Vorið - 01.04.1932, Page 2

Vorið - 01.04.1932, Page 2
26 VORIÉ) Ég veit aá betra ei þykir þér að þiggja dýra gjöf frá mér en vissu þá að elsku amma mér er svo kær sem pabbi og mamma. Að marga stund ég minnist þín. Þín mynd sem geisli huga skín. Ég bænir þínar ber í hjarta um bjartan dag og nóttu svarta. Svo legg ég þetta litla bréf í lófa þinn og koss þér gef, þeim kossi fylgir hjarta og hugur. — Þér hlífi guð minn almáttugur. Hann blessi þér þín elliár svo aldrei mæti harmur sár, og leiði þig í ljósið bjarta er lokast brá og stöðvast hjarta. 1911. M. R. Málleysingjar. Eitt af því dýrmætasta, sem okkur hefur verið',gefið er málið. Við getum taláð hvert við annað, við getum kvartað ef við finnum til, eða ef okkur líður eitthvað illa. Við getum sagt frá, ef ein- hverjir hafa verið vondir við okk- ur, og beðið um hjálp þegar við þurfum hjálpar við. En það eru aðrir, sem geta ekkert af þessu, og það eru dýrin. Þau geta ekki sagt neinum frá því þegar þeim líður illa, þegar þau finna til eða þegar þeim leiðist. Þau geta ekki kvartað þótt þau séu barin og farið illa með þau á margan hátt. \ Þau geta ekki einu sinni grátið, en samt finna þau til eins og við y mennirnir. Þau geta verið svo hrygg, og sorgbitin eins og við, að þau myndu gráta ef þau gætu það. En þau geta líka verið glöð, og það eru þau oftast þegar þau hafa nóg að borða, og þegar mennirnir eru ekki vondir við þau. En það er meinið að menn- irnir eru ekki nógu góðir við þau, þessa vesalings mállausu vini okk- ar, sem okkur hafa verið fengnir til að ráða yfir, í því trausti að við værum þeim góðir. Ég veit að þið viljið öll vera góð við dýrin. > Þau launa ykkur það eins og þau geta, en til vonar og vara ætla ég að biðja ykkur öll, sem þessar lín- ur lesið, að láta það aldrei spyrj- ast eftir ykkur, að þið farið illa með nokkurt dýr, smátt eða stórt, en reynið aftur á móti að taka svari þeirra og verja þau fyrir illri meðferð, og sýna þeim ein- læga ástúð hvar sem þau verða á vegi ykkar. Reynið af öllum mætti að útrýma þeirri villimennsku, sem því miður á sér enn stað, að farið sé illa með dýrin. Setjið ykkur í spor hestsins, sem barinn 1 er með þungum svipuólum, þótt hann taki á öllum sínum kröftum til að vinna fyrir manninn, sem er að berja hann. Setjið ykkur í spor hundsins, sem er bæði skammaður og barinn, þótt hann

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.