verið
skáld, listamaður, hugsjónamað-
ur, vinur, persóna eða yfirleitt
dugað til neins nýtilegs og góðs.
Köllun hennar var að vekja og
eggja ungar sálir, gefa þeim
kjark og löngun til þess áð
keppa að þroska og lifsgleði.
Rit hennar eru fyrirheit um rík-
ari hamingju, sem sje fólgin í
vexti þeirra krafta, er hlýði hin-
um göfugustu tilhneigingum í
mannsbrjóstinu.
Selma Lagerlöf ritaði um Ell-
en Key eftir andlát hennar í
eitt af sænsku blöðunum og
sagði að hún hefði verið hinó-
krýnda drotning kvennahreyfing-
arinnar i Svíþjóð. »Hún var og
verður hinn bjarti, hugdjarfi,
ástsæli leiðtogi allra þeirra, sém
með orðinu »kvennahreyfing«
meina mildari breytni, bjartara
heimilislíf, skemtilegri bernsku-
ár, miskunsamara hugarfar.list-
rænni og frjálsari Hfshætti«,
skrifar Selma Lagerlöf.
PÓlílllg
Amiuidseii!*.
Eins og lesa má i sfðasta
blaði voru menn farnir að ótt-
ast að Amundsen hefði hlekst
alvarlega á, þegar sú fregn barst
á sunnudag að »No>ge« hefði
lent við Teller í Alaska eftir 71
stundar flug og væru allir far-
þegar við bestu liðan.
Sólskin hafði verið fyrsta
daginn. Var flogið nokkra hringi
yfir 'pólnum i athugunarskyni.
Að morgni næsta dagsvarkom-
in þoka og hjelst hún upp frá
því alla leið tii Alaska. Var því
mjög hættulegt að nálgast land.
1 Alaska er mikið tjalllendi og
hátt og áttu þeir von á að renna
loftfariuu á fjöllin. það jók og
á örðugleika ferðarinnar að inik-
ill ís myndaðist á skipinu, og
til þess að koma í veg fyrir að
hann þyngdi það um of, varð
að eyða honum jafnóðum.
Inn yfir Alaska stefndi loft-
farið i stormviðri og þoku, en
að lending tókst slysalaust var
mest því að þakka, að samband
náðist við loftskeytastóð, sem
sent gat loftförunum leiðbein-
ingar um hvar þeir væru staddir.
Amundsen er sagður mjög á-
nægður með förina. Hefir hann
látið svo uramælt, að hann hafi
nú náð því marki er hann setti
sjer ungur — að komastábáða
póla. —
Bylting í Póllandi.
1 rniöri fyrri viku voru pau tiö-
indi símuð út um heim frá Póllandi,
aö Pilsudski herforingi heföi haflö
uppreisn og væri á leið til Varsjár
með her manns. Stjórnin sendi út
ávarp til hersins og skoraði á hann
aö sýna löghlýðni og koma í veg
fyrir borgarastyrjöld. Áskorunin bar
ekki pann árangur, er til var ætl-
ast, meiri hluti hersins veitti Pil-
sudski lið og hann hertók höfuð-
borgina eftir allsnarpan bardaga.
200 manns tjellu og um 1000 særð-
ust. Flóttamenn sögðu að bærinn
líktist vigvelli eftir oiustuna. Stjórn-
in hafðist við i höllinni Belvedere
og bjóst paðan til varnar. Her Pil-
sudski settist um höllina, hóf skot-
hrið á hana og braust loks til inn-
göngu — en pá var stjórnin lögð á
flótta í tlugvjelum. — Tók Pilsudski
siðan við völdum og fylgja honum
jafnaðarmenn og frjálslyndari flokk-
arnir og mikill porri manna i borg-
nm landsius. Lýsti hann yfir pvi,
að hann myndi virða pingræðiö og
að bráðlega myndi fram fara kosn-
ing rikisforseta Pingið kemur sam-
an 25. p. m. Búist er við að ineiri
hluti pess sje andvigur Pilsudski
og að skamt veröi að bíða ping-
rofs og nýrra kosninga. — Símað
er að Haller hershöfðingi safni liði
í Posen og hyjgist að fara til Var-
sjár og steypa Pilsudski af stóli.
Meðan á verkfallinu stóð slógu hersveitir tjöldum ,í£Hyde Park,
þar sem matvælum var úthlutað, til þess aðfvera til^taks gegn á-
rásum.