Bjarmi - 15.01.1907, Síða 8
4
B .1 A R M I
Hallgrímur Pétursson.
»Frá því barnið biður fyrsta sinn
blitt og rótt við sinnar móður kinn,
og til þess gamall sofnar siðsta blund —
svala Ijóð þau liverri hjartans und«.
Matth. Joch.
Ekki yerðursálmum vors ástfólgna
sálmaskálds Hallgríms Péturssonar
betur lýst í fám orðum en gerl er
í þessu gullfallega erindi úr hinu á-
gæta minningarkvæði síra Mattli.
Joch.; það kvæði ælli hvert barnið
að læra og kunna og syngja.
Já, vist eru sálmar Hallgríms Pét-
urssonar ómetanlegt hnóss hverjum
trúuðum manni. Þeir eru vögguljóð
biðjandi barna, luiggunarljóð og
bænarmál hinna fullorðnu og um
fram alt dýrðarsöngur dej'jandi
manna.
Það er samhljóða vilnisburður
allra trúaðra manna, að livað sem
þeir svo lesi af sálmum og prédik-
unum annara íslenzkra kennimanna,
þá finni þeir íljótt, að fáir þeirra hafi
haft þann lykil að náð og þekkingu
drottins vors Jesú Krísts, sem Ilall-
grímur Pétursson hafði; fáir hafi svo
innilegan kærleika lil frelsarans, fáir
eins barnslegt trúartraust, fáir
svo heitan bænaranda, fáirsvodjúp-
an skilning á því, sem er kjarni
kristíndómsins.
Hér er ekki rúm til að rekja all-
an æfiferil síra Hallgrims, enda er
fæstaf því markvert, sem vérvitum
um hann, nema jiað, sem á einhvern
hátt sluðlaði að þvi, að
hann varð íslenzku kirkj-
unni og þjóðinni sá nyt-
semdarmaður, sem fram
hefir komið.
Hann er fæddur árið
1614.
Siðabót Lúters var þá
í beztum blóma hér á
landi. Guðbrandur bisk-
up Þorláksson á Hólum
var þá enn uppi, sem
frægastur er og mestur af
öllum frumkvöðlum sið-
bótarinnar hér á landi.
Hann var búinn að ljúka
æfistaríi sinu að mestu,
búinn að þýða alla biblí-
una á islenzku og gefa
hana út; þar að auki var
hann búinn að gefa út
tvær sálmabækur lil notkunar í
kyrkjum og heimahúsum; voru þeír
sálmar lleslir þýðingar á sálmum
siðhótarmanna og margir voru lika
frumsamdir. Hann lét og þýða og
gefa út fjölda af andlegum ritum
þýzkra guðfræðinga, sem fullir voru
af Ijöri og andagift siðabótarinnar,
Skólinn á Hólum var lika undir
stjórn Guðbrands biskups, og fer
jiað að likindum, að bið andlega líf,
sem siðbólinni fylgdi, hafi verið fjör-
ugt þar. Hallgrímur Pétursson ólsl
því upp við sögur heilagrar ritning-
ar og sigursöngvar og lofsöngvar
Hallgrímur Pétursson.