Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.01.1907, Blaðsíða 11

Bjarmi - 15.01.1907, Blaðsíða 11
B J A R M I 7 Áhrif brendrar biblíu. Ungfrú L. varpaði vingjarnlegri kveðju á Tómás Evans og konu hans, og mælti um leið: »Eg er á ferð um sveitina mína, til þess að grenslasl eftir, hvort nokkurs sé vant á heimilunum og sérstaklega, hvort biblian sé til á hverju heimili«. Þegar hún nefndi biblíu, þá taut- aði húsbóndinn eitthvað fyrir munni sér, en kona hans Jóhanna brá lit- um, því að hún vissi, að manni hennar var illa við biblíuna og vildi ekki af henni vita á heimilinu. Engum varð neitt að orði, svo ung- frú L. tók aftur til máls: wHvernig líður yður, Evans? Haíið þér bibl- íu á heimilinu yðar? Jóhanna ætlaði að reyna að svara einhverju, en þá tók maður henn- ar heldur hranalega fram í fyrir henni, og mæltií »Eg hefi enga bibliu á mínu heimili og ætla mér ekki að liafa neina framvegis«. »Enga bibliu!« mælti ungfrú L., »það hryggir mig nrjög, því að ég trúi því, að heill hvers heimilis sé undir því komin, að menn lesi guðs orð og færi það sér í nyt. En hvers vegna hafið þér óbeit á bibliunni, Evans? Eg hefi aldrei heyrt getið um, að af henni hafi stafað nokk- urt tjón; en hitt veit ég aftur á móti, að hún hefir orðið fjölda manna lil óumræðilegrar blessunar«. Þá mælti Tómas: »Ég tek það upp aftur, sem ég áður sagði, það er engin biblia til á mínu heimili og mér kemur ekki til hugar að hafa hana«. »Þér viljið, ef til vill, ekki fleygja fé yðar út fyrir hana«, mælti ung- frú L.; »ég skal heldur ekki telja yður á að kaupa þá hók, sem þér viljið ekki kaupa, en ég skal gel'a yður eina biblíu«. »Gerið þér svo vel«, mælti hún og lagði biblíu, i snotru bandi, á borðið, ég ætla að skilja þessa eftir; þér þiggið hana af mér að gjöf, eða er ekki svo?« »Þér getið skilið liana eftir, ef yður sýnist svo«, svaraði Tómas, »en ég liefi nú lalað það, að engin biblia skuli vera á minu heimili og það stendur«. »Ég veit þér viljið þó lofa mér að skilja hana eftir hjá yður?« »0-já, látið þér hana bara liggja eftir, en það er eins víst og þér sjáið eldinn þarna, að ég fleygi henni í hann jafnskjótt sem þér eruð kom- in út úr dyrunum; ég er maður, sem stendur við orð síu«. Iíona hans titraði öll af geðs- hræringu, en ungfrú L. horfði á hann rólega og mælti: »Ég ætla að láta bókina liggja þarna, en þér gerið við hana, það sem yður sýn- ist; en guð geli, að þessi bók megi verða verkfæri í hendi hans yður til sáluhjálpar«. Að svo mæltu bað hún til guðs í hljóði, að hann, sem alt megnar, miskunnaði þessum manni og léti nú orðið sitt verða til að snúa hon- um. Þvi næst kvaddi hún og fór leiðar sinnar. Jafnskjótt sem hún var farin, gekk Tómas að borðinu, tók bókina sér í liönd, hélt á henni með útréttum armi og mælti: »Ég stend við orð mín, jiessi bók skal ekki verða á mínu heimili stundu lengur, mér til ama og óróa«. Síðan íleygði hann henni i eldinn. Reykjarstroku lagði upp af bók- inni; eldtungurnar léku um hana og runnu svo saman í bjart bál á arninum; en Jóhanna grél og gekk hljóðlega lit úr herberginu. En um leið og hún opnaði hurð- ina, þá lagði súg að eldinum inn

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.