Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 26.02.1907, Blaðsíða 5

Bjarmi - 26.02.1907, Blaðsíða 5
B J A R M I 29 fór að fást við lækningar, að þetta lyf hefir gjört kraftaverk, þegar menn hafa notað það«. Þessi atburður er sannur. Það er skamt síðan læknirinn dó, en lyfið hans höfum vér enn með höndum, Það skaðar engan, þótt hann reyniþað. Sælir eru þeir, sem í Drottni eru dánir. i. Hinn 16. febr. andaðist Rósa Lúð- vígsdóttir, kona Bjarna Jónssonar kennara og ritstjóra »Bjarma«. Hún var fædd 30. apríl 1861. Ætt hennar er mest öll af Austurlandi og þar dvaldi hún mikinn hluta æfi sinnar. Eg hafði kynni af Rósu sálugu, þeg- ar ég var unglingur, og fáar konur hef ég þekt dagfars betri og lundþýðari en hún var. Hún var hinn mesti snillingur í öllu, er hún lagði hönd að, og vel gefin að öllu leyti. Hún kvæntist eftirlifandi manni sínum 1894, þau eignuðust 3 dætur, sem eru allar á lífi. Mikinn hluta æfi sinnar átti liún i höggi við heilsuleysi og oft voru ytri kjör hennar erfið. En lnin har þjáningar sínar með stakri rósemi og undirgefni undir guðs vilja. Hún varpaði sér örugg í faðm frelsarans, þar var henni ljúft að lifa og stríða, og kraftur hans var máttugur i veikleika hennar. Ekkert fékk slitið hana úr hendi hans, sem ber umhyggju fyrir oss, ekki sjúkdómur hennar eða sorgir, já, ekki dauðinn sjálfur, því með Kristi er dauðinn líf, Hún lét reynslu sína í þessu lífi draga sig nær guði. Með bæn á vörum barðist hún við síðasta óvininn og gekk vonglöð inn í fögnuð guðs barna. »Sá, sem trúir á soninn, mun lifa, þótt hann deyi«. II. Öllum þeim, sem jafnaðarlega vitja sjúklingaísjúkrahúsinu kaþólskahér i bænum, mun lengi vei'ða liún minnis- stæð, unga stúlkan bjartleita, sem um lengri tíma — mest allann tímann frá því er sjúkrahúsið var stofnað —lá þar og þjáðist oft mikið. Þessi stúlka hét ólöf Sveinsdóttir og var ættuð úr Mýrdalnum. Á barnsaldri kendi hún sér þess meins, er varð banameinið hennar (berklaveiki). Fluttist hún því snemma burt frá æskustöðvum og ástvinum sínum í sjúkrahús Reykja- víkur. Þar dvaldi hún árum saman í rúminu sínu, þangað frétti hún lát- ið hennar móður sinnar, og þar fékk hún einnig vitneskju um það, að sjúkdómur liennar væri ólækn- aridi. Hún var ung og llesta unga lang- ar til að lifa. Ég kom oft til henn- ar, en varð ekki vör við hina minstu óánægju með kjörin, sem virt- ust erfið. Og ekkert fékk myrkvað bjarta svipinn á andliti hennar, af þvi að náðar og gleðisól frelsarans lýsti og vermdi hjarta hennar. Og nú er hún dáin — bjarta and- lilið föla og tærða er horfið af kodd- anum. Við, sem kyntumst lienni, gleðjumst af hjarla yfir þvi, að þreytta barnið er nú komið heim til föðurhúsanna, Það er sælt að sofna í faðmi Jesú. Guðrún Lárusdótlir. »Feldur em eg við foldu frosinn og má ei losast; andi guðs á mig andi, ugglaust mun eg þá huggast«. (J. H.)

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.