Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.01.1908, Blaðsíða 2

Bjarmi - 15.01.1908, Blaðsíða 2
10 BJARMI leggur á Kain, sýnir það Skýrt og skilmerkilega, að hann her ábyrgð á lífi bróður síns. Og seinna í hinni helgu bók, er drottinn hafði gefið lögmálið, þá kemst liann svo að orði um öll þau boðorð: »Eg drottinn, þinn guð, er vandlátur guð, sem hegni misgerðum feðranna á börnunum í þriðja og fjórða lið, á þeim, sem mig hata, en auðsýni miskunsemi í þúsund liðu, á þeim, sem mig elska og varð- veita mín boðorð«. Þessi yfirlýsing drotlins um refsingu fyrir afbrot og syndir feðranna, sem kemur niður á börnum og afkom- endum, hefir mörgum manni orðið hneykslunarefni. Margur hefir í gremju sinni yfir lienni ýmist hugsað eða haldið því fram í lieyranda hljóði, að það gæti ekki verið réttlátur guð, sem léti slíkan boðskap út ganga. En hér er um svo mikilvægt og alvarlegt mál að ræða, að vér megum ekki láta augnablikstílíinningar vorar villa oss sjónir. Hér'er þörl' á gætni og vizku og vandlegri iliugun. Eða mun drottinn vera ranglátur? Hver dirfist að hugsa slíkt? Mun hitt ekki Hklegra, að vér mennirnir förum hér villir vegar, og að það sé vorri fá- fræði eða skoðunarleysi að kenna, eí oss sýnist drottinn vera ranglátur. Syndin, eða brotin móti lögum drottins, hefir ávalt og alstaðar skil- yrðislaust hegningu í för með sér í einhverri mynd. Því stærri sem synd- in er, því meiri og viðtækari verður hegningin. Og syndin getur orðið svo mikil, að alleiðingar hennar taki ekki að eins til þess, er fremur hana, held- ur og til barna hans og niðja. IJað er petla lögmál um afleiðingar syndarinnar, sem er svo ranglátt í vorum augum, þetta, að hún komi niður á saldausu afkvæminu eða niðja þess. En hver er tilgangur guðs með þessum viðtæku afleiðingum. Ætli drottinn Iangi lil að refsa, hann, sem er kærleikurinn og vill, að allir verði hólpnir? Er ekki hitt miklu sam- boðnara honnm, að hann sé einmitt með þessu að knýja oss til að forð- ast syndina af fremsta megni. Eða segið mér: Gelur nokkuð fremur fengið föður eða foreldri til að forð- asl syndina, en sú tilhugsun, að hann leiði liegningu og smán með syndum sínum yfir þá, sem lionum æltu kær- astir að vera í lífinu, yfir börn sín og niðja. Gættu þess, að þú ert ekki einn á ferð, hlóð þitt rennur í æðum barna þinna og niðja; dæmi þitt verkar á þau. Þú ber líka á ýmsan liátt á- hyrgð á lííi þeirra. Hér er ekkert ranglæti frá guðs hálfu. Það, sem hver sáir, mun liann og uppskera. Eða er það ranglæli, að liinn heilagi guð reynir á allan hátt að fá oss til að forðast syndina. Hann gerir það með því, að benda oss á, að syndin sé þjóðanna skömm, lands og lýða tjón. Hann tekur það fram, að um leið og vér förum að þjóna syndinni, þá slítum vér oss úr lífssambandi við hann, sviftum oss þeim friði, fögn- uði og sælu, sem fylgir lífssamíélag- inu við hann. Hann gerir það með því, að Iáta réttláta refsingu koma yfir oss sjálfa í einhverri mynd. ()g þegar ekkert af því dugir og þjóðir og einstaklingar halda áfram að van- rækja hans heilög hoð og þjóna synd- inni, þá kemur síðasta og sterkasta áherzlan, sem er í því fólgin, að vér leiðum ekki að eins refsingu og smán yfir oss sjálfa með því að þjóna synd- inrii, heldur og yfir börn vor og niðja. Þeir, sem oss eru kærastir, þola refs- inguna með oss, þeir þola refsingu vegna vor. Það er þessi vissa, þessi sorgarsjón, sem drottinn ætlast til að stöðvi oss á vegum syndarinnar, el' ekki tjáir neitt annað til þess.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.