Vorið - 01.01.1932, Blaðsíða 6
6
V 0 R IÐ
þess að aðvara okkur. Hún vill
ekki að við hugsum svona. Þú
manst eftir sögunni, sem hún
sagði okkur, um steingerfingana,
sem eitt sinn voru menn, er hugs-
uðu of mikið um peninga, og kom-
ust ekki úr þeim álögum fyr en
þeir hugsuðu meir um sannleik,
réttlæti og sakleysi, einmitt það
sem stúkan okkar vill innræta
okkur. Eg er viss um það, að
mamma vill ekki að við verðum að
einhverjum steingerfingum, sem
hugsa bara um að ná í peninga
einsog t. d. hann Lárus bruggari,
sem selur vínið. Og nú skulum við
sleppa þessari viðbót, og hafa
bænina einsog mamma kenndi
okkur hana. — Stjúpan gekk
þegjandi burtu. — Mörg ár eru
liðin. Jón er orðinn kunnur rit-
höfundur og orðlagður sæmdar-
maður. Seinasta bókin hans heit-
ir: Verkin spegla hugarfarið. Þar
stendur m. a. þetta: Sá sem vill
verða hamingjumaður á þegar í
æsku að temja sér fagurt orð-
bragð og góða siði. Hann verður
að meta sál sína og sæmd meira
en allt annað. Bænin hennar móð-
ur minnar hefir hjálpað mér meir
en allt annað til þess að verða að
manni. Og það bezta veganesti',
sem eg gæti gefið mínum börnum,
væri hin sama bæn, beðin af sama
hugarfari. Það er gjörsamlega
ómögulegt að vera lífsglaður og
hamingjusamur maður, nema að
eiga góða samvizku. En verkin
eru spegill hugarfarsi'ns. — Verk-
in tala sínu þögla máli. Þau vitna
um það, hvernig þú hugsar, hvers
þú biður og þau fylgja þér út yfir
gröf og dauða. o
Maithias fochumsson.
Barnasálmurinn sem hér fer á
eftir er orktur af þjóðskáldinu
fræga Matthíasi Jochumssyni, og
þótt hvert barn á íslandi hafi
vafalaust heyrt hans getið, er ekki
víst að þau viti öll hversvegna
okkur ber að halda minni'ngu hans
á lofti, og hvað það er, sem hann
hefur gefið okkur, og ókomnum
kynslóðum. Þessvegna vill »Vorið«
með örfáum orðum vekja athygli
ykkar á þessum ágæta syni ís-
lenzku þjóðari'nnar, og ef til vill
síðar á fleiri slíkum mönnum.
Matthías Jochumsson er fæddur
að Skógum í Reykhólasveit 11.
nóv. 1885 og ólst þar upp hjá
ágætum foreldrum. Snemma
hneigðist hugur hans að bóknámi,
og snemma mun hann hafa farið
að yrkja. Hann fór síðan í skóla
og að námi loknu gjörðist hann
prestur. Lengi var hann prestur i
Odda á Rangárvöllum. Þar sem
Sæmundur fróði var prestur
mörgum öldum áður, en síðar
varð hann prestur á Akureyri og
dó þar.
En séra Matthías varð ekki