Vorið - 01.01.1932, Page 4
4
VORIÐ
hún minnist á hana. Hún segir að
þú hafir átt bágt, að missa hana
svona snemma, því þú varst aðeins
þriggja ára þegar hún dó og síðan
hefur pabbi þinn verið svona —
ég á við, þá fór hann að drekka,
og mamma segir, að það hafi verið
drykkjuskapurinn, sem kom hon-
um til að gjöra þetta — ja; —
þetta, sem hann gjörði, og var
settur í fangelsi fyrir. En pabbi
segist vona, að hann hætti nú að
drekka eftir að hann er búinn að
sjá hvað af því getur hloti'zt«.
Kristján litli hlustaði þegjandi
á öll þessi huggunarorð, sem
komu eins og læknismeðal, er
mýktu og hugguðu litla harm-
þrungna hjartað hans.
Loksins stóð hann hægt á fætur
*
og labbaði af stað.
»Þetta gjörði nú ekki mikið til
ef þetta kæmi ekki fyrir oftar«,
sagði Kristján, »en nú veit ég, að
þau byrja undir eins aftur í fyrra-
málið, og svo næsta dag, og á
hverjum einasta degi, svo að ég
fæ aldrei frið. Þú ættir bara að
finna ofurlitla stund hvað þetta
særir mig og hvelur«.
»Nei, ég er viss um að þau hætta
þessu, því pabbi minn bað mig að
segja sér ef krakkarnir væru vond
við þig. Hann sagðist þá skyldi
koma til skjalanna«.
(Framhald).
Sendibréf.
Kæru, islenzhu. börn!
Vegna þess að við höfum heyrt,
að þið væruð svo dæmalaust
brjóstgóð og kennduð í brjóst um
alla þá, sem eiga eitthvað bágt,
datt okkur í hug að senda ykkur
þessar línur. Svo er nefnilega mál
með vexti, að við höfum oft lítið
að borða, og e,rum því oft mjög
svangir á veturna, þegar allt er
hulið snjó og klaka. Þessvegna
datt okkur í hug að biðja ykkur
góðu börn, sem hafið nóg að
borða, að kasta nú einhverju æti-
legu út til okkar. Það þarf ekki
að vesra mikið, því við þurfum
ósköp lítið að borða. Brauðmylsna,
hafragrjón, og jafnvel moðsalli
þykir okkur ágætismatur, og við
myndum verða ykkur ákaflega
þakklátir ef þið vilduð nú gjöra
þetta. En við getum ekkert borg-
að ykkur fyrir þetta nema ef þið
vilduð að við syngjum eitthvað
fyrir ykkur í sumar, en við erum
vissir um að guð launar ykkur
fyrir það, og það er undarlegt
hvað það getur gjört menn ham-
ingjusama að vinna góðverk. Það
væri ef til vill rétt að taka það
fram, að bezt væri að þið létuð
þennan mat einhversstaðar þar,
sem við gætum verið óhultir fýrir
henni kisu, t. d. væri gott að búa
til svolítinn pall fyrir utan eldhús-