Menntamál - 01.10.1924, Blaðsíða 9

Menntamál - 01.10.1924, Blaðsíða 9
MENTAMÁÍ. sprakk fallbyssukúlán um leið og luin kom niður án þess að gera mikinn usla. En nú liafa menn fundið ráð til að kúlan springi ekki fyr en nokkrum sekúndum eftir að hún kemur niður; hún smýgur því inn í markið og springur fyrst þar með ógurlegum eyðingarmætti. Slíkra umbóta þyrfti skólakenslan. þekkingin smýgur sjaldnast tangt inn í hugann. Nemandinn vill nema staðar stund- arkorn. En hann fær það ekki. Áfram! ]?ú átt að komast yfir stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, dýrafræði, jurta- fræði, mannkynssögu, landafræði fimm heimsálfa, tvö nú- tíðartungumál, bókmentasögu. sálarfræði, rökfræði. sið- l'ræði, heimspekissögu o. s. frv. Haltu áfram! Miðlungs- menskan brosir til þín. Lærðu í skólanum að líla aðeins á yfirborðið og dæma eftir útlitinu! Yið þetta bætist svo að tíðarandinn elur á hinu hvik- uiasta marglyndi, og dregur úr sálarlífinu, svo að það má stundum dautt heita. Auðveldar samgöngur og öll ferðá- lögin tvístra hugsun vorri. Nú orðið er varla tími til leslr- ar. Lifið er i senn hvikult og tómlegt. Dagblöðin draga athyglina að öllum hugsanlegum atburðum um víða ver- öld með óeðlilegum æsingameðulum. Hvernig ættum vjer að vera öðruvisi en marglyndir, þegar tíðarandinn er svona og uppeldið gerir ekkert til að vinna á móti hon- um! Er það ekki raunalegt að hugsa sjer, að aðalatriði uppeldisins, uppeldi viljans, skuli hvarvetna vera van- rækt? Alt, sem gert er til uppeldis, stefnir að alt öðru marki; stefnir að þvi einu, að ofhlaða skynsemina, en viljinn er ekki efldur meir en nauðsynlegt er til þessara minnisstarfa. Uppeldi viljans er látið liggja í láginni, og samt er það viljinn einn, sem skapar manninn. Afbragðs gáfur verða ófrjóar, ef vantar sterkan vilja. Hann er afl- ið, sem skapað liefir alla tign og fegurð.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.