Menntamál - 01.10.1924, Blaðsíða 20
MENTAMÁL
16
Hjer og þar.
Skrifleg próf.
Það hcfir jafnan verið Sá IjóSur á fræðslufyrirkoniulagi
voru, að örðugt er að gera sjer rjetta hugmynd um árangurinn.
Góðar skýrslur þarf til þess að sjá, hvar, er brýnust þörf um-
bóta. í skjóli skýrsluleysisins hafa menn Ieyft sjer að fullyrða,
að öllu fje sje á glæ kastað, sem varið er til fræðslumála. Á und-
anförnum kennaraþingum hefir Ýerið um það rætt, að koma á
skriflegum prófuin um land alt í þeim greinum, sem skriflegum
prófurn verður helzt við komið og mest mark er á takandi. Yrði
þá sami mælikvarði lagður á um land alt. Það mun óslc flestra
kennara, að ekki verði langt að bíða framkvæmda í þessu efni.
En ]jó er óráðlegt að prófa þannig í fyrsta sinni í fleirum grein-
um en stafsetning og reikningi. Þá flýtur skriftin með. Sam-
bandsstjórnin vinnur að því, að framkvæmd geti orðið á þessu
nú þegar í vor, og er kennurum það hjermeð til vitundar gefið.
Kennaraþing fyrir Norðurlönd
verður hahlið i Helsingfors á Finnlandi næsta sumar i byrjun
ágústmánaðar. Þingin eru haldin á fimm ára fresti sitt i hvcrju
landi. Siðasta þingið var haldið i Osló sumarið 1920, 5.—8.
ágúst. Þar komu rúmar þrjár þúsundir kennara. Fimm þeirra
voru íslenzkir. Norræn kennaraþing hófust í Gautaborg árið
1870, og sátu ljað þing 842 kennarar, en flestir sóttu þingið
í Stokkhóhni 1910, en þar voru saman komnir um sjö þúsund
kennarar. Nokkur afturkippur varð í þessu af völdum ófriðar-
ins mikla. En nú er búist við, að alt lcomist aftur í samt lág á
þinginu i Helsingfors. Þangáð mun margan fýsa, því að talið
er, að Finnar sjeu fremstir Norðurlandaþjóðanna um alt það, er
snertir barnafræðslu. Rjett er að þeir íslenzkir .kennarar, sem
ætla sjer að sækja þingið, tilkynni það svo fljótt sem unt er
stjórn sambands íslenzkra barnakennara.
Mentamál. Verð 5 kr. árg. Afgr. í Laufási, Rvík. Sími 1134.
Fjelagsprentsmiðjan.