Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Síða 27

Menntamál - 01.08.1971, Síða 27
sem minnzt var á hér að framan. Það er að segja, ef til vill væri báðum aðilum það hollt að reyna að komast að því dálítið skijnilega, hvað þeir eru að tala um, í stað þess að ganga um með melt- ingartruflanir vegna sértrúarlegra vinnubragða, sem í það minnsta valda höppum og glöppum í þjónustu við þau börn, sem „unnið er fyrir." Ég hef hér að framan að mestu látið hjá líða að svara spurningum, en reynt að vekja til um- luigsunar og vil halda því áfram lítið eitt. Ég ætla að leyfa mér að slá því hér föstu, að hin mikilvæga spurning er ekki, hvort harnið skal leika sér eða læra, því barnið lærir líka, þeg- ar það leikur sér. Mikilvægari spurning mundi vera: Hversu lærdómsríkur er sá leikur, sem barnið tekur þátt í, eða hversu leikþrunginn er sá lærdómur, sem barnið fær við reynslu sína, í þeim skilningi, að lærdómurinn veki áliuga barns- ins, löngun þess til að læra, að lærdómurinn hafi fyrir það marktæka jjýðingu að eigin skilningi, o. s. frv. Enn mikilvægari spurning mundi vera um skipulagningu náms/leiks, spurningin um það, hversu kerfisbundin sú reynsla er, sent barn- inu er veitt, á hve haldgóðum sálfræði- og upp- eldisfræðilegum forsendum kerfið er Hyggt, hversu náið innra samhengi er í kerfinu, bæði lóðrétt, með hliðsjón af jiví, sem við viturn um þroska- skeið barnsins, og lárétt, með hliðsjón af því, sem við vitum um tengslamöguleika milli fjölbreyttr- ar reynslu. Ef til vill höfum við enn mikilvægari spurningu þar sem er sú, hversu fær við erum um að aðlaga náms-/leikreynsluna að möguleikum, takmörkun- um og þörfum einstaklinganna. Skyldi ekki sú fullyrðing fá staðizt of oft, að við tölum svo sem við gefum hverju barni þann gaurn, þá lijálp, þann tíma, sem það þarfnast, en vinnum með hópnum og fyrir hann — vegna skorts á tíma — vegna skorts á vilja — vegna skorts á þekkingu — vegna oftrúar, vantrúar, sértrúar. Vitum við alltaf (eða ef til vill frekar nokkurn tíma) raunverulega livað við erum að gera, a) þegar við veitum ekki ákveðna reynslu? b) þegar við leggjum áherzlu á ákveðna reynslu? c) þegar við veljum ákveðin vinnubrögð? d) þegar við skipuleggjum framþróun náms- reynslu? e) þegar við metum nám/leik? Sú þverstæða er sönn, að við gerum með því að gera ekki og við gerum ekki með því að gera. Það virðist afar mikilvægt, að við reynum að gera okkur skipulega örlítið nánari grein fyrir því, hvert mikilvægi þverstæðunnar er og livað jiað raunverulega hefur í för með sér að viðurkenna mikilvægi hennar. Þessi fáu orð skrifuð hér eru aðeins ófullburða tilraun til að minna á mikilvæg atriði, er varða ákvarðanir okkar vegna barna á forskólaaldri — en eiga reyndar við á víðari vettvangi. Ég hef viljað benda á, a) að okkur hættir til að nota orð án þess að skilgreina, hvað við, sem notum þau, eigurn við með þeim eða livaða merkingu þau geta haft fyrir aðra; b) að rannsóknir varðandi forskólaaldurinn segja mótsagnakennda sögu, að þær eru ófull- komnar og vandtúlkaðar; c) að afstaða okkar mótast rneira af tilfinninga- legum rökum en við erum að jafnaði fús til að viðurkenna, og vísindamennska ann- arra er stunclum vísvitandi notuð sem skálka- skjól til varnar þeirt i afstöðu, án fullnægj- andiraka; d) að þörf væri á velviljuðum samræðum og skipulegum samvinnubrögðum til þess að okkur skildist, svo alinennt mark væri á takandi, hvað það er, sem við vitum, viljum og skiljum eða ekki, og á lrvaða forsendum; e) að það eru ýmsar spurningar, sem megin- máli ættu að skipta um verk okkar og fram- kvæmd þess, sem við stöðugt látum ósvarað eða svörum að geðjrótta og harla óviturlegri vild. Málarinn Degas sagði á sinni tíð: „Það er ekki erfitt að mála, ef maður veit ekki neitt um málara- list, en jtað verður strax erfiðara, jregar við vitum eitthvað um hana.“ Ættum við að lnigleiða rnerk- ingu Jreirra orða með liliðsjón af okkar starfi? MENNTAMÁL 133

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.