Menntamál - 01.10.1924, Blaðsíða 17

Menntamál - 01.10.1924, Blaðsíða 17
MENTAMAL 13 ur; var feldur niður af fjárlögum svo sem margt annað, sem ekki er bundið með sjerstökum lögum. pað niun vera svo i flestmn barnaskólum í bæjum og stærri þorpum hjer á landi, að verkum er skift milli kenn- araliðsins mest eftir námsgreinum, þar sem slíku verður komið við. Kennarinn gengur bekk úr bekk og kennir sömu námsgreinina hverjum hópnum á fætur öðrum. Eru jafnvel ekki allfá dæmi til, að hann kenni eina grein og ekkert annað. I fyrstu liefir þella eflaust verið að ósk kennaranna. þeir hafa treyst sjer bezt við einhverja ákveðna grein, eina eða l'leiri, en m-iður við aðrar, og þá auðvitað viljað vera lausir við þær. Smám saman varð þctta svo að ráð- andi skipulagi, og auðvitað höfum vjer ekki fundið það upp, heldur sniðið það eftir erlendri fyrirmynd, sem tíðk- aðist, þegar komið var á fót fyrstu barnaskólum vorum, hinum stærri. Að þessu leyti er kenslunni liagað eins og í skólum fyrir fullorðið fólk, og skipulagið þvi bygt á þeim grundvelli, að sálarlífi barna sje að mestu á sömu leið háttað og fullvaxinna. pað, sem þessari tilhögun er talið til gildis, er það fyrst og fremst, að svo verði kraftar kennaranna best notaðir. ]7eir kenni betur þær greinar, sem þeim lætur að fást við en liinar, þeim vinnist betur timi til að búa sig undir kcnshi i einni grein cn mörgum, og með þessii móti geti þeir því orðið dálitlir sjerfræðingar, hvcr á sinu sviði. Arangurinn af þessu á svo að verða sá, að meiri og betri trygging sje fyrir þvi, að hinn lögskipaði skamtur af þekk- ingu komist inn í höfuðin á börnunum, eða kannske ögn meira. Sje nú þelta athugað hlutdrægnislaust og litið á, hvað hlýtur að vaxa upp af þessu skipulagi i framkvæmdinni, þá mun það verða ljóst, að höfuðáhersLan er lögð á að afla börnunum þekkingar, lærdóms. Og það er auðvit- að gott að þau verði lærð, en bitt þarf og að muna, að

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.