Vorið - 01.04.1932, Síða 7

Vorið - 01.04.1932, Síða 7
vofcii) 31 eins. Hann þorði ekki að lina á sprettinum fyrr en hann var kom- inn út úr skóginum, enda var hann þá að springa af mæði. En þegar hann leit við, þá sá hann til allrar guðslukku, engan mann, en hann vildi þó hraða ferð sinni sem mest, og þótt mesta hræðslan væri nú farin af honum, þá skalf hann þó og nötraði alla leiðina heim. En þegar heim kom, skammað- ist hann sín fyrir að segja nokkr- um frá þessum atburði, og fór heldur einförum á meðan hann var að jafna sig. En rétt á eftir varð honum litið út um stofu- gluggann, og verður hann þá bæði hræddur og hissa, því eftir vegin- um kemur maðurinn, sem var að elta hann úti í skóginum, og stefnir heim að húsinu. »Er hús- bóndinn heima?« spurði ókunni maðurinn húskarl einn, er kom í sama bili út úr fjósinu. En í sömu svifum kom faðir Jóhanns út, því hann hafði heyrt spurningu ó- kunna mannsins. »Nei — nú er ég alveg hissa«, mælti hann, »þetta er þá Georg hestakaupmaður! Hvernig fóruð þér að rata hingað i gegnum skóginn?« »0, jæja«, sagði sá ókunni. »Ég spurðist fyrir um leiðina, og rétt þegar ég var kominn á veginn, sem mér var vísað á, sá ég dreng, sem ég elti svo inn í skóginn«. Hestakaupmaðurinn hló, og hélt síðan áfram: »En þegar við vor- um komnir inn í miðjan skóginn, tók strákur víst eftir því, að ég veitti honum eftirför, og tók til fótanna alveg eins og ég væri annaðhvort ræningi eða mannæta. Ég reyndi að kalla til hans, og segja honum að hér væri engin hætta á ferðum, en þá fyrst varð hann hræddur fyrir alvöru. Jóhann vildi ekki heyra meira, en læddist sneyptur burt. Þegar hann fékk að vita, nokkr- um dögum síðar, af hverju Gréta litla hafði orðið veik, strengdi hann þess heit að hræða aldrei nokkurn framar, hvorki menn eða skepnur. Nú var hann búinn að reyna það sjálfur hvað það var að verða hræddur og hann játaði það fúslega með sjálfum sér, að æfin- týrið í skóginum hefði sannarlega verið réttmæt hegning. (Mit Elad), <fr. -- Gaman og alvara. Kennslukona í sunnudagaskóla einum bar upp eftirfarandi spurningu fyrir nemendum sín- um. »Hvað er það, sem mér ber að vera þakklátur fyrir?« og spurn- ingunni áttu börnin að svara skriflega næsta sunnudag. Næsta sunnudag komu öll börn- in með svör sín, og voru þau mörg einkennileg og barnaleg, sem við

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.