Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1908, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.03.1908, Blaðsíða 4
36 B J A R M I Á nýársdag 1008. Enn er nýárs svásleg sól sœvar risin upp frá beði, Ijómar hgrt um himinból, hjúpar geislum jökulstól, vekur lífið skin og skjól skammdegis er húm ei léði; altaf guðdóms eilíf sól örvar hjá oss von og gleði. Gott hið nýa náðarár, náðarjaðir, gef oss öllum, grœddu hinna sjúku sár, sgrgjendanna þerðu tár, teiddu, drottinn dgrðar-hár, degjendur að lífsins höllum. Gott og farsœlt gef oss ár, gœzkuriki Jaðir, öllum. Jón Þorvaidsson. Árni lögmaður Oddsson. —o— (Framh.). í einu fátækramálinu liel'st Árni svo máls, að hann viti það orð og vilja guðs, að hver maður eigi að elska náunga sinn eins og sjálfan sig. Því næsl vitnar hann til þessarar greinar í Dómakapítula: »Alt ill skal hata, en elska manninn af náttúrlegu eðli, en sálina allra helzt sem sinn jafnkristinn«, og svo þessarar greinar i sama kapítula: »Ef nokkur rýfur þessa skipun, um fátæka menn, þá bæti hann (yfir) við guð, er hann vildi eigi hjálpa kristn- um manni«. En þó Árni væxá miskunsamur dómari, þá var miskunn hans aldrei neitt skálkaskjól; hann fór heldur ekki í manngreiixarálit. Torfi Ei’Iends- son, sýslumaður í Árnessýslu, var ofsa- maður rnikill og óvæginn við almenn- ing i fjárkröfum og skeytti lítt um, hvort að lögum var farið eða ekki. Árni dæmdi af honum embætti og allar virðingar fyrir meiðyrði, sem Torfi hafði í framrni við mann á héraðsþingi og var Torfi frá sýslunni eitt ár, þangað til konungur setti hann í emhættið aftur fyrir bænastað Þor- móðar sonar hans, sem þá var orð- inn sagnai’itari konungs (Friðiiks III.). Óhlýðni við gildandi lög áleit Árni óhæfu, þó að lögin væru ekki góð í sjálfu sér. Einu sinni komu hollenzk- ir kaupmenn í Hafnarfjörð, og vildu verzla við landsmenn. Var þá leitað úrskuxðar Árna um það mál, en Árni vildi ekki leyfa, af því að öll verzlun var bönnuð að lögum við aðrar þjóðir en Dani. Árni sá þó eigi síður en aðrir eymd þá og ógæfu, sem einok- unarlögin leiddu yfir þjóðina. En eins og sakir slóðu þá, var ólilýðni við þau lög árangurslaus. Árni var hverjum manni vinsælli. Á alþingi 1640 var umhleypingur nokkur, Aðalsteinn að nafni, dreginn fyrir dóm á þinginu; hafði hann víða verið með mælgi og umlestri að vitn- isburði hænda, og lxafði sagt, að því er snerli landið alt, að öllum mönn- um gæti hann eitthvað til klækja fundið eða saka, nema þremur, og var Árni lögmaður einn af þeim. Hann naut og almennrar virðingar af landsmönnum. Á alþingi 1661 var honum i einu hljóði falið að gegna Iögmannsstörfum í báðum lögdænx- uxxurn (sumian og austan og norðan og vestan) í forföllum Magnúsar lög- manns Björnssonai*. Er það ljóst dæmi þess trausts, sem allur lands- lýður bar til óhluldi*ægni hans og réttdæmis. Þjóðrækni Árna var meira en nafn- ið tómt. Það sást bezt á Kópavogs- þinginu 1662, þegar formenn lands- ins áttu að sverja Fiiðriki konungi þriðja og niðjum hans trú og holl-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.