Vorið - 01.04.1932, Page 8

Vorið - 01.04.1932, Page 8
32 VORIÐ Lítil stúlka ein, fátækleg og föl í andliti, hafði t. d. skrifað þetta á miðann sinn: »Ég er þakklát fyrir það, að ekki skuli vera neinir áfengissal- ar á himnum«. ----()----- 1. xxbxxxx. 2. xxxxsxx. 3. xxxux. 4. xxxxuxxxxxxx. 5. xixxxxxxxx. Setjið stafi í stað krossanna svo að fram komi: 1. Nafn á ein- hverjum hinum fegursta stað á íslandi, 2. Ey við ísland, 3. Rán- dýri, 4. Kaupstað á íslandi, 5. Fjalli við Skagafjörð. Fremstu stafirnir í hverju orði mynda mánaðarnafn. Ráðning í næsta blaði. ----0------ Ráðningar á gátum í síðasta blaði: 1. Koddinn. 2. Vatnið. 3. Draumurinn. 4. Lífið. ----0------ KAUPENDUR! Munið að greiða blaðið fyrir 1. maí. Ef all- ir standa í skilum, eru líkindi til að blaðið geti haldið áfram að koma út, eða jafnvel stækka eitt- hvað, og að öllu forfallalausu fer það nú að flytja myndir bráðlega. Góðu börn! Reynið því að stuðla að útbreiðslu og vexti »Vorsins« með því að kaupa það og borga það. BARNABÆKUR. Ása, Signý og Helga . . . . kr. 0.50 Daglæti, í bandi ...... — 2.50 Orániann í Garðshorni .... — 1.00 Hlini kóngsson.....................— 1.00 Karlinn frá Hringaríki .... — 0.50 Karlson, Lítill, Trítill og fuglarnir — 0.75 Kisa kóngsdóttir................— 0.75 Loginn helgi....................— 1.50 Óli hálendingur.................— 1.00 Sagan af borginni fyrir austan tungl og sunnan sól . . . . — 1.00 Sama bók, i bandi ... — 1.50 Sagan af Marteini niálara ... — 1.00 Selíkó..........................- 0.75 Skógarsögur Tarzans .... — 3.00 Stjörnuspekingurinn.............— 0.75 Svanhvít kóngsdóttir............— 0.50 Innan skamms koma út Bakkabræöur með myndum. Bókaverzlun Porsteins M. Jónssonar, Akureyri; Pétur litli: »Hvernig byrja stríðin, pabbi?«. Faðirinn: »Hugsaðu þér dreng- ur minn að Noregur og Svíþjóð fari að deila hvort við annað... Móðirin: »Þú veist vel maður, að slíkt getur ekki komið fyrir«. Faðirinn: »Við getum nú hugs- að okkur það samt«. Móðirin: »Þú ert að segja barn- inu ósatt«. Faðirinn: »Nei — alls ekki«. Móðirin: »Jú, víst ertu að því«. Faðirinn: »Nei«. Móðirin: »Jú«. Pétur litli: »Nú held ég, pabbi, að ég viti hvernig stríðin byrja«. Prentsmiðja Odds Bjömssonar.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.