Bjarmi - 31.01.1907, Side 8
16
B J A R M 1
í Vesturálfunni. — Biblíufélagið hefir
látið þýða alla biblíuna eða hluti
liennar á 390 tungumál. Árið, sem
leið, gaf það út nærri því 0 milljónir
eintaka af ritningunni, en alls hefir
það gefið út 192,537,746x eintök
hennar (af þeim 77 milljónir á ensku).
Það studdi árið, sem leið, 930 um-
ferðasala og um 700 kristnar biblíu-
konur í heiðnum löndum til að út-
breiða hana. — I ófriðnum milli
Rússa og Japana lét það úlbýta um
350 þúsund eintökum í herbúðum,
sjúkrahúsum og fangelsum. — Van-
trúnni gengur seint að útrýma biblí-
unni. (Bible in the World).
Erfiðleikarnir. Eins og geta má
nærri, eru þessar bibliuþýðingar af-
ar vandasamt verk, einkuin þar sem
mál ýmsra villiþjóða vanta orð,
sem tákni fyllilega ýmsar hug-
myndir biblíunnar, og lílil yfirsjón
þýðanda eða setjara getur valdið ó-
þægilegum misskilningi. — Þegar
Matteusar guðspjall var t. d. í fyrsta
skifti gefið út á Indíánamáliö Mic-
x) Sú tala er svo há, að maður, sem
ætti að telja þann bókaíjölda, yrði að þvi
rúm 8 ár, þótt hann teldi 100 á hverri
mínútu og ynni 10 tíma hvern einasta dag.
mac, stóð í 24. kapítula 7. v.: »Snjó-
skór mun rísa gegn snjóskóm«, í
staðinn fyrir: »Þjóð mun rísa gegn
þjóð«. Og þó var ekki nema einn
stafur rangur: náooktákumiksjik
(snjóskór) í staðinn fyrir: náooktu-
kumiksjik (þjóð). — Þó var enn
lakara, þegar þeir prentuðu »harma-
grútur«í staðinn fyrir »harmagrátur«.
Vöxtur kristindómsins.
í lok 1. aldar 50,000
1 lok 2. aldar ... 2,000,000
í lok 3. aldar ... 5,000,000
í lok 4. aldar ... 10,000,000
í lok 5. aldar ... 15,000,000
í lok 6. aldar ... 20,000,000
í lok 7. aldar ... 25,000,000
í lok 8. aldar ... 30,000,000
í lok 9. aldar ... 40,000,000
í lok 10. aldar ... 50,000,000
í lok 11. aldar ... 70,000,000
1 lok 12. aldar ... 80,000,000
í lok 13. aldar ... 75,000,000
í lok 14. aldar ... 80,000,000
t lok 15. aldar ... 100,000,000
í lok 16. aldar ... 125,000,000
í lok 17. aldar ,... 155,000,000
í lok 18. aldar .... 200,000,000
í lok 19. aldar ... 400,000,000
(Presbyterian Iland-book).
SAMEININGIN, mánaðarrit liins ev.lút. kyrkjuf. í Vesturheimi. Ritstjóri:
sira Jón Bjarnason i Winnipeg. Hvert nr. 2 arkir. Barnalilaðið »Börnin« er sérstök
deild í »Sam.« undir ritstjórn síra N. Steingríms Porlákssonar. Verð hér á landi kr.
2,00. Fæst hjá cand. S. Á. Gíslasyni i Reykjavík.
IVÝTT KYRIÍJUBLAÐ, hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristi-
lega menning, 18 arkir á ári, verð 2 kr., í Vesturheimi 75 cents. Útgefendur Jón
Helgason og Þórhallur Bjarnarson, prestaskólakennarar.
BJARMI, kristilegt heimilisblað. Kemur út tvisvar i mánuði. Kostar hér
á landi 1 kr. 50 a. og 75 cent i Ameríku. Borgist fyrir 1. október. — Útsendingu og
afgreiðslu annast bókbindararnir Bjarni ívarsson og Jónas Sveinsson, Laugaveg 24,
talsimi 118. Einnig yeita þeir móttöku borgun fyrir blaðiö.
Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Njálsgötu 33 Reykjavík.
Prehtsmiðjan Gutenberg.