Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1908, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.03.1908, Blaðsíða 5
BJARMI 37 ustu og rita nöfn sín undir einveld- isskjalið. Höfuðsmaðurinn eða land- stjóri konungs, Hinrik Bjelke, þurfti heilan dag eða nálægt þvi til þess að brjóta Árna til hlýðni við sig, þótt liann gamall væri, en loks lét hann grátandi undan hótunum, því höfuðs- maður liafði vopnaða menn sér við hönd. Og svo sór hann með öðrum. Árni skildi það betur en allir aðrir, að undirskriftin undir einveldisskjalið var lík því, sem skrifað hefði verið undir dauðadóm yfir landsmönnum, svo fáir og örsnauðir sem þeir voru þá. Þelta gerðist 28. júlí 1662. Það var og lögtekið að ráði Árna lögmanns (1652) í öllu lögdæmi hans, að hver maður, sem reri um vcrlíð, skyldi greiða lilut til holdsveikraspital- anna, sem þá voru nýstofnaðir, ein- hvern þann dag, er vel íiskaðist. Það var almenningi til heilla, að spítal- arnir þrifust vel, þvi að holdsveikin var þá svo afar-almennur sjúkdómur. Og það sýnir jafnframt vinsældir Árna, að allur þingheimur samþykti, að lilutina skyldi greiða, nema Toríi sýslumaður og annar til. Torfi gekk ríkara eftir því, að bændur greiddu hina svonefndu manntalsfiska, þó þeir væru ólöglegir, af því að þeir runnu í hans eigin vasa, því hann var á- . gjarn og áseilinn. <& t*að var honum sjálfum að kenna. Á hverjum degi biðja ílestir af oss: »Verði pinn vilji!« en kæri lesari! hefir þú nokkurn tíma íhugað, hvort þú mein- ar það, sem þú biður um? Það er sagt, að einhverju sinni hafi einn af vinum Marteins Lúthers komið til lians og sagt: »Alt gengur á móti mér; eg fæ engar óskir mínar uppfyltar; vonir mínar bregðast og áform mín mishcpnast«. — »Það er þér sjálíum að kenna«, svaraði Lúther. »Sjálfum mér að kenna? Hvern- ig þá?« — »F*ú biður á hverjum degi: Verði þinnn vilji, og guð lætur vilja sinn verða; en fyrst þú vilt ekki, að guðs vilji verði, þá verður þú að biðja: Verði minn vilji! þvi á meðan þú biður guð um að hans vilji verði, þá verður þú að vera ánægður, þegar hann gerir eins og þú bíður um«. G. Á. þýddi. Vei þeim, sem hneykslunum veldur! (Eftirtektavert). —o— í litlu þorpi i Pensilvaníu, lá fyrir til úrslita tillaga um vinveitingaleyíi margra vínsölustaða á komandi ári. Tillagan fór fram á sama vinsölu- staðafjölda og áður og hafði mikið fylgi, lá nærri að hún væri samþykt, eins og hún var. Kom þá fram kona nokkur fátækleg og bað leyfis að segja fáein orð; þegar henni var veitt það, mælti hún: »Þér vitið hver eg er. Einu sinni þektuð þér mig; ég var þá húsfreyja á einni stærstu eigninni hérna. Eg átti elskuverðan eiginmann og fimm sonu, svo engin kona eða móðir gat verið hamingjusamari en eg. Nú eru þeir allir sex með tölu komnir í gröíina sem drykkjumenn. Hvernig urðu þeir drykkjumenn? Það vitið þér, herrar mínir; þér vor- uð hérumbil allir daglegii gestir á heimilinu og drukkuð með þeim, og læknirinn þarna sagði: Drekkið þið bara, en í hófi, þið hafið gott af því. Djákninn, sem situr þarna, seldi þeim áfengið, og nú er jarðeign okk- ar og alt, sem við áttum, hans eign. Eg hefi nú talað út, og verð að fara til heimilis míns; það er nú fá- tækrahælið. En við mætumst síðar fyrir dómstóli Drottins, herrar mínir, og þar verðið þér að standa reikn-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.